Það er hægt að ákæra þá sem sviku undan skatti fyrir áratugum fyrir peningaþvætti

Nið­ur­staða Hæsta­réttar í máli Júlíusar Vífils Ingv­ars­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þar sem hann var dæmdur fyrir pen­inga­þvætti er veru­lega for­dæm­is­gef­andi.

Í síð­asta mán­uði var fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, Júlíus Vífill Ingv­ars­son, dæmdur í sex mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir pen­inga­þvætti í Hæsta­rétti Íslands. Sú fjár­hæð sem er talin vera ólög­mætur ávinn­ingur vegna þvætt­is­ins, þ.e. þeir skattar sem Júl­íus Víf­ill átti að greiða og vextir af því fé, er áætluð á bil­inu 49 til 57 millj­ónir króna.

Það sem er athygl­is­vert í máli Júlíusar Vífils er að hann er dæmdur fyrir svo­kallað sjálf­þvætti, sem varð fyrst refsi­vert hér­lendis í lok árs 2009. Fram að því mátti ein­fald­lega fremja pen­inga­þvætti með ávinn­ing af afbrotum ann­arra. Í sjálf­þvætt­inu felst að það varð bannað að geyma eða flytja ávinn­ing af brotum sem við­kom­andi framdi.

Í máli Júlíusar var um að ræða ávinn­ing sem var mjög gam­all. Frum­brotið, sem í fólst að svíkj­ast undan því að greiða skatta, voru framin á níunda og tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Við rann­sókn máls­ins við­ur­kenndi Júlíus Vífill að hann hefði framið skatta­laga­brot með því að hafa ekki gefið upp til skatts tekjur sem honum hlotn­uð­ust og geymdar voru á aflands­reikn­ing. Júl­íus Víf­ill hefur aldrei viljað upp­lýsa um hvenær umræddra tekna var aflað og því er ekki hægt að segja með vissu hver ávinn­ingur hans af skatta­laga­brot­unum hefur ver­ið. Skatta­laga­brot fyrn­ast hins vegar á sex árum og því voru brot Júlíusar Vífils löngu fyrnd.

Prófmál sem hefur mikið fordæmisgildi

Ákæra hér­aðs­sak­sókn­ara á hendur Júlíusi Vífli var því próf­mál. Embættið vildi kom­ast að því hvort að það gæti ákært ein­stak­linga fyrir að geyma eða flytja ávinn­ing af fyrndu broti fyrir pen­inga­þvætti. Svarið sem fékkst á öllum dóm­stigum hér­lendis var skýrt: Já.

Lögmaður Júlíusar Vífils, Hörður Felix Harð­ar­son, sagði við Við­skipta­blaðið í vik­unni að mál­inu verði lík­lega vísað til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. „Að okkar mati er hér á ferð stórt, for­dæm­is­gef­andi mál. Í því sam­bandi er vert að hafa í huga að fjöldi þeirra mála sem hafa fallið á tíma­frestum í skatt­kerf­inu síð­ast­liðna ára­tugi er án nokk­urs vafa umtals­verður. Af þessum dómi virð­ist ljóst að það sé hægt að taka þau mál upp, svo fram­ar­lega sem gögn séu enn til staðar og skatt­að­il­inn hafi ekki orðið gjald­þrota, og ákæra fyrir pen­inga­þvætti.“

Þetta þýðir ein­fald­lega, miðað við nið­ur­stöðu íslenskra dóm­stóla, að það er til dæmis hægt að ákæra alla þá sem voru opin­beraðir í Panama­skjöl­unum og grun­aðir voru um fyrnd skatta­laga­brot fyrir pen­inga­þvætti ef hægt er að sýna fram á að þeir hafi geymt eða flutt hagnað af þeim frá þeim tíma sem það varð refsi­vert að þvætta ávinn­ing af eigin afbrotum, eða 30. des­em­ber 2009.

Var í Pana­ma­skjöl­unum

Júl­­­­íus Víf­ill var einn þeirra stjórn­­­­­­­mála­­­­manna sem voru opin­beraðir í Pana­ma­skjöl­unum og greint var frá í sér­­­­­­­stökum Kast­­­­ljós­þætti sem sýndur var 3. apríl í 2016. Þar kom meðal ann­­ars fram að hann hefði í árs­­­­byrjun 2014 stofnað félagið Silwood Foundation á Panama. Rík áhersla var lögð á það við stofnun félags­­­­ins að nafn Júl­í­usar Víf­ils kæmi hvergi fram í tengslum við félag­ið, sam­­kvæmt umfjöll­un­inni.

Tveimur dögum áður en að Kast­­ljós­þátt­­ur­inn var sýndur sendi Júl­­íus Víf­ill frá sér yfir­­lýs­ingu þar sem hann sagði að til­­­gang­­ur­inn með stofnun aflands­­fé­lags­ins væri að stofna eft­ir­­launa­­sjóð í Sviss. „Allt sem við kemur þessum sjóði er í sam­ræmi við íslensk lög og regl­­ur, enda naut ég sér­­fræð­i­ráð­gjafar til að tryggja að rétt­i­­lega og lög­­­lega væri að málum stað­ið. Mér var ráð­lagt að skrá stofnun sjóðs­ins í Panama. Ég hef hvorki fengið neitt greitt úr sjóðnum né haft af honum ann­­ars konar tekjur og hef ekki heim­ild til að ráð­stafa fjár­­munum úr hon­­um.”

Júl­­íus Víf­ill sagði af sér sem borg­­ar­­full­­trúi 5. apríl 2016, tveimur dögum eftir að þátt­­ur­inn var sýnd­­ur.

Sak­aðir um að koma ætt­­­ar­auð undan

Syst­k­ini Júl­í­usar Víf­ils og erf­ingjar for­eldra hans hafa sakað hann og bróður hans, Guð­­mund Ágúst Ing­v­­ar­s­­son, um að komið ætt­­­­­ar­auð for­eldra þeirra undan og geymt hann á aflands­­­reikn­ing­­­um. Það gerðu þau meðal ann­­ars í Kast­­ljós­þætti sem sýndur var í maí 2016. Meintur ætt­­a­r­auður eru sjóðir sem urðu til vegna starf­­semi Ing­v­­ars Helga­­sonar hf., sem um ára­bil var eitt stærsta bíla­um­boð lands­ins.

Þessum ávirð­ingum hefur Júl­­íus Víf­ill ávallt hafnað með öllu. Í við­tali við Morg­un­­blaðið í maí 2016 sagði hann þvert á móti að syst­k­ini hans hefðu dregið af sér tugi millj­­óna króna af banka­­reikn­ingi móður þeirra og í yfir­­lýs­ingu sem Júl­­íus Víf­ill sendi frá sér sagði hann að ásak­­anir syst­k­ina sinna væru algjör ósann­indi og ómerki­­leg ill­­mælgi.

Þann 5. jan­úar 2017 kærði skatt­rann­­­­sókn­­­­ar­­­­stjóri Júl­­­íus Vífil til emb­ætti hér­­­­aðs­sak­­­­sókn­­­­ara vegna meintra brota á skatta­lögum og vegna gruns um pen­inga­þvætti. Við síð­­­­­­­ara brot­inu gat legið allt að sex ára fang­els­is­­­­dóm­­­­ur.

Í kærunni kom fram að Júl­­­­íus Víf­ill hafi átt fjár­­­­muni á erlendum banka­­­­reikn­ingum að minnsta kosti frá árinu 2005. Frá árinu 2014 hafi þeir verið hjá svis­s­­­­neska bank­­­­anum Julius Bär í nafni aflands­­­­fé­lags Júl­í­us­­ar Víf­ils.

Ráð­­legg­ingar „svo þetta endi ekki allt í skatti“

Hér­­­­aðs­sak­­­­sókn­­­­ara barst hljóð­­­­upp­­­­­­­taka frá emb­ætti skatt­rann­­­­sókn­­­­ar­­­­stjóra þann 27. mars 2017. Um svipað leyti var sama upp­­­­­­­taka send á fjöl­miðla.

Á upp­­­­tök­unni, sem er af fundi sem fór fram þremur dögum eftir birt­ingu Pana­ma­skjal­anna, mátti heyra Júl­­­­íus Víf­ill og lög­­­­­­­mann hans, Sig­­­­urð G. Guð­jóns­­­­son, ræða um þá fjár­­­­muni sem vistaðir voru í svis­s­­­­neska bank­­­­anum við ætt­­­­ingja Júl­í­usar Víf­ils, sem höfðu ásakað hann um að hafa komið ætt­­­­­­­ar­auð for­eldra sinna undan og geymt á aflands­­­­reikn­ing­­­­um. Júl­­­­íus Víf­ill vildi að Sig­­­­urður G. Guð­jóns­­son myndi verja sig í mál­inu sem hér­­­­aðs­sak­­­­sókn­­­­ari hefur rann­sakað á hendur hon­­­­um. Á það vildi hér­­­­aðs­sak­­­­sókn­­­­ari ekki fall­­­­ast þar sem emb­ættið vildi kalla Sig­­­­urð til skýrslu­­­­töku í mál­inu og það úti­­­­lok­aði ekki að Sig­­­­urður fái stöðu sak­­­­born­ings í því. Ástæðan eru þær ráð­­­­legg­ingar sem Sig­­­­urður veitir á hljóð­­­­upp­­­­tök­unni, um hvernig sé hægt að kom­­­­ast hjá því að greiða fjár­­­­mun­ina til syst­k­ina Júl­í­usar Víf­ils án þess að „þetta endi ekki allt í skatt­i“.

Þessi upp­­­taka átti þátt í því að ákæra var gefin út á hendur Júl­­íusi Vífli og er ferl­inu hér inn­an­lands nú lokið með dómi Hæsta­réttar í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár