Tæplega fjórðungur umsækjenda um hlutabætur erlendir ríkisborgarar

Um 23 pró­sent starf­andi íbúa lands­ins hafa annað hvort sótt um hluta­bætur eða skrá sig á almenna atvinnu­leys­is­skrá. Erlendir rík­is­borg­arar eru um 20 pró­sent af vinnu­afli lands­ins en tæp­lega fjórð­ungur þeirra sem sótt hafa um hluta­bætur eru útlend­ingar.

Erlendum ríkisborgurum sem ákveða að búa á Íslandi hefur fjölgað gríðarlega hratt á undanförnum árum. Stór hluti þess vinnuafls sem unnið hefur við mannaflsfrekar framkvæmdir hefur til að mynda verið útlendingar.
Erlendum rík­is­borg­urum sem ákveða að búa á Íslandi hefur fjölgað gríð­ar­lega hratt á und­an­förnum árum. Stór hluti þess vinnu­afls sem unnið hefur við mann­afls­frekar fram­kvæmdir hefur til að mynda verið útlend­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Ríflega þrír af hverjum fjórum af þeim rúm­lega 30 manns mann sem sótt hafa um hluta­bætur vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls eru íslenskir rík­is­borg­arar. Tæplega fjórð­ungur þeirra eru erlendir rík­is­borg­arar og 14 pró­sent allra sem sótt hafa um hluta­bæt­urnar eru Pól­verjar. Þetta kemur fram í tölum sem Alþýðu­sam­band Íslands birti í dag.

Hlut­föllin end­ur­spegla að stóru leiti sam­setn­ingu íslenska vinnu­mark­að­ar­ins þar sem 20 pró­sent allra sem störf­uðu á honum í fyrra voru útlend­ingar en um 80 pró­sent íslenskir rík­is­borg­arar. Í sam­an­tekt ASÍ um skipt­ingu hluta­bóta segir að umsóknir um hluta­bætur end­ur­spegli sam­setn­ingu vinnu­mark­að­ar­ins betur en umsóknir um atvinnu­leys­is­bætur síð­asta árið, þar sem hlut­fall Íslend­inga meðal umsækj­enda hefur verið 63 pró­sent.

[adspot]Erlendum rík­is­borg­urum sem búa á Íslandi hefur fjölgað gríð­ar­lega á und­an­förnum árum, enda hafa þau störf sem orðið hafa til í ferða­þjón­ustu og tengdum geirum að mestu verið mönnum með öðrum en íslenskum rík­is­borg­urum. Frá lokum árs 2011 og fram til byrjun síð­asta mán­aðar fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum sem hér búa úr rúm­lega 20 þús­und í rúm­lega 50 þús­und, og eru þá ekki taldir með þeir sem hlutu íslenskan rík­is­borg­ara­rétt á tíma­bil­inu né þeir sem komu hingað til lands tíma­bundið á vegum starfs­manna­leiga. Í byrjun mars 2020 voru erlendir rík­is­borg­arar 13,8 pró­sent íbúa lands­ins. Lang­flestir þeirra eru Pól­verjar, eða tæp­lega 21 þús­und.

46 þúsund manns á hlutabótum eða atvinnuleysisskrá

Alls hafa 30.097 manns sótt um hluta­bætur. Til við­bótar hafa um 16 þús­und manns skráð sig á almennu atvinnu­leys­is­skránna, sam­kvæmt tölum sem birtar voru í Morg­un­blað­inu í morgun. Það þýðir að um 46 þús­und manns eru að þiggja atvinnu­leys­is­bætur að hluta eða öllu leyti um þessar mundir. Á síð­ast ári voru 199.029 manns starf­andi á Íslandi og því eru um 23 pró­sent íbúa lands­ins á ein­hvers konar atvinnu­leys­is­bótum.

Fjöldi umsækj­enda er þó hlut­falls­lega hærri á Suð­ur­nesjum og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en á lands­byggð­inni. Þannig hafa 11 pró­sent umsókna borist frá íbúum Suð­ur­nesja, þar sem átta pró­sent starf­andi lands­manna bjuggu á síð­asta ári og 67 pró­sent umsókna af höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem 64 pró­sent starf­andi lands­manna bjuggu.

Í tölum ASÍ kemur fram að kynja­skipti umsækj­enda sé nokkuð jöfn og nán­ast í takti við þá skipt­ingu sem er á milli kynj­anna á vinnu­mark­aði. Sé litið til ald­urs­skipt­ingar, eru umsóknir hlut­falls­lega flestar í ald­urs­hópnum 30-39 ára. Alls eru 26 pró­sent umsækj­enda á þeim aldri, sam­an­borið við 21,6 pró­sent af starf­andi fólki. Lægst er hlut­fallið meðal fólks á aldr­inum 60-69 ára, en níu pró­sent umsækj­enda eru á þeim aldri sam­an­borið við 11,7 pró­sent af starf­andi fólki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár