Fyrsta frumvarp vegna lífskjarasamninga lagt fram

Rík­is­stjórnin hefur nú lagt fram fyrsta frum­varpið í tengslum við lífs­kjara­samn­ing­ana sem kynntir voru í apríl. Lagðar eru til breyt­ingar á lögum um almennar íbúðir með það fyrir augum að liðka fyrir bygg­ingu nýrra íbúða í almenna íbúða­kerf­inu.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fyrsta frumvarp ríkisstjórnarinnar í tengslum við lífskjarasamningana hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Frumvarpið leggur til breytingar á lögum um almennar íbúðir en í tilkynningu frá Félagsmálaráðuneytinu segir að breytingarnar séu lagðar fram til að bæta húsnæðisöryggi og lækka húsnæðiskostnað tekju- og eignalágra leigjenda.

Koma tillögum átakshópsins til framkvæmda

[links]Rík­is­stjórnin lagði fram aðgerðir að umfangi 80 millj­arða til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga á almennum vinnu­mark­aði í apríl síð­ast­liðnum. Aðgerð­irnar eru í 38 liðum, þar af snúa 13 liðir að hús­næð­is­málum. Einn þess­ara liða snýr að inn­leið­ingu til­lagna átaks­hóps um hús­næð­is­mál sem lag­aðar voru fram í jan­úar síð­ast­liðnum. Til­lag­anna var beðið með umtals­verðri eft­ir­vænt­ingu enda þóttu mögu­legar aðgerðir yfir­valda í hús­næð­is­málum vera lyk­il­breytan í því að höggva á þann hnút sem til staðar var í kjara­við­ræð­unum.

Hópurinn vann grein­ingu á þörf fyrir íbúðum á lands­vísu en sam­kvæmt grein­ing­unni lá fyrir að mikið af þeim íbúðum sem voru í bygg­ingu hent­uðu ekki þeim hópum sem eru í mestum vand­ræðum á hús­næð­is­mark­aði, þ.e. tekju- og eigna­lágum.

Hópurinn lagði því fram alls 40 til­lögur sem mið­uðu meðal ann­ars að því að hag­kvæm­um íbúðum á við­ráðan­legu verði fyr­ir tekju­lága yrði fjölgað. Þar á meðal til­lögur að áfram­hald­andi upp­bygg­ingu al­menna íbúða­kerf­is­ins og upp­bygg­ingu óhagn­að­ar­drif­inna hús­næðis­fé­laga að nor­rænni fyr­ir­mynd. Auk þess lagði hóp­ur­inn áherslu á leiðir til þess að lækka bygg­ing­ar­kostnað og stytta bygg­ing­ar­tíma.

Lagt fram til að liðka fyrir fjölgun nýbygginga

Með fyrr­greindu frum­varpi félags­mála­ráð­herra er mark­miðið að koma fjórum til­lögum átaks­hóps­ins til fram­kvæmda til sam­ræmis við skuld­bind­ingar rík­is­stjórn­ar­innar vegna lífs­kjara­samn­ing­anna. Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu kemur jafn­framt fram að unnið sé að nán­ari útfærslu ann­arra til­lagna átaks­hóps­ins sem snúa að almenna íbúða­kerf­inu og stefnt sé að því að frum­varp þar að lút­andi verði lagt fram á Alþingi haustið 2019.

Frum­varpið sem nú liggur fyrir í sam­ráðs­gátt var samið í félags­mála­ráðu­neyt­inu og Íbúða­lána­sjóði. Í frum­varp­inu er til ýmsar breyt­ingar á lögum um almennar íbúðir sem tóku gildi 15. júní 2016 með það fyrir augum að liðka fyrir fjölgun nýbygg­inga í almenna íbúða­kerf­inu. Þá er meðal ann­ars lagt til að sér­stakt byggða­fram­lag, sem standi þá ein­ungis sveit­ar­fé­lögum, félögum, þar með talið hús­næð­is­sjálfs­eign­ar­stofn­unum, og félaga­sam­tökum sem ekki eru rekin í hagn­að­ar­skyni og hafa það sem lang­tíma­mark­mið að eiga og hafa umsjón með rekstri leigu­í­búða til boða, verði veitt.

Hægt að sækja um stofnframlög vegna verkefna sem þegar eru hafin

Þá eru lagðar til ýmsar breyt­ingar til að lækka fjár­magns­kostnað stofn­fram­lags­hafa, þar á meðal er lagt til að heim­ila umsækj­endum að sækja um stofn­fram­lög vegna verk­efna sem þegar eru í bygg­ingu. Enn fremur er lagt til að sveit­ar­fé­lögum verði heim­ilað að leggja fram hús­næði sem breyta á í almennar íbúðir sem stofn­fram­lag.

Í frum­varp­inu er einnig lagt til að hækka tekju-og eign­ar­mörk leigj­enda almennra íbúða þannig að hærra hlut­fall lands­manna eigi kost á almennum íbúðum. Lagt er til grund­vallar að í stað þess að mörkin mið­ist við neðri fjórð­ungs­mörk, 25 pró­sent, mið­ist mörkin við tekjur í tveimur lægstu tekju­fimmt­ungum eða 40 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár