Sjálfstæðisflokkur og Píratar með meirihluta

Sjálf­stæð­is­flokkur og Píratar eru stærstu flokkar lands­ins með 28,2% og 25,8% fylgi sam­kvæmt nýrri könnun. VG mæl­ast með tæp­lega 19% fylgi.

Þriggja manna þingflokkur Pírata myndi stækka verulega miðað við allar kannanir, jafnvel þótt fylgið hafi dalað undanfarið.
Þriggja manna þing­flokkur Pírata myndi stækka veru­lega miðað við allar kann­anir, jafn­vel þótt fylgið hafi dalað und­an­farið. Mynd: Birgir Þór

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokkur lands­ins með 28,2% fylgi í nýrri könnun sem Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands hefur gert, og sagt er frá í Morg­un­blað­inu í dag. Píratar mæl­ast með 25,8% fylgi. Staða þess­ara tveggja flokka hefur breyst tals­vert frá því um ára­mót, en þá mæld­ust Píratar með 35,3% en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 25,2%.

Stuðn­ingur við Vinstri-græn eykst og er 18,9%. 8,9% segj­ast styðja Sam­fylk­ing­una og 8,2% Fram­sókn­ar­flokk­inn. Björt fram­tíð mælist með 4,4% og næði því ekki inn manni og Viðreisn, sem verður form­lega stofnuð í næstu viku, 3,5%. Dögun og Alþýðu­fylk­ingin eru mæld í könn­un­inni og fengju 0,9% og 0,5%, og 0,7% segj­ast myndu kjósa annan flokk.

„Hreyf­ingin virð­ist helst á milli núver­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokka og að hluta til frá Framsókn. Lengi lá straumur til Pírata en nú fær­ist fylgið að hluta til VG. Sam­fylk­ing virð­ist ekk­ert taka til sín frá Pírötum,“ segir Birgir Guð­munds­son, stjórn­mála­fræð­ingur við Háskól­ann á Akureyri, við Morg­un­blaðið í dag. Hann segir ekki koma á óvart að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist svona lágt, en segir að hugs­an­lega sé auk­inn stuðn­ingur við VG til marks um það að flokk­ur­inn hafi hreina ásýnd í aflandsum­ræð­unni. „Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks eru ekki jafn við­kvæmir fyrir þeirri umræðu.“

Tæplega tíu pró­sent svar­enda í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar voru óákveðnir eða vildu ekki svara, 1,1% sögð­ust ekki ætla að kjósa og 5,6% sögð­ust ætla að skila auðu í kosn­ingum.

Svipuð staða í könnun 365

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Píratar mæl­dust líka mest fylgi í könnun 365 miðla frá því í síð­ustu viku. Sjálf­stæð­is­flokkur mæld­ist með örlítið meira fylgi, 31,3 pró­sent, en Píratar með 30,3 pró­sent. Vinstri græn mæl­dust með 19,8 pró­senta fylgi. Sam­fylk­ingin mæld­ist með 7,4 pró­sent og Fram­sókn­ar­flokkur með 6,5 pró­sent. Björt fram­tíð mæld­ist með 3,1 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár