Ræningjadrottningin sem fór á þing

Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér magn­aða sögu Phoolan Devi.

Fáar mann­eskjur hafa hrist jafn ræki­lega upp í hinu íhaldsama ind­verska sam­fé­lagi og Phoolan Devi, betur þekkt sem ræn­ingja­drottn­ingin. Hún ólst upp í litlu þorpi í sárri fátækt en vann sig upp alla leið á ind­versku lög­gjaf­ar­sam­kom­una í Delhi. Leiðin var þó þyrnum stráð og harla óhefð­bundin. Saga hennar er blóði drifin og skelfi­leg á köflum en um leið mik­il­væg fyrir lægstu stétt­irnar í Indlandi sem um árhund­ruða skeið áttu sér enga málsvara.

Hið eiginlega Indland

Árið 1947 hélt hinn mikli Mahatma Gandhi ræðu þar sem hann lýsti hinu eig­in­lega Indlandi. Það er ekki það Indland sem ferða­menn sjá í stór­borgum á borð við Delhi, Mumbai eða Kolkata. Um tveir þriðju Indverja búa í litlum þorpum og sveitum í mik­illi fátækt. Gandhi sjálfur líkti þessum þorpum við mykju­hauga en dáð­ist engu að síður að íbúum hins eig­in­lega Indlands, hóg­værð þeirra og visku.

Það var einmitt í einu slíku þorpi, Ghura Ka Purwa, sem Phoolan Devi fædd­ist þann 10. ágúst árið 1963. Ghura Ka Purwa er smá­þorp sem liggur við Yamuna fljótið, sem rennur í Ganghes, í Uttar Pradesh hér­aði. Uttar Pradesh er víð­femt svæði í Norð­ur­hluta lands­ins og jafn­framt það fjöl­menn­asta í öllu Indlandi með um 200 milljón íbúa. Á sein­ustu ára­tugum hefur verið mik­ill upp­gangur í Uttar Pradesh en þegar Phoolan Devi var að alast upp var svæðið blá­fá­tækt land­bún­að­ar­hérað. Líf fólks­ins í Ghura Ka Purwa var líkt og í öðrum sam­bæri­legum þorpum alger­lega sniðið í kringum stétta­skipt­ing­una. Stétta­skipt­ingin í Indlandi á sér fornar rætur í trú og menn­ingu Hindúa og er mun sterk­ari í dreif­býli en þétt­býli. Fólk sem fæð­ist inn í ákveðna stétt, deyr í henni. Það finnur sér maka úr sömu stétt og vinnur við þau störf sem ætl­ast er til af þeirri stétt. Phoolan Devi fædd­ist inn í Mallah, stétt báta­manna, sem er ein af þeim allra lægst settu á svæð­inu og telj­ast til hinna ósnert­an­legu. Hún fædd­ist einnig inn í sam­fé­lag þar sem stúlkur voru álitnar byrði. For­eldrar hennar, Devidin og Moola, voru talin sér­stak­lega óheppin þar sem þau eign­uð­ust fjórar dætur en aðeins einn son. Phoolan var næst elst þeirra systk­ina.

Upp­reisn­ar­girni Phoolan byrj­aði snemma. Faðir hennar, sem hún lýsti sjálf sem ein­feldn­ingi, hafði verið svik­inn um arf eftir for­eldra sína og bróðir hans fékk nán­ast allt fjöl­skyldu­landið. Sjálf bjuggu þau á landi sem var um ein ekra að stærð. Tíu ára gömul hóf Phoolan að berj­ast fyrir arf­inum og áreitti meðal ann­ars föð­ur­bróðir sinn og fjöl­skyldu hans. Hún fór óboðin inn á landið sett­ist þar niður en sonur föð­ur­bróður hennar kom og barði hana með múr­stein þar til hún missti með­vit­und.

Ári seinna var hún neydd til að gift­ast. Eig­in­maður hennar Patti Lal var á þrí­tugs­aldri og fjöl­skylda hans greiddi fjöl­skyldu Phoolan eina kú fyrir. Patti Lal kom hræði­lega fram við Phoolan, hann barði hana og nauðg­aði henni ítrekað. Hún flúði nokkrum sinnum til fjöl­skyldu sinnar en var skilað jafn­harðan aftur til eign­manns síns. Þetta þótti mikil skömm fyrir fjöl­skyldu Phoolan því að það þótti mikil skömm að yfir­gefa maka sinn. Sama hver ástæðan væri. Að lokum neit­aði fjöl­skylda Patti Lal að taka við henni aftur og þar með var Phoolan orðin að úrhraki innan sam­fé­lags­ins. Þá var hún aðeins 16 ára gömul.

Gengjalíf

Fátæk­ustu svæði Indlands voru iðu­lega und­ir­lögð af glæpa­gengjum sem köll­uð­ust dacoits og það svæði sem Phoolan Devi ólst upp á var engin und­an­tekn­ing. Þessi gengi fóru þung­vopnuð um milli þorpa og rændu íbúa. Yfir­leitt voru gengin stétt­skipt og herj­uðu á þorp þar sem fólk úr öðrum stéttum bjó. Efri stéttar gengi herj­uðu á fátæk­ari þorp en neðri stéttar gengi á þau rík­ari. Því gátu þessi gengi öðl­ast vissan ljóma hjá við­kom­andi stéttum. Jafnvel var talað um upp­reisn­ar­menn fremur en ræn­ingja. Það var árið 1979, þegar Phoolan var ein­ungis 16 ára gömul, sem hún komst í kynni við eitt slíkt gengi. Þetta gengi var þó nokkuð óhefð­bundið þar sem með­limir þess voru úr ýmsum stéttum. Leiðtogi þess hét Babu Gujjar, úr efri stétt, og hann vildi gera Phoolan að sinni. Hann var ágengur við hana og reyndi eitt sinn að nauðga henni. Þá kom næst­ráð­andi geng­is­ins, Vikram Mallah, henni til bjargar en hann var úr hennar eigin stétt báta­manna. Vikram dró upp byssu og skaut Babu Gujjar til bana. Þar með var hann orð­inn leið­togi geng­is­ins og í kjöl­farið felldu hann og Phoolan hugi saman.

Phoolan varð full­gildur með­limur geng­is­ins. Hún lærði á byssu og tók þátt í ráns­ferðum. En hún var eina stúlkan í geng­inu og margir með­limir þess voru ósáttir við hana og sam­band hennar við leið­tog­ann. Hún hafði einnig mikil áhrif á Vikram og það hvernig gengið starf­aði. Þau réð­ust nú nán­ast ein­göngu á þorp þar sem fólk úr efri stéttum bjó. Einnig réð­ust þau til atlögu að lög­legum eig­in­manni hennar, Patti Lal. Vikram dró hann út á götu og stakk hann í mag­ann með hníf fyrir framan alla þorps­búa. Hann lifði þó af.

Allt breytt­ist þó þegar tveir með­limir geng­is­ins, bræð­urnir Shri og Lalla Ram, sneru aftur eftir fang­els­is­vist. Þeir voru úr efri stétt sem kall­ast Thakur og voru ósáttir við leið­toga­skiptin og ítök Phoolan. Þeir hófu að hrekja Mallah menn úr geng­inu en fengu efri stéttar menn inn í stað­inn. Vikram og Phoolan voru orðin ein­angruð í geng­inu og fór svo að Ram bræður drápu Vikram. Þeir fluttu Phoolan svo til heima­þorps síns, Behmai. Þar var henni haldið í húsi og hópnauðgað af Thakur mönnum um nokk­urra vikna skeið. Hún náði þó að flýja frá Behmai með hjálp vini Vikrams, Man Singh Mallah. Þau tvö ákváðu að stofna eigið gengi báta­manna og Phoolan hugði á hefndir.

Valentínusardagur

Þann 14. febr­úar árið 1981, sjö mán­uðum eftir að Phoolan Devi slapp frá Behmai, sneri hún aftur til þorps­ins ásamt hinu nýja gengi sínu. Þau voru öll klædd sem lög­reglu­þjónar og Phoolan fór fremst í flokki. Hún var 17 ára gömul, með vara­lit, rautt nagla­lakk og hríð­skota­byssu úr seinni heim­styrj­öld­inni hang­andi um sig miðja. Öllum þorps­búum var stefnt að helgiskríni gyðj­unnar Shiva, gyðju eyði­legg­inar. Þar ávarp­aði hún þá með gjall­ar­horni:

„Hlustið á strákar! Ef þið elskið líf ykkar, færið okkur þá allt ykkar reiðufé, silfur og gull. Og hlustið aftur! Ég veit að Lala Ram Singh og Shri Ram Singh eru í felum hér í þorp­inu. Ef þið færið mér þá ekki, mun ég stinga riffl­inum upp í rass­inn á ykkur og rífa hann í sundur. Þetta er Phoolan Devi sem talar. Móðir Durga sigrar!“

Einungis tveir með­limir geng­is­ins fund­ust í þorp­inu og Phoolan reidd­ist mjög. Hún lét því safna saman öllum karl­mönnum af Thakur stétt í þorp­inu. Þetta voru alls 22 menn og voru þeir allir skotnir þar á staðnum.

Fjöldamorðið í Behmai olli straum­hvörfum í ind­versku sam­fé­lagi. Ekki ein­ungis vegna hins mikla mann­falls, heldur einnig vegna þess að það var tán­ings­stúlka úr lægstu stétt sem stóð að því og fórn­ar­lömbin voru öll karl­menn úr efri stétt. Fátt annað komst að í frétta­tímum ind­verskra fjöl­miðla og hneisan þótti svo mikil að ráð­herra Uttar Pradesh hér­aðs þurfti að segja af sér. Í kjöl­farið hófst umfangs­mikil lög­reglu­leit að Phoolan og gengi hennar og rúm­lega 10.000 doll­ara fund­ar­laun voru í boði fyrir þann sem kæmi upp um þau. En Phoolan komst undan að miklu leyti vegna hjálpar frá báta­mönnum og fólki úr öðrum lægri stéttum sem földu hana. Hún var orðin að hetju fátæka fólks­ins á svæð­inu, nokk­urs konar Hrói höttur. Hún fékk við­ur­nefnið ræn­ingja drottn­ingin og sögur af henni fengu goð­sagna­kenndan blæ á svæð­inu. Phoolan Devi var orðin ein umtal­að­asta mann­eskja lands­ins.

Uppgjöf og fangelsi

Þann 12. febr­úar árið 1983, tveimur árum eftir fjöldamorðið í Behmai, fylgd­ust um 10.000 manns og um 70 frétta­menn með því þegar Phoolan Devi gaf sig fram við yfir­völd í borg­inni Bhind. Með henni voru Man Singh Mallah sem þá var orð­inn ást­maður hennar, fjöl­skylda hennar og þeir örfáu úr gengi hennar sem ennþá voru lif­andi. Phoolan var illa til reika og aug­ljóst að þessi tvö ár í felum fyrir lög­regl­unni höfðu verið henni erfið. Hún hafði þó sett ýmis skil­yrði fyrir upp­gjöf sinni, þar á meðal að eng­inn úr gengi hennar fengi dauða­refs­ingu, að hámarks­refs­ingin yrði 8 ára fang­elsi fyrir hvern með­lim og að hún fengi litla land­spildu til eignar. Phoolan og félagar hennar lögðu niður vopn sín og skot­færi fyrir framan tvær myndir. Önnur var af Mahatma Gandhi en hin af hindúa­gyðj­unni Durga sem Phoolan til­bað mest.

Ljóst var að við­burð­ur­inn olli ind­versku lög­regl­unni og yfir­völdum miklum von­brigðum. Flestir bjugg­ust við að sjá heill­andi en jafn­framt ógn­vekj­andi skæru­liða­drottn­ingu færða í járn. En raunin var sú að Phoolan leit meira út eins og lít­ill, frekur og kjaft­for óþekkt­ar­pjakkur. Var þetta virki­lega mann­eskjan sem hafði haldið gervöllu Uttar Pradesh hér­aði í helj­ar­g­reipum í tvö ár og marg­sinnis kom­ist undan klóm lög­reglu­manna?

Goð­sögnin um ræn­ingja­drottn­ing­una var þó alls ekki dauð og átti meira að segja eftir að efl­ast til muna. Phoolan var færð í fang­elsi og ákæra með um 50 atriðum birt. En þrátt fyrir mik­inn þrýst­ing frá aðstand­endum fórn­ar­lambanna frá Behmai þorðu yfir­völd ekki að rétta yfir henni. Hún var óvænt orðin að hetju hinna ósnert­an­legu og rétt­ar­höld hefðu getað valdið miklum óeirðum. Á þessum tíma voru áhrif lægri stétt­anna að efl­ast til muna í stjórn­málum lands­ins og stjórn­mála­menn þurftu að reiða sig á atkvæði þeirra. Því sat Phoolan í fang­elsi án rétt­ar­halda í 11 ár. Lífið í fang­elsi reynd­ist henni þó ákaf­lega erfitt. Ítrekað var reynt að ráða hana af dögum og hún veikt­ist einnig af krabba­meini. Árið 1994 var henni loks sleppt og allar ákærur dregnar til baka. Þetta kom öllum á óvart en þó ekki nærri jafn mikið á óvart og næsti kafli í lífi hennar.

Þingmaður

Árið 1996 var Phoolan Devi kjörin þing­maður á ind­versku lög­gjaf­ar­sam­kund­una Lok Sabha. Hún bauð sig fram í sæti Mirzapur kjör­dæmis í Uttar Pradesh fyrir hinn nýstofn­aða sós­í­alista­flokk Samajwadi. Samajwadi flokk­ur­inn sat í skamm­lífri sam­steypu­stjórn vinstri og sós­í­alista­flokka til árs­ins 1998 þegar boðað var til kosn­inga og Phoolan missti sæti sitt. Hún vann það þó aftur í kosn­ingum ári seinna en sat þá í stjórn­ar­and­stöðu. Framboð Phoolan fékk strax mikla athygli og hún varð að tákn­mynd fyrir vax­andi áhrif lægstu stétt­anna og þá sér­stak­lega kvenna. Í ljósi for­tíðar hennar gat hún þó ekki málað sig sem neinn frið­ar­post­ula heldur frekar sem hefnd­ar­engil. Hún minnti fólk stöðugt á órétt­læti stétta­skipt­ing­ar­innar og stöðu ungra stúlkna í Indlandi, sér­stak­lega í dreif­býl­inu. Aldrei fyrr höfðu lægstu stétt­irnar mætt svo vel á kjör­stað og það voru þær sem fleyttu Phoolan inn á þing.

Á þessum tíma var Phoolan orðin gjör­breytt. Hún hafði gifst stjórn­mála­manni að nafni Umed Singh og lifði borg­ara­legu lífi. Hún klædd­ist tísku­fatn­aði og sótti snyrti­stofur. En hún var enn ólæs og störf hennar innan þings­ins voru mjög tak­mörkuð. Hún var þeim mun meira áber­andi utan þings­ins. Hún ferð­að­ist mikið um, þ.m.t. til Evrópu, og hélt ræður um órætt­læti og bág kjör lægri stétt­anna. Einnig átti hún það til að mæta án fyr­ir­vara í ýmis fang­elsi og heimt­aði að fá að hitta félaga sína sem þar sátu inni. Hún var því í meira lagi óvana­legur þing­maður.

Saga Phoolan Devi hlaut svip­legan endi þann 25. júlí árið 2001. Þrír grímu­klæddir menn réð­ust að henni fyrir utan heim­ili hennar í Delhi og skutu hana til bana. Menn­irnir flúðu vett­vang­inn og komust burt en skömmu síðar gaf einn af þeim sig fram. Sá heitir Sher Singh Rana af stétt Thakur og full­yrti hann að morðið hafi verið hefnd fyrir atburð­inn í Behmai þorpi 20 árum fyrr. Við­brögðin við morði hennar voru hörð og víða brut­ust út óeirðir í Uttar Pradesh hér­aði. Leið­togar Samajwadi voru fljótir að kenna rík­is­stjórn­inni um og sök­uðu stjórn­ar­flokk­inn BJP um að hafa vilj­andi slakað á örygg­is­gæslu hennar. Þeim sam­sær­is­kenn­ingum var þó alger­lega hafnað af BJP. Sher Singh Rana sat lengi í fang­elsi án rétt­ar­halda en árið 2014 var hann loks dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir morðið á ræn­ingja­drottn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár