Konungleg langtímafýla

Ummæli Karls 16. Gústafs Svía­kon­ungs í nýjum heim­ilda­þætti í sænska sjón­varp­inu hafa vakið undran og hneykslan. Skoðunin sem kon­ungur lýsti í við­tal­inu er ekki ný af nál­inni.

Karl Gústaf Svíakonungur.
Karl Gústaf Svía­kon­ungur. Mynd: EPA

Karl 16. Gústaf (Karl Gústaf) er fæddur 30. apríl 1946 og er sjö­undi í röð kon­unga Sví­þjóðar af ætt Berna­dotte. Þjóð­höfð­ingjar Sví­þjóðar hafa allir verið karlar, burt­séð frá því hvar þeir hafa verið í ald­urs­röð­inni. Var enda bundið í lögum að þjóð­höfð­ing­inn skyldi vera karl. Karl Gústaf er yngstur fimm systk­ina, hann á fjórar eldri systur. Faðir þeirra systk­ina, Gústaf Adólf fórst í flug­slysi í jan­úar 1947, hann var erfða­prins, en ekki krón­prins, þar sem faðir hans, Gústaf 6, og afi voru báðir á lífi þegar slysið varð. Núver­andi kon­ungur, Karl Gústaf, erfði krún­una frá afa sínum (sem var líka afi Mar­grétar Þór­hildar Dana­drottn­ingar).

Eins og áður sagði á Karl Gústaf kon­ungur fjórar eldri systur. Aldrei kom til greina að sú elsta yrði þjóð­höfð­ingi. Lögin heim­il­uðu það ekki og breyt­ingar komu á þeim tíma ekki til álita.

Konungur 1973

Við frá­fall Gústafs 6. árið 1973 varð Karl Gústaf kon­ungur Sví­þjóðar, hann var þá 27 ára. Á Ólymp­íu­leik­unum í Munchen kynnt­ist hann Silvíu Sommerl­ath frá Heidel­berg sem var túlkur á leik­unum. Þau gengu í hjóna­band árið 1976. Silvía hafði lagt stund á tungu­mála- og túlka­nám og talar, auk þýsku og sænsku, frönsku, spænsku, portú­gölsku, ensku og sænskt tákn­mál.

[adspot]Karl Gústaf er les­blindur og það háði honum í námi. Hann lauk stúd­ents­prófi og stund­aði nám við háskól­ana í Uppsölum og Stokk­hólmi og gegndi her­þjón­ustu. Kon­ung­ur­inn hefur tekið mik­inn þátt í starfi skáta­hreyf­ing­ar­innar í Svíþjóð og er mik­ill áhuga­maður um veiðar og bíla, Volvo 544 (kryppan svo­nefnda) er í sér­stöku upp­á­haldi.

Börnin og heiðursskotin

Sænsku kon­ungs­hjónin eiga þrjú börn. Elst er Viktoría fædd 1977, Karl Filippus fæddur 1979 og yngst er Magda­lena fædd 1982. Tvö eldri börnin eru les­blind eins og fað­ir­inn.

Löng hefð er fyrir því að fagna, með fall­byssu­skotum (púð­ur­skotum) fæð­ingu í fjöl­skyldu Svía­kon­ungs. Þegar rík­is­arfi kemur í heim­inn eru skotin 42 tals­ins en ann­ars eru skotin 21.

Þegar Viktoría kom í heim­inn 14. júlí 1977 var hleypt af 21 skoti, hún var jú sam­kvæmt gild­andi lögum ekki rík­is­arfi. Karl Filippus fædd­ist 13. maí 1979 og þá var hleypt af 42 skotum, rík­is­arfi var kom­inn í heim­inn.

Lagabreytingin 1980

Þótt miklar umræður um breyt­ingar á rík­is­ar­falög­unum hefðu átt sér stað í Svíþjóð á síð­ari hluta átt­unda ára­tug­ar­ins voru gömlu lögin um að karlar gengju framar konum í röð­inni enn í gildi þegar Viktoría og Karl Filippus fædd­ust. En 1. jan­úar 1980 tóku ný lög gildi. Samkvæmt þeim skyldi elsta barn ríkj­andi þjóð­höfð­inga, óháð kyni, erfa krún­una. Með sam­þykkt þess­ara laga var sjö og hálfs mán­aðar krón­prins­tíma­bil Karls Fil­ippusar á enda og Viktoría sem hafði borið prinsessu­titil var nú orðin krón­prinsessa.

Ósáttur við breytinguna

Í sjón­varps- og blaða­við­tölum eftir laga­breyt­ing­una í árs­byrjun 1980 lýsti kon­ung­ur­inn óánægju sinni. Sonur sinn hefði fæðst sem krón­prins og nú hefði hann svo verið sviptur titl­inum „allt tekið af honum“ eins og kóngur orð­aði það. Hann sagði að ekki væri hægt að breyta lögum á þennan hátt, aft­ur­virkt. Karl Gústaf sagði enn­fremur að kon­ungs­starfið væri of erfitt fyrir stúlkur.

Þessi ummæli kon­ungs vöktu mikla athygli og hneykslan margra. Þetta er reyndar ekki í eina skiptið sem orð og gerðir hans hafa vakið undran og jafn­vel reiði.

Árið 2004 fór Karl Gústaf í opin­bera heim­sókn til Brúnei. Sú heim­sókn olli mik­illi gagn­rýni Svía og ekki síður ummæli kon­ungs í við­tölum eftir að heim­sókn­inni lauk. Sold­án­inn í Brúnei er ein­valdur sem stjórnar ríki sínu með harðri hendi, hann er allt í senn, for­sæt­is­ráð­herra, varn­ar­mála­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra. Þar að auki er hann yfir­maður hers­ins og lög­regl­unnar. Í Brúnei situr þing en það er algjör­lega valda­laust.

Þegar frétta­menn ræddu við Karl Gústaf eftir heim­sókn­ina 2004 spurðu þeir hvort hann teldi að sold­án­inn væri ein­ræð­is­herra sagði kóngur það af og frá. Sold­án­inn væri í nánum tengslum við þjóð sína (sem telur um 400 þús­und manns) og árlega byði hann þús­undum landa sinna í höll­ina þar sem boðið væri upp á veit­ingar og almenn­ingur fengi þar tæki­færi til að ræða við sold­án­inn og hátt setta emb­ætt­is­menn.

Þáver­andi for­seti sænska þings­ins gagn­rýndi kon­ung­inn harð­lega fyrir heim­sókn­ina, ekki léti hann nægja að blanda sér í stjórn­mál, sem væri ekki hlut­verk hans, heldur hefði hann hyllt ein­ræð­is­herr­ann.

Stendur fast við fyrri ummæli

Í nýjum heim­ilda­þætti sænska sjón­varps­ins, SVT, eru áður­nefnd ummæli kon­ungs um óánægju sína með laga­breyt­ing­una árið 1980 rifjuð upp, og sömu­leiðis þau orð sem hann lét falla um sold­án­inn í Brúnei.

Í við­tali sem tekið var við kon­ung við gerð nýja heim­ilda­þátt­ar­ins sagði hann það enn skoðun sína að rangt hefði verið að breyta lög­unum um rík­is­arf­ann, með aft­ur­virkum hætti. Hann und­ir­strik­aði að þetta teldi hann eiga að gilda um öll lög. Hann sagði enn­fremur í við­tal­inu að hann bæri fullt traust til Viktoríu dóttur sinnar og sam­komu­lagið í fjöl­skyld­unni væri eins og best yrði á kosið.

Þessi orð kon­ungs hafa sænskir fjöl­miðlar tekið óstinnt upp. Benda á að Viktoría sé vin­sæl meðal Svía en það sama verði ekki sagt um alla í fjöl­skyld­unni. Viðhorf kon­ungs sé gam­al­dags og lýsi karl­rembu. Og þótt hann seg­ist bera fullt traust til Viktoríu séu ummæli hans, nú end­ur­tekin 40 árum síðar, van­virð­ing við dótt­ur­ina.

Varðandi ummælin um Brúnei og sold­án­inn eftir heim­sókn­ina 2004 sagði kóngur að orð sín hefðu verið mis­skilin. Hann hefði verið að tala um tengsl sold­áns­ins við þjóð sína. Og end­ur­tók síðan ummæli sín um gott sam­band sold­áns og þjóðar. En bætti svo við að stjórn­ar­fyr­ir­komu­lagið í Brúnei væri annað en hjá Svíum.

Heim­ilda­þátt­ur­inn er aðgengi­legur á streym­isveitu sænska sjón­varps­ins SVT en verður sýndur á aðal­rás SVT 12. jan­úar næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár