COVID-pillan lofar góðu

Veiru­eyð­andi lyf sem gefið er sjúk­lingum fljót­lega eftir að þeir sýkj­ast af kór­ónu­veirunni lofar góðu að sögn fram­leið­and­ans Merck. Rann­sóknir á fleiri slíkum lyfjum standa yfir.

COVID-pillan gæti komið á markað innan skamms. Hún verður, að minnsta kosti fyrst í stað, aðeins gefin þeim sjúklingum sem eru í mestri áhættu á alvalegum veikindum.
COVID-pillan gæti komið á markað innan skamms. Hún verður, að minnsta kosti fyrst í stað, aðeins gefin þeim sjúk­lingum sem eru í mestri áhættu á alva­legum veik­indum. Mynd: Merck

Lyfja­fram­leið­and­inn Merck ætlar að sækja um leyfi til að mark­aðs­setja fyrsta veiru­eyð­andi lyfið gegn COVID-19. Klínískar rann­sóknir lofa góðu og sýna að veru­lega minni hættu á sjúkra­húsinn­lögn og dauða hjá fólki í háá­hættu­hópum, sé lyfið gefið því fljót­lega eftir að sýk­ing af völdum kór­ónu­veirunnar upp­götvast.

Í frétt New York Times um málið segir að lyfja­með­ferðin gæti orðið ný og áhrifa­rík við­bót við með­ferð sjúk­dóms­ins og þar með enn eitt verk­færið í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn.

Í frétt­inni er haft eftir Robert Shafer, sér­fræð­ingi í veiru­fræðum við Stanford-háskóla, að hin nýja lyfja­með­ferð gæti bjargað þús­undum manns­lífa um allan heim.

Lyf Merck yrði gefið í pillu­formi og sam­kvæmt rann­sóknum er virknin mest þegar sýktir taka fjórar töflur á dag í fimm daga. Lyfið kemur í veg fyrir að kór­ónu­veiran nái að fjölga sér. Tvö önnur sam­bæri­leg lyf eru einnig í þróun, annað á vegum Pfizer og hitt á vegum lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Atea Pharmaceuticals and Roche. Vonir eru bundnar við að þau komi einnig á markað innan fárra mán­aða.

Í yfir­lýs­ingu sem Merck sendi frá sér í dag segir að óháð nefnd sér­fræð­inga telji rann­sóknir á lyf­inu þegar sýna fram á góða virkni þess og að frek­ari rann­sókna sé því ekki þörf. Einnig kemur fram að Matvæla- og lyfja­stofnun Banda­ríkj­anna hafi sam­þykkt þann ráða­hag.

Klínísku rann­sókn­irnar hafa staðið yfir síðan snemma í ágúst. Í þeim hafa 775 sjálf­boða­liðar tekið þátt. Af þeim sem gefið var lyfið minnk­aði hætta á sjúkra­húsinn­lögn og dauða af völdum COVID-19 um 50 pró­sent, án alvar­legra auka­verk­ana, í sam­an­burði við þá sem fengu lyf­leysu. Sjö pró­sent þeirra sem fengu lyfið í rann­sókn­inni voru lagðir inn á sjúkra­hús. Enginn þeirra lést. Hins vegar lögð­ust 14 pró­sent þeirra sem fengu lyf­leysu inn og af þeim lét­ust átta manns.

Banda­rísk stjórn­völd hafa þegar lagt inn pöntun af COVID-lyfi Merck sem duga á til að með­höndla 1,7 millj­ónir sjúk­linga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár