Glíma við mikla aukningu í fjölda smita þrátt fyrir góðan gang í bólusetningum

Frá síð­ustu mán­aða­mótum hefur fjöldi smita á Seychelles-eyjum rokið upp þrátt fyrir að vel hafi gengið að bólu­setja þar í landi. Meðal þess sem gæti skýrt aukn­ingu smita er léleg virkni bólu­efna, of hraðar aflétt­ingar tak­mark­ana og ferða­manna­iðn­að­ur­inn.

Mögulega duga bóluefnin á Seychelles-eyjum ekki nógu vel gegn hinu svokallaða suður-afríska afbriigði.
Mögulega duga bólu­efnin á Seychelles-eyjum ekki nógu vel gegn hinu svo­kall­aða suður-afríska afbriigði. Mynd: EPA

Íbúar Seychelles-eyja glíma nú við nýja bylgju kór­ónu­veirunnar þrátt fyrir að nán­ast hvergi í heim­inum gangi jafn vel að bólu­setja. Samkvæmt tölum frá Our World in Data hafa rúm­lega 70 pró­sent íbúa nú þegar fengið að minnsta kosti einn skammt af bólu­efni. Hlut­fallið fór yfir 60 pró­sent í fyrri hluta mars. Hlutfall íbúa sem búinn er að fá báða skammta bólu­efnis er rúm 63 pró­sent en hlut­fallið rauf 60 pró­senta múr­inn í lok apríl.

Samt sem áður hefur fjöldi greindra smita auk­ist mikið í maí miðað við fyrri mán­uði árs­ins. Einhver hreyf­ing hefur verið á sjö daga hlaup­andi með­al­tali (e. roll­ing average) yfir fjölda greindra smita á árinu. Fyrir maí hafði það hæst farið í 85 en í apríl hefur það að með­al­tali verið í kringum 50. Um miðjan maí stóð þetta hlaup­andi sjö daga með­al­tal í rúm­lega 400. Það verður að telj­ast tölu­verður fjöldi í ljósi þess að íbúar eyrík­is­ins eru rétt tæp­lega 100 þús­und.

Að því er fram kemur í umfjöllun BBC um málið þá er hlut­fall bólu­settra af þeim sem hafa greinst með veiruna upp á síðkastið mun hærra á Seychelles-eyjum heldur en ann­ars staðar. Til að mynda greindu heil­brigð­is­yf­ir­völd þar í landi frá því 10. maí að þriðj­ungur nýrra til­fella hefðu verið meðal þeirra sem voru full­bólu­settir.

Í áður­nefndri umfjöllun er haft er eftir Dr. Jude Gedeon, land­lækni Seychelles-eyja, að um tveir þriðju þeirra sem greinst hafa hafa sýnt væg eða engin ein­kenni. Um 80 pró­sent þeirra sem þurft hafa að leggj­ast inn á sjúkra­hús í land­inu vegna COVID-19 voru ein­stak­lingar sem ekki höfðu fengið bólu­efni.

En hvað veldur?

Líkt og rakið er í umfjöllun BBC er óvíst hversu mikla virkni bólu­efnin sem notuð hafa verið á Seychelles eyjum hafa. Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin telur virkni kín­verska bólu­efn­is­ins Sin­oph­arm vera um 79 pró­sent en gögn um virkni bólu­efn­is­ins utan Kína eru af skornum skammti. Þá er óljóst hversu góða vörn AstraZenece, sem einnig hefur verið mikið notað á Seychelles eyjum, veitir gegn hinu svo­kall­aða suður-afríska afbrigði sem nú grein­ist á Seychelles-eyjum.

Að mati Dr. Gedeon gæti auk­inn fjöldi smita verið afleið­ing auk­inna umsvifa í land­inu. Alls kyns tak­mörk­unum var aflétt í mars og í kjöl­farið opn­uðu meðal ann­ars veit­inga­hús og skólar. Heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa einnig sagt að pásk­arnir og sam­komur í tengslum við þá hafi haft sitt að segja. Þá er minni var­kárni fólks talin eiga ein­hverja sök að máli, enda sé það mögu­legt að fólk hugi minna að per­sónu­legum sótt­vörnum eftir að það er búið að fá, þó ekki sé nema, fyrsta skammt bólu­efnis.

Eftir að smitum fór að fjölga voru tak­mark­anir í land­inu aftur hertar. Skólar lok­uðu, tak­mark­anir voru settar á opn­un­ar­tíma versl­ana, veit­inga­húsa og bara auk þess sem bann var lagt við margs konar sam­komum.

Spjótin hafa einnig beinst að ferða­þjón­ust­unni en hún er einn af burð­ar­stólpum efna­hags­lífs­ins á eyj­unum. Til að mynda sóttu 400 þús­und ferða­menn eyj­una heim árið 2019. Eðli máls­ins sam­kvæmt varð hrun í ferða­þjón­ustu á Seychelles-eyjum árið 2020 en hún hefur verið að taka við sér.

Undir lok mars­mán­aðar til­kynntu stjórn­völd á Seychelles-eyjum að ferða­menn gætu heim­sótt eyj­arnar án þess að fara í sótt­kví, líkt og hafði verið skylda. Þó eru komur ferða­fólks frá nokkrum til­teknum löndum ein­hverjum tak­mörk­unum háðar. Við­brögðin létu ekki á sér standa, tölur yfir fjölda ferða­manna tóku mikið stökk upp á við á milli mars og apríl. Stjórn­völd hafa engu að síður vísað því á bug að aukin kraftur í ferða­þjón­ust­unni hafi eitt­hvað með auk­inn fjölda smita að gera. „Það er ekk­ert sem bendir til þess að ferða­menn komi með veiruna með sér til Seychelles-eyja,“ segir Dr. Gedeon.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár