Íslenskir ráðamenn bregðast við Brexit

Utan­rík­is­ráð­herra segir jákvætt að leyfa fólki að kjósa í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslum og úrsögn Breta úr ESB geti líka styrkt sam­keppn­is­stöðu. Bjarni Bene­dikts­son segir aðild Íslands að ESB nú enn fjar­læg­ari hug­mynd.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra segir að það sé alltaf jákvætt að leyfa fólki að kjósa, sama hver niðurstaðan verður.
Lilja Dögg Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra segir að það sé alltaf jákvætt að leyfa fólki að kjósa, sama hver nið­ur­staðan verður. Mynd: EPA

Útflutn­ingur til Bret­lands getur dreg­ist saman og breskum ferða­mönnum fækkað hér á landi eftir að Bretar tóku þá ákvörðun að segja sig úr Evr­ópu­sam­band­inu (ESB). Pundið hefur verið í frjálsu falli í morgun. Þetta sagði Lilja Dögg Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra í fréttum RÚV í gær­kvöld þegar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan stóð yfir.

Á Bylgj­unni í morgun sagði Lilja að þó að fólk hefði miklar áhyggjur af stöðu mála megi ekki gleyma því að sam­keppn­is­staða geti líka styrkst með úrsögn. Það sé jákvætt að gefa fólki tæki­færi á að kjósa.

„Það varð ákveðið bil á milli hins venju­lega manns og ESB, maður sér hvernig atkvæðin dreifast,“ sagði hún. „Það er lands­byggðin sem vill ekki vera í ESB.“

Lilja sagði á RÚV í gær að búið væri að vinna hags­muna­mat í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og kort­leggja mögu­leik­ana sem eru uppi hvernig Ísland kemur út hvað varðar úrsögn Bret­lands.

Aðild Íslands nú enn fjarlægari hugmynd

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra, segir við MBL.is í morgun að í ljósi tíð­ind­anna sé aðild Íslands að ESB nú enn fjar­læg­ari hug­mynd en áður. Hann segir tíð­indin stór og póli­tísk, ekki bara fyr­ir Bret­landi held­ur fyr­ir Evr­ópu­sam­vinn­una alla.

„Þetta er mjög lýs­andi fyr­ir það sem hef­ur verið að ger­ast und­an­far­in ár þar sem við höf­um séð átök milli þess arms inn­an Evr­ópu­sam­vinn­unn­ar sem hef­ur viljað stöðugt meiri sam­runa og dýpri sam­vinnu og hinna, sem hafa verið að sækja mjög í sig veðrið bæði í Evr­ópu­þings­kosn­ing­un­um en líka í flokkapóli­tík ein­stakra aðild­ar­landa­landa, sem hafa sagt hingað og ekki lengra og telja rík­in hafa gengið of langt í sam­vinn­unni. Þetta byrj­aði sem friðar- og toll­við­skipta­sam­band og að mati margra á að halda sig við þann kjarna sam­vinn­unn­ar og hætta að skipta sér of af dag­legu lífi fólks,“ segir Bjarni við MBL.

Nauðsynlegt að semja upp á nýtt

Í sam­tali við Kjarnann í vik­unni benti Lilja á að Bretland er eitt mik­il­væg­asta við­skipta­land Íslands, enda fari um tíu pró­sent af öllum útflutn­ingi til Bret­lands og 20 pró­sent af öllum erlendum ferða­mönnum hér koma þaðan.

„Við munum tryggja að við munum fá sam­bæri­leg við­skipta­kjör og við nú þegar búum við,“ segir Lilja. „Mik­il­vægi Bret­lands í alþjóða­við­skiptum er svo mikið þannig að ESB og lönd utan þess munu aðlaga sig að breyttum aðstæðum.“

Sigmundur hefur alltaf haft áhyggjur af ESB

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, setti stöðu­færslu á Facebook síðu sína í nótt þar sem hann sagði okkur lifa á sögu­legum tímum og hann hafi lengi haft áhyggjur af ESB.

„Frá því að ég hóf að fylgj­ast með stjórn­málum hef ég haft áhyggjur af Evr­ópu­sam­band­inu (áður Evr­ópu­banda­lag­inu), eðli þess og þróun. Ég kveið árinu 1992 vegna þess að það ár stóð til að und­ir­rita Maastricht-sátt­mál­ann. Það gekk eftir og grunnur var lagður að evr­unni og annarri sam­runa­þróun sem að mínu mati var og er hættu­leg.“ Hann sagð­ist þó hafa haft mestar áhyggjur af veru Breta í ESB og landið hafi aldrei passað inn í sam­bandið.

„Það skiptir alla miklu máli að það gangi vel að vinda ofan af áformum um aukið yfir­þjóð­legt vald og sam­runa Evr­ópu­sam­bands­ins en að um leið tak­ist að standa vörð um sam­vinnu Evr­ópu­landa. Þar getur Ísland gegnt mik­il­vægu hlut­verki.

Við bárum gæfu til að hverfa frá áformum um að ganga í ESB. Nú ættum við að hafa for­göngu um að nálg­ast Bretland fyrir okkar hönd og EFTA og sýna strax að vilji okkar standi til að við­halda góðu sam­starfi og byggja til fram­tíðar á góðri sam­vinnu og við­skiptum sjálf­stæðra ríkja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár