Mannréttindadómstóll Evrópu óskar svara um Al Thani málið frá ríkinu

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hefur sent íslenskum stjórn­völdum bréf þar sem stjórn­völd eru krafin svara við spurn­ingum um Al-Thani málið. Sigurður Ein­ars­son, Hreiðar Már Sig­urðs­son, Ólafur Ólafsson og Magnús Guð­munds­son, sem fengu allir þunga dóma í mál­inu, kærðu það til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins fyrir ári síðan. Auk þess að kæra til dóm­stóls­ins fóru þeir allir fram á end­ur­upp­töku máls­ins hér á landi.

Í bréf­inu sem stjórn­völd hafa nú fengið kemur fram að um for­skoðun á umsókn fjór­menn­ing­anna sé að ræða. Þess er óskað að íslensk stjórn­völd svari fjórum spurn­ingum um málið fyrir 10. októ­ber næst­kom­andi.

Þau eru beðin um að svara til um hæfi Árna Kol­beins­sonar, sem var einn þeirra sem dæmdi í mál­inu, og hvort brotið hafi verið gegn hlut­leysi með því að hann hafi dæmt í mál­inu.

Stjórn­völd eru spurð hvort brotið hafi verið á rétti fjór­menn­ing­anna til þess að hljóta sann­gjarna með­ferð fyrir dómi með því að þeir hafi ekki fengið að leiða þá Al Thani og sheikh Sultan fyrir rétt­inn.

Í þriðja lagi er spurt hvort brotið hafi verið á rétti þeirra til rétt­látrar máls­með­ferðar með til­liti til aðgangs þeirra að gögnum máls­ins, rétt til að and­mæla og hvort þeir hafi fengið nægan tíma til að und­ir­búa málsvörn sína.

Að lokum eru íslensk stjórn­völd spurð hvort frið­helgi einka­lífs þeirra hafi verið brotin þegar sím­töl við verj­endur voru hljóð­rituð og skoðuð.

Al-T­hani mál­ið, sem er eitt umfangs­mesta efna­hags­brota­mál sem komið hefur á borð dóm­stóla hér á landi, á rætur að rekja til hluta­bréfa­kaupa sheikh Mohammad Bin Khalifa Al-T­hani frá Katar hinn 22. sept­em­ber 2008 en félag hans keypti 5,01 pró­senta hlut í Kaup­þingi banka fyrir 25,7 millj­arða króna með láni frá bank­an­um.
Árni Kol­beins­son var skip­aður vara­dóm­ari í mál­inu að því er fram kemur þar. Mál­flytj­endum hafi verið til­kynnt í des­em­ber í fyrra að eig­in­kona hans, Sig­ríður Thor­laci­us, hafi setið í stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins fram í jan­úar 2009. Fjár­mála­eft­ir­litið var með Al Than­i-­málið til rann­sóknar á þeim tíma. Þá var óskað eftir því að mál­flytj­endur gerðu athuga­semdir við setu Árna ef þeir hefðu þær, en svo var ekki gert.

Eftir að dómur var geng­inn sögðu fjór­menn­ing­arnir hins vegar að fram hafi komið upp­lýs­ingar um að sonur Árna hefði starfað sem for­stöðu­maður lög­fræðis­viðs slita­stjórnar Kaup­þings frá 2008 og 2013. Þetta hafi verið nýjar upp­lýs­ingar sem ekki hafi verið upp­lýst um. Hags­munir slita­stjórnar Kaup­þings af sak­fell­ingu þeirra í mál­inu hafi verið aug­ljós­ir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár