Mynd: Bára Huld Beck

Slegist um átta pláss í sérdeildum grunnskóla Reykjavíkurborgar – Foreldrar búnir að fá nóg

Mikið færri kom­ast að en vilja í sér­deildir í grunn­skólum Reykja­vík­ur­borgar. For­eldrar 30 barna með ein­hverfu hafa fengið „fyr­ir­hug­aða synjun“ um pláss næsta skólaár. Mikið og erfitt ferli, segja for­eldrar – og óskýrt og rugl­ings­legt.

Fá útvalin börn fá laus pláss í sér­deild fyrir börn með ein­hverfu næsta skólaár í Reykja­vík. Alls bár­ust 38 umsóknir í slíkt úrræði – sem er met­fjöldi – en ein­ungis 8 pláss eru laus þetta árið. Nú hafa for­eldrar margra barna fengið svo­kall­aða „fyr­ir­hug­aða synjun“ frá Reykja­vík­ur­borg og má greina mikla reiði og örvænt­ingu hjá þeim.

Ein­hverfu­grein­ingum barna á grunn­skóla­aldri hefur fjölgað mikið síð­asta ára­tug­inn. Árið 2010 voru þær 213 en á þessu ári alls 433. Í Reykja­vík eru sér­deildir fyrir ein­hverf börn í sex grunn­skólum en í þeim eru alls 58 pláss. For­eldrar gagn­rýna úrræða­leysi, skort á upp­lýs­inga­gjöf og það að plássum í sér­deild hafi ekki fjölgað í sam­ræmi við grein­ingar.

Öll eiga skilið að fá þá aðstoð sem þau þurfa

Ellen Harpa Krist­ins­dóttir, móðir 6 ára drengs með dæmi­gerða ein­hverfu­grein­ingu, mál­þroska­röskun og væga þroska­röskun, lýsir áhyggjum sínum af ástand­inu í skóla­kerf­inu í sam­tali við Kjarnann. Sonur hennar fékk á dög­unum fyr­ir­hug­aða synjun fyrir næsta skólaár og hefur það valdið fjöl­skyld­unni miklum áhyggjum.

Umsækj­endum gefst tæki­færi til að and­mæla synj­un­inni og það ætlar Ellen að gera. Hún segir að staðan sé þó erfið og lýsir hún ástand­inu sem von­lausu. Eins og fram hefur komið munu ein­ungis 8 börn af 38 fá pláss í sér­deild og þýðir það þá að þessi 38 berj­ist um sömu plássin. Einnig er vert að nefna að þessi 8 pláss eru ekki ein­ungis fyrir 1. bekkjar nema heldur fyrir nem­endur á öllum grunn­skóla­aldri.

„Auðvitað vil ég að barnið mitt fái pláss en ég veit að aðrir for­eldrar eru í mjög svip­aðri stöðu. Það að við and­mælum þess­ari nið­ur­stöðu þýðir ekki að mitt barn eigi þetta endi­lega eitt­hvað meira skilið en önnur börn. Þau eiga öll skilið að fá þá aðstoð sem þau þurfa.“

Upplýsingagjöf í molum

Ellen segir að allir sér­fræð­ingar sem hún hafi talað við hafi metið það þannig að dreng­ur­inn hennar þyrfti á stuðn­ingi að halda og mæltu með því fyrir hann að fara í sér­deild eða í sér­skóla.

Þannig stóðu tveir mögu­leikar, fyrir utan almennan skóla, drengnum til boða; að fara í sér­deild eða í Kletta­skóla, sem er sér­skóli fyrir nem­endur með þroska­hömlun og við­bót­ar­fatl­anir. Ellen segir að dreng­ur­inn hennar hafi sýnt miklar fram­farir í ýmsum sviðum und­an­farið og því myndi sér­deild henta honum einkar vel. „Þar gæti hann fengið að vera með krökkum og að skipta um umhverfi. Fyrir mér var þetta aug­ljóst val. Í Kletta­skóla eru krakkar aftur á móti með svo mik­inn stuðn­ing að ég sé ekki fyrir mér að strák­ur­inn minn myndi passa þar inn.“

Ellen gagn­rýnir harð­lega að ekki sé meiri upp­lýs­inga­gjöf til for­eldra. Hún seg­ist í raun ekki vita hvað tekur við næst eða hvað standi til boða fyrir son hennar í stað­inn fyrir sér­deild­ina. Gert er ráð fyrir því að þau börn sem fá synjun um pláss í sér­deild fari í hverf­is­skóla með stuðn­ingi.

Þetta telur hún skjóta skökku við.

„Þetta er bara orðið lottó“

Hvernig líst þér á að strák­ur­inn þinn fari í hverf­is­skól­ann með stuðn­ingi?

„Bara mjög illa,“ svarar Ellen um hæl og viðrar áhyggjur sínar vegna þessa. „Ef þau ætla að segja nei við 30 krakka og bjóða stuðn­ing í hverf­is­skóla þá skil ég ekki hvernig þau ætla að manna þær stöður. Er til svona mikið af fag­fólki í borg­inni sem getur sinnt 30 mis­mun­andi börnum í stað­inn fyrir að hafa sér­deild með fag­að­ila sem sér um þennan stuðn­ing? Þetta er bara orðið lottó – hvort þú fáir góðan stuðn­ing eða ekki.“

Ellen óskaði eftir fundi þegar fjöl­skyldan fékk þessa fyr­ir­hug­uðu synjun til þess að óska eftir svörum varð­andi fram­haldið. Sá fundur verður í byrjun næstu viku en á mánu­dag­inn næst­kom­andi rennur út frestur til að and­mæla synj­un­inni.

Fólk búið að fá nóg

Þroska­hjálp hélt opinn fund um málið í vik­unni og þar komu fram hin ýmsu sjón­ar­mið for­eldra barna með sér­þarfir. Margir lýstu yfir áhyggjum sínum af ástand­inu og ótt­uð­ust að börn þeirra fengju ekki þá aðstoð sem þau þyrftu. Uppi voru vanga­veltur hvort gott væri fyrir börn með ein­hverfu að vera inn í almennum bekk ef stuðn­ings­að­ilar hefðu ekki sér­staka menntun eða reynslu til að sinna þessum börnum.

Fólk er búið að fá nóg, að mati Ellenar. Hún segir að fólk kvíði fram­tíð­inni. Öll upp­lýs­inga­gjöf sé af skornum skammti, bæði hvað umsókn­ar­ferli varðar sem og eft­ir­mála. „Allt er þetta rosa­lega óskýrt. Þú veist ekk­ert hvort eða hvenær þú eigir von á plássi.“

Hugmyndin um „skóla án aðgreiningar“ hljómar vel, að mati Ellenar, ef til staðar sé nægilegur stuðningur.
Hug­myndin um „skóla án aðgrein­ingar“ hljómar vel, að mati Ellenar, ef til staðar sé nægi­legur stuðn­ingur.

Verður að vera val um úrræði

Ellen segir að hug­myndin um „skóla án aðgrein­ingar“ hljómi vel ef til staðar sé nægi­legur stuðn­ingur. „Við búum á litlu landi og það er bara ákveðið margt fag­fólk í þessu fagi, þroska­þjálfar og aðrir. Mér finnst per­sónu­lega að það væri skyn­sam­legra að sér­deildir væru til staðar með pott­þéttu fólki. Svo þetta væri ekki svona mikið lott­erí.“

Bendir hún enn fremur á að hópur ein­hverfra sé mjög fjöl­breyttur – og þess vegna sé gott að geta valið á milli úrræða. „Það er flott að hafa alla þessa þrjá kosti: Sérskóla, sér­deild eða stuðn­ing í bekk. En það verður að vera hægt að velja um þessa kosti. Ekki að öllum sé bara hent í eitt­hvað.“

Fólki býðst að halda umsókn sinni virkri

Í svari Reykja­vík­ur­borgar við fyr­ir­spurn Kjarnans hvernig valið sé á milli umsókna segir að við inn­ritun í ein­hverfu­deild sé nem­endum for­gangs­raðað eftir hamlandi ein­kennum ein­hverfu og að tekið sé mið af inn­sendum gögnum frá for­eldrum með umsókn­inni, svo og vett­vangs­at­hugun fag­fólks.

Áréttað er í svar­inu að engri umsókn í ein­hverfu­deild hafi form­lega verið synjað en umsóknir fyrir næsta skólaár séu nú í vinnslu. Bent er á að vel á fimmta hund­rað börn á ein­hverfu­rófi séu í almennum bekkj­ar­deildum í grunn­skólum borg­ar­innar.

„For­eldrar sem sótt hafa um inn­göngu fyrir börn sín í ein­hverfu­deild fengu til­kynn­ingu um fyr­ir­hug­aða synjun en hafa and­mæla­rétt til og með 3. maí næst­kom­andi og því er ekki enn búið að synja neinum form­lega né bjóða neinum pláss. Það verður gert eftir 3. maí. Öllum umsækj­endum býðst að halda umsókn sinni virkri þegar pláss í ein­hverfu­deild losnar en tekið er inn í þær árlega og eru nem­endur á öllum aldri. Þeir nem­endur sem fá synjun munu geta inn­rit­ast í almennan grunn­skóla og býðst þeim þar mik­ill stuðn­ingur. Ein­hverjir þess­ara nem­enda munu kom­ast í sér­deild síðar en ljóst er að synja þarf 30 af 38 umsækj­endum á næsta skóla­ári,“ segir í svar­inu.

Þá kemur jafn­framt fram að reynslan sýni að margir for­eldrar nem­enda sem ekki kom­ast inn í ein­hverfu­deild og fara í almennan skóla dragi umsókn sína síðar til baka því reynslan af almennum skóla komi þeim mjög á óvart og nem­endum líði yfir­leitt mjög vel í almennri bekkj­ar­deild.

Öllum umsækjendum býðst að halda umsókn sinni virkri þegar pláss í einhverfudeild losnar en tekið er inn í þær árlega og eru nemendur á öllum aldri, segir í svari Reykjavíkurborgar. Mynd: Birgir Þór
Öllum umsækj­endum býðst að halda umsókn sinni virkri þegar pláss í ein­hverfu­deild losnar en tekið er inn í þær árlega og eru nem­endur á öllum aldri, segir í svari Reykja­vík­ur­borgar. Mynd: Birgir Þór

„Misskilningur“ að einhverfudeild sé framtíðarúrræði

Full­trúar Reykja­vík­ur­borgar voru á fund­inum með Þroska­hjálp í vik­unni og segir í fyrr­nefndu svari að til­gangur fund­ar­ins hafi verið sam­tal við for­eldra um mál­efni ein­hverfra barna og fram­tíð þeirra í almennum skólum. Í þeim sé unnið sam­kvæmt stefnu og alþjóða­sam­þykktum um menntun án aðgrein­ingar, og eins og komið hefur fram eru vel á fimmta hund­rað ein­hverf börn í grunn­skólum Reykja­víkur.

„Varðandi met­fjölda umsókna í ein­hverfu­deild þetta haustið þá er margt sem kemur til, svo sem auknar grein­ingar og að hluta til mis­skiln­ingur um að ein­hverfu­deild sé fram­tíð­ar­úr­ræði, en mark­mið þeirra er að nem­endur þeirra fari í almennar bekkj­ar­deildir,“ segir í svari Reykja­vík­ur­borgar.

Stendur til að fjölga plássum í ein­hverfu­deild vegna þess­arar eft­ir­spurnar?

„Þessi mál eru í stöðugri skoðun og nú er unnið að stofnun ein­hverfu­deildar í Rétt­ar­holts­skóla.“

Almennt skortur á sérmenntuðu starfsfólki í skólum

Kjarninn hafði sam­band við Ein­hverfu­sam­tökin og spurði hvað virk­aði vel í skóla­kerf­inu fyrir ein­hverf börn, að þeirra mati, og hvað mætti betur fara.

Fram­kvæmda­stjóri Ein­hverfu­sam­tak­anna, Sigrún Birg­is­dóttir, segir að svarið sé ekki ein­falt – það sé ein­stak­lings­bundið hvað virkar.

„Fyrir sum börn er nóg að fá stuðn­ing inn í bekk, þ.e. ef aðstæður þar eru góðar og bekk­ur­inn ekki of fjöl­mennur. Önnur börn þurfa sér­deild í sumum tímum en geta verið inni í bekk í öðrum. Svo eru sum börn með miklar og flóknar stuðn­ings­þarfir og ná engan veg­inn að höndla dag­inn inni í almennum bekk,“ segir hún í skrif­legu svari til Kjarnans.

Bendir hún á að almennt sé skortur á sér­mennt­uðu starfs­fólki í skólum en þar er hún að tala um þroska­þjálfa, iðju­þjálfa og sér­kenn­ara. Æskilegt væri að einnig færi fram sjúkra­þjálfun, iðju­þjálfun og tal­þjálfun í skólum svo ekki þyrfti að sækja börnin og slíta sundur dag­inn til að fara í þessa tíma.

Mikil vinna sem þarf að fara fram í skólum ef þeir eiga að vera fyrir alla

Sigrún segir að hér séu bekkir almennt of fjöl­mennir, stuðn­ingur of lít­ill og aðstæður þar sem eru opin rými og kennt í stórum hópum henti í raun ekki neinum börnum. Bekkir þurfi að vera fámennir og hús­næðið hent­ugt, þ.e. líta verði til hljóð­vistar og lýs­ingar. Nauð­syn­legt sé að hafa afdrep eða her­bergi þangað sem börnin geta farið þegar áreitið inni í bekk er orðið of mikið.

„Það er mis­mun­andi eftir skólum hvernig aðbún­aður er. Ef skól­inn á að vera fyrir alla, án aðgrein­ingar, þá er ansi mikil vinna sem þarf að fara fram í flestum ef ekki öllum skólum,“ segir hún að lokum í svari sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið undanfarið ár