Undirbúa botnrannsóknir vegna nýs fjarskiptasæstrengs milli Íslands og Evrópu

Fjar­skipta­sjóður og Farice ehf. und­ir­rit­uðu 21. des­em­ber síð­ast­lið­inn þjón­ustu­samn­ing vegna árs­ins 2019 en félagið á og rekur fjar­skipta­sæ­streng­ina FARICE-1 og DANICE sem tengja Ísland við Evrópu. Kjarninn leit yfir sögu sæstrengj­anna tveggja.

Sæstrengur
Sæstrengur Mynd: Úr safni

Fjar­skipta­sjóður og Farice ehf. und­ir­rit­uðu 21. des­em­ber síð­ast­lið­inn þjón­ustu­samn­ing vegna árs­ins 2019 en félagið á og rekur fjar­skipta­sæ­streng­ina FARICE-1 og DANICE sem tengja Ísland við Evrópu.

Þetta kemur fram í frétt sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Með samn­ingnum tekur Farice að sér meðal ann­ars und­ir­bún­ing og fram­kvæmd botn­rann­sókna sem eru nauð­syn­legur þáttur í und­ir­bún­ingi lagn­ingar á nýjum fjar­skipta­sæ­streng milli Íslands og Evrópu.

Vinna við und­ir­bún­ing verk­efn­is­ins er þegar hafin. Gert er ráð fyrir að rann­sókn­ar­skip ljúki kort­lagn­ingu sjáv­ar­botns síðla sum­ars með það fyrir augum að heild­stæð nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar liggi fyrir fljót­lega í kjöl­farið.

Vinna sér­fræð­inga Farice felst meðal ann­ars í því að leita eftir, meta og nýta eftir atvikum fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar og gögn sem flýtt geta fram­kvæmd verk­efn­is­ins og stuðlað að hag­kvæmni.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um næstu skref að botn­rann­sóknum loknum, segir í frétt­inni. Þá kemur fram hjá ráðu­neyt­inu að einka­að­ilar hafi um langt ára­bil kynnt áform um lagn­ingu á sæstrengjum hingað til lands án þess að slíkum áformum hafi verið hrint í fram­kvæmd.

FARICE-1 lagður sumarið 2003

Á vef­síðu Farice ehf. kemur fram að fyr­ir­tækið hafi verið stofnað form­lega í nóv­em­ber 2002 af nokkrum fjar­skipta­fyr­ir­tækjum á Íslandi og í Færeyjum en íslenska ríkið tók einnig þátt í stofnun fyr­ir­tæks­ins. Hlutur íslenskra aðila var 80 pró­sent en Fær­ey­inga 20 pró­sent. Til­gangur fyr­ir­tæks­ins var að leggja sæstreng sem síðar fékk nafnið FARICE-1 sem lagður var sum­arið 2003 og fór form­lega í rekstur í jan­úar árið 2004.

Fimm árum síðar lagði fyr­ir­tækið DANICE sæstreng­inn til Dan­merkur. Fyr­ir­tækið sem fær nafn sitt af Færeyjum og Íslandi er nú langstærsti aðil­inn í sölu á sam­böndum milli Íslands og útlanda, segir á vef­síðu þeirra. „Við­skipta­vinir eru fjar­skipta­fyr­ir­tæki hvers­konar og stærri við­skipta­vinir gagna­vera. Farice ehf. starfar þannig á heild­sölu­mark­aði þegar kemur að íslenska mark­aðnum.“

Ísland með einn sæstreng tengdan landinu 2002

Ísland var ein­ungis með einn sæstreng CANTAT-3 tengdan land­inu árið 2002 þegar fyr­ir­tækið Farice hf. var stofnað. Til vara voru gervi­hnatta­sam­bönd sem lá fyrir að réðu ekki lengur við þann gagna­hraða sem lands­menn þurftu né full­nægðu kröfum um flutn­ings­seinkun. CANTAT-3 fór í rekstur 1994 og var fyrsti og jafn­framt síð­asti atl­ants­hafs­streng­ur­inn sem not­aði SDH tækni og var með raf­mögn­urum á leið­inni í stað ljós­magn­ara sem eru nú alls­ráð­andi og komu fram á sjón­ar­sviðið 1998 til 1999. Sú aðferð er í grund­vall­at­riðum enn notuð á sama hátt og var bylt­ing sem gerði raf­magn­ara úrelta, sam­kvæmt Farice.

Síminn hafði hafið und­ir­bún­ings­vinnu að nýjum sæstreng árið 2000 einir og sér. Í því skyni að fá fleiri hags­muna­að­ila að verk­efn­inu var PWC Consulting fengið til að verk­efna­stýra und­ir­bún­ingi. Nýi streng­ur­inn sem fékk nafnið FARICE-1 var lagður frá Seyð­is­firði á Íslandi til Dunnet Bay í Skotlandi með auka­grein til Funn­ings­fjarðar í Færeyjum.

Þetta var fyrsti sæstreng­ur­inn sem var lagður frá Íslandi sem var meiri­hluta­eigu inn­lendra aðila þrátt fyrir að vera fjórði sæstreng­ur­inn frá upp­hafi. FARICE-1 sæstreng­ur­inn var form­lega opn­aður í jan­úar 2004. Upp­haf­leg hönnun gerði ráð fyrir að þetta væri strengur með 2x360 Gb/s hámarks­flutn­ings­getu. Upp­haf­leg virkjuð band­vídd var 2x10Gb/sfrá Íslandi til Dunnet Bay. 

Á vef­síðu Farice kemur enn fremur fram að miklar fram­farir í ljós­leið­ara­enda­bún­aði síðan 2003 hafi hins vegar marg­faldað getu FARICE-1 og lengt líf­tíma strengs­ins um mörg ár í við­bót. Strengur eins og FARICE-1 sé hann­aður til að lifa í 25 ár.

Lengd FARICE-1 1205 km

Lengd FARICE-1 á beinni leið til Skotlands er 1205 kíló­metrar. Frá strengnum liggur 200 kíló­metra leið til Færeyja og er unnt að tengj­ast honum í Þórshöfn. Nafn strengs­ins FARICE-1 bendir til þess að áform hafi verið uppi um að byggja FARICE-2, þ.e. annan streng með við­komu í Færeyjum. Það varð ekki úr og Fær­ey­ingar byggðu árið 2008 eigin streng, sem kall­að­ist SHEFA-2, með við­komu í Hjaltland­sejum og Okneyjum til Banff í Skotlandi. Rekstur SHEFA-2 hefur ekki verið áfalla­laus, sam­kvæmt Farice, og ítrekað slitnað, – einkum vegna fisk­veiða. Hafa Fær­ey­ingar þurft að end­ur­bæta útfærslu hans síðar.

Í jan­úar 2007 hófst form­legur und­ir­bún­ingur að næsta sæstreng Íslend­inga. Skipaður var stýri­hópur og verk­efn­is­stjóri ráð­inn til verks­ins. Ítrek­aðar bil­anir í CANTAT-3 og fyr­ir­séður skortur á flutn­ings­getu hans ásamt auknum kröfum íslenska sam­fé­lags­ins til áreið­an­legra gagna­teng­inga kall­aði á úrbætur.

Eftir að nokkrar til­lögur að leið­ar­vali lágu fyrir í skýrslu í apríl 2007 hófst næsti fasi verk­efn­is­ins á þann hátt að fyr­ir­tækið Farice ehf. tók form­lega yfir verk­efnið eða rétt­ara sagt fyr­ir­tækið E-Farice ehf. sem var eign­ar­halds­fé­lag íslensku eig­end­anna að Farice ehf. Skoðaðir voru lend­ing­ar­staðir á Írlandi, Bret­landi, Hollandi, þýska­landi og Danmörku.

Nýi streng­ur­inn sem fékk nafnið DANICE tók við af CANTAT-3 á Íslandi þegar hann fór í rekstur haustið 2009 enda afkasta­geta CANTAT-3 sem var 2x2,5 Gb/s orðin alltof lítil.

DANICE næstum því tvöfalt lengri

DANICE liggur frá áður­nefndum stað í Danmörku til suð­ur­strandar Íslands, rétt austan við Vest­manna­eyjar. Lend­ing­ar­staður var val­inn með til­liti til lág­mörk­unar á áhættu í ljósi þess hvar fyrri strengur nam landi á Aust­fjörðum. Var stað­setn­ing vand­lega valin í sam­starfi við jarð­vís­inda­menn og útgerða­fé­lög. Það þótti einnig nauð­syn­legt að færa hann nokkuð austan megin við Markár­fljót og einnig má sjá streng­inn taka beygju til vest­urs áður en hann tekur stefn­una í austur átt. Þetta var til að minnka hættu sem að til dæmis Kötlugos getur valdið vegna botns­kriða.

Streng­ur­inn er 2304 kílómatra langur og er því nálægt tvö­falt lengri en FARICE-1. Hann er útbú­inn fjórum ljós­leið­ar­a­pörum. Upp­haf­leg hámarks­flutn­ings­geta strengs­ins var 5120 Gb/s (5,1 Tb/s) og í upp­hafi voru 10x10Gb/s virkjuð. Enda­bún­aður sem var frá Subcom hefur verið skipt út fyrir nýrri kyn­slóð bún­aðar frá CIENA. Streng­ur­inn er stækk­aður nú í skref­unum 1x100 Gb/s sem er svokölluð bylgju­lengd sem tekur 50GHz í tíðnirófi ljóss.

Lagning DANICE hófst í ágúst 2008 en ekki náð­ist að klára lagn­ingu vegna erf­iðra haust­veðra. Var því lagn­ingu frestað fram á sum­arið 2009. Um svipað leiti og DANICE var lagður var Greenland Connect streng­ur­inn lagður til Græn­lands og þaðan til Kanada. Hann er í eigu Tele Greenland. DANICE streng­ur­inn er eins­konar fram­leng­ing á Greenland Connect til Evrópu og samnýta strengirnir sömu kap­al­lend­ing­ar­stöð við Land­eyja­sand.

Heim­ildir: www.farice.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár