Í gær opnaði Dunkin Donuts á Laugarvegi. Áformað er að tveir af 16 nýjum veitingastöðum undir merkjum Dunkin Donuts opni fyrir áramót.
Sérfræðingur í lýðheilsumálum hjá Landlæknisembættinu varar við því að aukið aðgengi að sykruðum og feitum kleinuhringjum sé líklegt til að auka neyslu á þeim.
„Þetta er ekki jákvæð þróun,“ segir Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar á sviði áhrifaþátta heilbrigðis hjá Landlæknisembættinu.
Líklegt til að auka neyslu á óhollustu
„Auðvitað er það áhyggjuefni ef aðgengi að óhollustuvöru er aukið en aðgengi og verð er það sem hefur mest áhrif á neyslu. Við vildum frekar sjá að ýtt væri undir ávaxta- og grænmetisframboðið og einnig á heilkornavörum. Neysla á þessum fæðutegundum stuðlar að góðri heilsu og vellíðan og þannig má minnka líkur á ýmsum langvinnum sjúkdómum auk þess sem auðveldara er að viðhalda heilsusamlegu holdafari,“ segir Hólmfríður.
Á matseðli Dunkin Donuts má finna sykraða drykki og kleinuhringi, en einnig ýmsar samlokur. „Boðið verður upp á mikið úrval af kleinuhringjum og samlokum, meðal annars heilsusamlokum,“ segir Árni Pétur Jónsson, framkvæmdastjóri 10-11, sem á rekstur Dunkin Donuts á Íslandi. Þá verði til sölu heitir og kaldir drykkir sérstaklega fyrir börn.
Lækkun sykurskatts hafði ekki áhrif
„Í framtíðinni reiknum við með því að opna staði í 10-11 og hjá bensínstöðvum Skeljungs. Þetta mun ekki hafa áhrif á önnur vörumerki 10-11,“ segir hann.
Að sögn Árna Péturs hafði afnám á vörugjöldum á sykruð matvæli ekki áhrif á komu Dunkin Donuts til Íslands, en með þeim lækkaði skattur á sykur um 210 krónur.
„Afnám sykurskattsins hafði ekki afgerandi áhrif á ákvörðun okkar enda er þetta búið að vera nokkurra ára ferli að fá Dunkin Donuts til Íslands,“ segir Árni Pétur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir