Þungavigtarfólkið skiptist á milli Magnúsar og Oddnýjar

Enginn núver­andi þing­maður eða borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur lýst yfir stuðn­ingi við fram­boð Helga Hjörvar, þing­flokks­for­manns. Árni Páll Árnason ætlar ekki að lýsa opin­ber­lega yfir stuðn­ingi við neinn fram­bjóð­anda.

Samfylkingin fær nýjan formann á föstudag. Mjótt virðist vera á munum milli Oddnýjar Harðardóttur og Magnúsar Orra Schram, ef marka má fjölda stuðningsmanna.
Sam­fylk­ingin fær nýjan for­mann á föstu­dag. Mjótt virð­ist vera á munum milli Oddnýjar Harð­ar­dóttur og Magnúsar Orra Schram, ef marka má fjölda stuðn­ings­manna. Mynd: Samfylkingin

Áhrifa­fólk í Sam­fylk­ing­unni virð­ist skipt­ast nokkuð jafnt á milli Magnúsar Orra Schram og Oddnýjar G. Harð­ar­dóttur í for­manns­kjör­inu sem nú stendur yfir. Enginn þing­maður eða borg­ar­full­trúi hefur lýst yfir form­legum stuðn­ingi við Helga Hjörvar eða Guðmund Ara Sig­ur­jóns­son.

Árni Páll Árnason, frá­far­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, ætlar ekki að taka afstöðu til stakra fram­bjóð­enda.

„Það er offram­boð í íslenskum stjórn­málum af fyrr­ver­andi for­mönnum sem þvæl­ast fyrir eft­ir­mönnum sínum. Flokks­fólk á að taka sína afstöðu án afskipta frá mér,” segir Árni Páll við Kjarnann.

Magnús með Össur og Oddný með Jóhönnu

Meðal þeirra sem hafa lýst yfir stuðn­ingi við fram­boð Magnúsar Orra eru Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri og fyrr­ver­andi vara­for­maður flokks­ins, Katrín Júl­í­us­dóttir, frá­far­andi vara­for­maður, þing­maður og fyrr­ver­andi ráð­herra, Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi for­maður og ráð­herra flokks­ins, Val­gerður Bjarna­dóttir þing­kona, og Vil­hjálmur Þor­steins­son, fyrr­ver­andi gjald­keri flokks­ins.

Meðal stuðn­ings­manna Oddnýjar eru Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður og for­sæt­is­ráð­herra flokks­ins, þing­kon­urnar Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir og Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, Hjálmar Sveins­son borg­ar­full­trúi og Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra og fram­kvæmda­stýra flokks­ins.

Áhrifakonur gagnrýna framboð harðlega

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður og ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur gagn­rýnt for­manns­fram­boðin, þar sem hún sagði að „for­ystu­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Lands­dóms­mál­inu hefur stigið fram og telur sig vel til for­ystu fall­inn.” Þar vísar hún í að Magnús Orri og Oddný greiddu atkvæði um að draga hana ásamt fleiri ráð­herrum fyrir Landsdóm.

Margrét Frí­manns­dóttir, fyrr­ver­andi tals­maður flokks­ins þegar hann var stofn­aður, sagði við RÚV á dög­unum að for­manns­fram­bjóð­end­urnir væru ekki ferskir og ekki það sem þurfi til að ná Sam­fylk­ing­unni upp úr þeirri djúpu kreppu sem hún er í.

For­manns­kjörið hófst á hádegi laug­ar­dag­inn síð­ast­lið­inn með raf­rænni kosn­ingu og verður til­kynnt um nýjan for­mann klukkan 18 næst­kom­andi föstu­dag, 3. júní. Lands­fundur hefst á hádegi þann dag og stendur í tvo daga. Á kjör­skrá eru um 17 þús­und manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár