Foreldrar einhverfra barna undir stöðugu álagi

Erlendar rann­sóknir gefa til kynna að for­eldrar ein­hverfra barna séu undir stöð­ugu álagi – ekki endi­lega vegna þess að umönnun þeirra sé svo krefj­andi heldur vegna þess að það að vera stöð­ugur málsvari þeirra út á við ýti undir álag.

Guðrún Þorteinsdóttir, félagsráðgjafi og sviðsstjóri hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
Guðrún Þor­teins­dóttir, félags­ráð­gjafi og sviðs­stjóri hjá Grein­ingar- og ráð­gjaf­ar­stöð rík­is­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Ef skortur er á úrræðum og stuðn­ingi við ein­hverf börn þá gerir það enn frekar að verkum að for­eldrar séu undir stöð­ugu álagi. Þetta kom fram í máli Guðrúnar Þor­steins­dóttur, sviðs­stjóra hjá Grein­ingar- og ráð­gjaf­ar­stöð rík­is­ins, í ítar­legu við­tali Kjarnans sem birt­ist um helg­ina.

Kjarninn greindi frá því í síð­asta mán­uði að þrjá­tíu börn hefðu fengið synjun frá Reykja­vík­ur­borg um að fara sér­deild næsta haust og þurfa þau því að fara inn í almennan bekk með stuðn­ingi. Einungis átta pláss voru laus í þessum sér­deildum.

Guðrún segir í sam­tali við Kjarnann að henni finn­ist þetta snúið mál og bendir á að erlendar rann­sóknir gefi til kynna að for­eldrar ein­hverfra barna séu undir miklu álagi – ekki endi­lega vegna þess að umönnun og upp­eldi þeirra sé svo krefj­andi heldur vegna þess að það að vera stöð­ugur málsvari þeirra út á við og halda öllum boltum á lofti getur ýtt ofboðs­lega undir álag.

Finna fyrir fyrir neikvæðum viðbrögðum frá umhverfinu

„Ef það er skortur á úrræðum og stuðn­ingi þá gerir það enn frekar að verkum að for­eldrar eru undir þessu stöðuga álagi. Erlendar rann­sóknir gefa þetta mikið til kynna. Þetta er oft dulið álag vegna þess að for­eldrar þess­ara barna upp­lifa sig eins og þau séu að keppa í krullu á Vetr­ar­ólymp­íu­leikum. Þau eru með kúst­inn – alltaf tveimur skrefum á undan að reyna að passa að allt sé slétt og fellt þannig að barnið geti farið í gegnum dag­inn nokkurn veg­inn við­stöðu­laust. Vegna þess að skynjun barn­anna og erf­ið­leikar við að aðlag­ast gerir það að verkum að þau stundum bregð­ast sterkt við og fá það sem kallað er „meltdown“ eða „ofsakast“. Það getur verið ofboðs­leg áskorun þegar þú ert í Kringl­unni eða úti í búð, eða ein­hvers staðar, að takast á við það.

[links]Þessir for­eldrar verða stundum fyrir nei­kvæðum við­brögðum frá umhverf­inu vegna þess að það er ekki endi­lega eitt­hvað sjá­an­legt að barn­inu, þ.e. að það sé að glíma við þessar áskor­anir. For­eldrar fá oft á sig alls konar athuga­semdir varð­andi sína upp­eld­is­hæfni sem er mjög krefj­andi fyrir þá líka. Þeir upp­lifa þannig að þeir séu alltaf tals­menn barn­anna og alltaf að berj­ast fyrir þeirra rétt­indum. Umræðan hefur verið svo­lítið þannig að börn hafa ekki verið að fá það sem þau þurfa á að halda í skóla­kerf­inu og þessir for­eldrar eru – eins og allir for­eldrar – að reyna að vernda börnin sín,“ segir Guðrún.

Henni finnst skilj­an­legt að for­eldrar reyni að gera grunn­skóla­göngu barn­anna sinna eins jákvæða og hugs­ast getur. „Vissu­lega er hægt að gera það í almennum skóla en þessir for­eldrar standa frammi fyrir því að spyrja sig: Eigum við að taka séns­inn? Hvað eigum við að gera? Eigum við ekki frekar að fara þar sem þekk­ingin er og reynslan?“ Rýna þarf í þessi mál, að mati Guðrúnar.

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár