Tilkynnir um afsögn eftir opinbert rifrildi við Trump

Banda­ríska þing­konan Marjorie Taylor Greene hefur til­kynnt um afsögn sína, sem tekur gildi í byrjun næsta árs. Und­an­farnar vikur hefur hún lent upp á kant við Donald Trump Banda­ríkja­for­seta vegna Epstein-skjal­anna, sem nú stendur til að birta.

Perluvinir
Perlu­vinir Greene og Trump voru nánir sam­starfs­menn um ára­bil. Mynd: ANDREW CABALLERO-REYNOLDS / AFP

Marjorie Taylor Greene, einn helsti banda­maður Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta og áhrifa­kona í Repúblikana­flokknum, til­kynnti í gær­kvöldi að hún ætl­aði að segja af sér þing­mennsku. Til­kynn­ingin kom viku eftir að Trump dró opin­ber­lega til baka stuðn­ing sinn við hana.

Í mynd­bandi sem Greene birti á sam­fé­lags­miðlum í gær sagði þessi 51 árs gamla þing­konan frá Georgíu, sem fyrst var kjörin árið 2020, að hún hafi „alltaf fyr­ir­litið Washington DC og aldrei passað inn“.

Hún sagð­ist ekki vilja að stuðn­ings­fólk sitt eða fjöl­skylda þyrfti að ganga í gegnum „sárs­auka­fulla og hat­ramma próf­kjörs­bar­áttu for­set­ans sem við börð­umst öll fyrir, bara til að berj­ast og ná end­ur­kjöri á meðan Repúblik­anir munu lík­lega tapa kosn­ing­unum.“

„Ég mun segja af mér emb­ætti og síð­asti dag­ur­inn minn verður 5. jan­úar, 2026,“ sagði hún.

Afsögn Greene er skýrasta merkið hingað til um vax­andi klofn­ing innan MAGA-hreyf­ingar Trump, eftir gott gengi Demókrata í síð­ustu …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár