Kergja innan Sjálfstæðisflokks þótt flestir fylgi línu formanns

Þótt Bjarni Bene­dikts­son hafi spilað með mjög klókum hætti úr stöð­unni sem var uppi eftir kosn­ingar, og fengið sitt fram bæði við myndun rík­is­stjórnar og gagn­vart eigin flokki, þá er ekki ein­hugur innan Sjálf­stæð­is­flokks um nið­ur­stöð­una. Óánægjan tekur á

Ekki reynd­ist áreynslu­laust að mynda nýja rík­is­stjórn. Það á ekki ein­ungis við um allar þær stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður sem búið er að reyna, heldur líka um þau átök sem hafa átt sér stað innan stjórn­mála­flokka um hvernig sé best að vinna úr nið­ur­stöðum kosn­ing­anna, til hvaða flokka eigi að leita um sam­starf og hvaða ein­stak­lingar eigi að fá braut­ar­gengi í valda­stóla gangi slíkt sam­starf eftir.

Innan Vinstri grænna voru til að mynda mjög skiptar skoð­anir um hvort flokk­ur­inn ætti að opna á mögu­legt stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk. Þegar stjórn Bjartrar fram­tíðar kaus um stjórn­ar­sátt­mála fyrstu rík­is­stjórnar sem flokk­ur­inn hefur átt aðild að höfn­uðu 18 af 69 stjórn­ar­mönnum honum, flestir vegna þess að þeir voru and­snúnir því að Bjarni Bene­dikts­son yrði for­sæt­is­ráð­herra í ljósi tafa á birt­ingu skýrslu um aflandseignir Íslend­inga og því að hann hafði sagt ósatt um málið. Og innan Við­reisnar vildu ýmsir sjá flokk­inn fylgja eftir jafn­rétt­is­á­herslum sínum með því að gera tvær konur að ráð­herrum.

En mestu brest­irnir eru lík­ast til innan Sjálf­stæð­is­flokks, þótt Bjarna hafi tek­ist að fá nán­ast allan þing­flokk­inn til að fylgja sinni línu. Þeir brestir sjást meðal ann­ars á opin­berri óánægju odd­vita flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi vegna þess að hann fékk ekki ráð­herra­emb­ætti og í rit­stjórn­ar­skrifum Morg­un­blaðs­ins, þar sem fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins ræður ríkjum.

Ekkert fjallað um ríkisstjórnina daginn eftir

Það vakti athygli á mið­viku­dag að ekk­ert var fjallað um nýja rík­is­stjórn sem mynduð var dag­inn áður, né stjórn­ar­sátt­mála hennar, í leið­ara Morg­un­blaðs­ins. Blaðið hefur lengi verið mjög halt undir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, sem leiðir nýja rík­is­stjórn, og núver­andi rit­stjóri þess er Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins.

Ljóst hefur verið á rit­stjórn­ar­skrifum blaðs­ins, og í sumum til­vikum frétta­flutn­ingi, að lítil áhugi hefur verið á að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi rík­is­stjórn með Viðreisn. Þar kom fram skýr vilji til að flokk­ur­inn myndi vinna með Fram­sókn­ar­flokknum og/eða Vinstri grænum, sem hafa íhalds­sam­ari skoð­anir um breyt­ingar á elstu atvinnu­kerfum lands­ins – land­bún­aði og sjáv­ar­út­vegi – og eru á móti aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Þetta eru lyk­il­mál í hugum helstu eig­enda og stjórn­enda Morg­un­blaðs­ins, líkt og kom fram í við­tali við Óskar Magn­ús­son, fyrr­ver­andi útgef­anda blaðs­ins, á Hring­braut í des­em­ber síð­ast­liðnum. Þar sagði Óskar að eig­endur blaðs­ins, en 96 pró­sent eign­ar­hlutur er í eigu aðila með bein tengsl við útgerð­ar­fyr­ir­tæki, hafi viljað fá „öðru­vísi tök á í þjóð­fé­lag­inu“ á þremur málum. „Það var Icesave fyrst og fremst, ESB og svo sjáv­ar­út­vegs­mál. Við vitum árang­ur­inn af Icesave og ég þakka það Morg­un­blað­inu mjög. Við vitum hvar ESB er statt, sjáv­ar­út­vegs­málin eru enn í óvissu og upp­námi og það þarf auð­vitað að finna á þeim ein­hvern svona sæmi­lega sátt­flöt við þjóð­ina.“

Í byrjun árs, þegar Bjarni Bene­dikts­son hafði fengið stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð til að hefja form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við Viðreisn og Bjarta fram­tíð skrif­aði Davíð, leið­ara þar sem vísað var í skrif Andríkis um Evr­ópu­sinna sem haldið höfðu Sjálf­stæð­is­flokknum í gísl­ingu árum saman, „rufu samn­inga, aug­lýstu gegn flokknum, grófu undan honum og klufu hann loks skömmu fyrir þing­kosn­ingar. Að launum vilja þeir stjórn­ar­sam­starf og ráð­herra­sæti.“ Augljóst var að þar var átt við Viðreisn, sem stofnuð var af hópi fólks sem áður starf­aði innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins en var fylgj­andi aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.“ Síðan er varað við því að þjóðin fái að kjósa um Evr­ópu­sam­bandið, að Mjólk­ur­sam­salan verði sett undir sam­keppn­is­lög, að tollar verði lækk­aðir á hvítt kjöt og að kvóti verði seldur á upp­boði, en allt eru þetta stefnu­mál sem Viðreisn og Björt fram­tíð hafa barist fyrir. Í lok leið­ar­ans sagði: „Nokkrir þing­menn stóðu í lapp­irnar á sínum tíma og neit­uðu að taka þátt í feigð­ar­flani um Icesave, sem liggur enn eins og mara á flokknum. Ólíklegt er að allir þing­menn flokks­ins muni skrifa undir sam­starf af því tagi sem glitti í á frétta­síðum gær­dags­ins. Slík stjórn hefði aðeins eins þing­sætis meiri­hluta. Þegar rótin að sam­starfi hefur ekki annað hald en gömul svik og ný tor­tryggn­is­mál er eins atkvæðis meiri­hluti miklu minna en ekki neitt.“

Fimm urðu sex

Þrátt fyrir þetta var rík­is­stjórnin mynduð og stjórn­ar­sátt­máli sam­þykktur. Á mánu­dags­kvöld var hald­inn flokks­ráðs­fundur hjá Sjálf­stæð­is­flokki og þar var kynnt að ráð­herrar flokks­ins yrðu fimm tals­ins. Við blasti að auk Bjarna Bene­dikts­sonar yrðu Kristján Þór Júl­í­us­son og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son ráð­herrar auk þess sem Ólöf Nordal yrði sjálf­gefið í ráð­herra­emb­ætti ef hún hefði starfs­orku til, en hún hefur verið að glíma við veik­indi.

Bjarni Benediktsson tók við lyklunum að forsætisráðuneytinu á miðvikudag.
Bjarni Bene­dikts­son tók við lyklunum að for­sæt­is­ráðu­neyt­inu á mið­viku­dag.

Daginn eftir, á mið­viku­dag, hafði ráð­herr­unum hins vegar verið fjölgað í sex. Samkvæmt við­mæl­endum Kjarnans var ekki vit­neskja um þau áform á meðal lyk­il­manna innan verð­andi sam­starfs­flokka, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, að til stæði að fjölga ráð­herrum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og setja tvo ráð­herra í það sem áður var inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Ástæður þess að ráð­herr­arnir urðu fleiri voru nokkrar. Í fyrsta lagi varð ljóst að Ólöf Nordal treystir sér ekki sem stendur í ráð­herra­emb­ætti og vand­að­ist þá enn val Bjarna á konum til að sitja í rík­is­stjórn hans. Ólöf var eina konan sem leiddi kjör­dæmi í síð­ustu kosn­ingum og ein­ungis þriðj­ungur þing­flokks­ins eru konur. Mikið hafði verið rætt um að leitað yrði út fyrir þing­flokk­inn eftir konu, og voru nefnd Svan­hildar Hólm Vals­dóttur og Ragn­heiðar Rík­harðs­dóttur nefnd.

Í öðru lagi þurfti að gæta að jafn­vægi á milli kjör­dæma í skipan helstu valda­emb­ætta sem féllu flokknum í skaut, en auk ráð­herra­stóla fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn emb­ætti for­seta Alþingis í sinn hlut.

Í þriðja lagi er póli­tík innan flokka á sama hátt og slík á sér stað milli flokka. Sumir þing­menn eru nán­ari sam­starfs­menn for­manns flokks­ins en aðrir og því fer fjarri að allir þing­menn­irnir fylgi þeirri línu sem Bjarni leggur í blindni. Allt ofan­greint er talið hafa spilað inn í ráð­herra­val Bjarna.

Pólitíkin í ráðherraskipan flokksins

Með því að skipa Sigríði Andersen í rík­is­stjórn þá Bjarni leysti tvö mögu­leg vanda­mál. Sigríður hefur sýnt að hún er mjög fylgin sann­fær­ingu sinni og sú sann­fær­ing er á stundum mun rót­tæk­ari en sú stefna sem flokkur hennar rekur. Hún greiddi til að mynda atkvæði gegn búvöru­samn­ing­unum á Alþingi í sept­em­ber, ein þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks, þrátt fyrir að for­maður hennar hafi verið annar þeirra sem und­ir­rit­uðu þá fyrir hönd rík­is­ins og að rík­is­stjórn sem flokkur hennar sat í hafi staðið fyrir afgreiðslu máls­ins. Það verður flókn­ara fyrir Sigríði að spila slíka ein­leiki sem hluti af rík­is­stjórn. Svo er hún auð­vitað kona.

Sigríður átti ekki til­kall til ráð­herra­emb­ættis að mati margra innan flokks­ins. Hún lenti í fimmta sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík fyrir síð­ustu kosn­ingar og skip­aði þriðja sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi Suður. Hún hafði sóst eftir því að leiða annað hvort Reykja­vík­ur­kjör­dæmið.

Sigríður Andersen lenti neðar í prófkjöri Sjálfstæðismanna fyrir síðustu kosningar en bæði Brynjar Níelsson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. Hún varð samt ráðherra en ekki þau. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Sigríður Andersen lenti neðar í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­manna fyrir síð­ustu kosn­ingar en bæði Brynjar Níelsson og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir. Hún varð samt ráð­herra en ekki þau. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Val á ráð­herrum flokks­ins braut ýmsar venjur sem tíðkast hafa í Sjálf­stæð­is­flokknum, meðal ann­ars þess til­lits sem tekið hefur verið til að full­trúar allra kjör­dæma fái valda­emb­ætti. Bjarni ákvað að skipa Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, sem skip­aði annað sæti á lista flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, í ráð­herra­emb­ætti. Hún hefur umtals­verða reynslu af stjórn­mála­starfi þrátt fyrir ungan aldur, en Þórdís Kolbrún var fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks áður en að hún gerð­ist aðstoð­ar­maður Ólafar Nordal. Fyrir liggur þó að gengið var fram hjá odd­vita þess kjör­dæmis, Haraldi Bene­dikts­syni, meðal ann­ars vegna kynja­sjón­ar­miða. Haraldur stað­festi það sjálfur í við­tali við Morg­un­blaðið á mið­viku­dag þar sem hann sagði skipan hennar hafa verið sam­eig­in­lega hug­mynd hans og Bjarna því hann vissi að for­maður flokks­ins væri í vand­ræðum vegna kynja­halla. Kristján Þór Júl­í­us­son var síðan alltaf öruggur með ráð­herra­stól.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son hefur mjög sterka stöðu innan Sjálf­stæð­is­flokks, sér­stak­lega í gras­rót­ar­starfi flokks­ins og innan ákveð­inna hverf­is­fé­laga. Auk þess leiddi hann annað Reykja­vík­ur­kjör­dæmið og gerði skýrt til­kall til ráð­herra­emb­ættis. Órói hefði skap­ast í kreðsum innan flokks­ins ef gengið yrði fram hjá Guðlaugi Þór annað kjör­tíma­bilið í röð.

Það val sem kom mest á óvart, sam­hliða val­inu á Þórdísi Kolbrúnu, var á Jóni Gunn­ars­syni. Jón sat í þriðja sæti á lista Sjálf­stæð­is­manna í Kraganum, kjör­dæmi Bjarna, og er náinn sam­starfs­maður for­manns­ins. Með því að hafa Jón í rík­is­stjórn þá styrkir Bjarni stöðu sína innan hennar. Það skiptir máli í ljósi þess að flokk­arnir sem í henni sitja hafa ein­ungis eins manns meiri­hluta á þingi.

Skipan hans leiddi hins vegar til þess að Suð­ur­kjör­dæmi, þar sem flokk­ur­inn fékk fjögur af tíu þing­sætum og vann mik­inn kosn­inga­sigur, var án ráð­herra. Bjarni leysti það með því að gera Unni Brá Kon­ráðs­dóttur, sem hafði verið færð upp í fjórða og síð­asta sætið sem gaf þing­sæti á lista Sjálf­stæð­is­manna eftir að Ragn­heiður Elín Árna­dóttir hætti við fram­boð, að for­seta Alþingis. Þannig gat hann rök­stutt til­lit­semi við kjör­dæmið og jafn­ræði kynja í ljósi þess að fjórir ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks eru karlar en tveir konur.

Páll opinberar óánægju

Efsti maður á lista flokks­ins, Páll Magn­ús­son, sá þetta ekki alveg sömu augum. Við­mæl­endur Kjarnans segja að hann sé fok­illur vegna þess að gengið hafi verið fram­hjá honum. Hann setti stöðu­upp­færslu á Facebook á mið­viku­dag þar sem hann sagði tvær ástæður fyrir því að ómögu­legt hafi verið að styðja ráð­herra­skip­an­ina. Önnur væri sú að skip­anin gangi í veiga­miklum atriðum gegn því lýð­ræð­is­lega umboði sem þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefðu áunnið sér í próf­kjörum og síðan í kosn­ing­unum í haust. Í öðru lagi fæli hún í sér „lít­ils­virð­ingu gagn­vart Suð­ur­kjör­dæmi þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vann sinn stærsta sigur í kosn­ing­un­um.“

En af hverju gekk Bjarni fram hjá Páli? Hann hefði til dæmis mjög auð­veld­lega getað skipað hann í rík­is­stjórn í stað Jóns Gunn­ars­sonar með mjög skýrum rökum. Aug­ljós­asta ástæðan er sú að Páll er með öllu reynslu­laus í stjórn­málum. Hann hóf ein­ungis stjórn­mála­þátt­töku sína í aðdrag­anda próf­kjörs í fyrra, en hafði þar áður starfað við fjöl­miðla í ára­tugi.

En heim­ildir Kjarnans herma líka að heift­úð­leg gagn­rýni Páls á Illuga Gunn­ars­son, frá­far­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, á opin­berum vett­vangi á und­an­förnum árum skipti þar líka máli. Illugi og Bjarni hafa verið mjög nánir sam­starfs­menn.

Opin­berar deilur Illuga og Páls hófust þegar Páll hætti sem útvarps­stjóri RÚV í des­em­ber 2013 þar sem hann taldi sig ekki njóta trausts stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins. Þá hafði stjórnin (Illugi var ráð­herra mála­flokks­ins) ákveðið að aug­lýsa starf hans til umsóknar. Þegar Orku Energy-málið kom upp – en það reynd­ist Illuga mjög póli­tískt erfitt – gagn­rýndi Páll þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra harð­lega í blaða­greinum og kall­aði eftir afsögn hans. Í grein sem Páll skrif­aði í Frétta­blaðið í maí 2015 sagði hann að fram­ganga Illuga gæti „raunar til­heyrt dæma­safni í hand­bók um póli­tískt sið­leysi[...]Ráðherra getur ekki notað stöðu sína sem slíkur til að greiða fyrir við­skipta­hags­munum ein­stak­lings eða fyr­ir­tækis sem skömmu áður hefur rétt honum fjár­hags­lega, per­sónu­lega, hjálp­ar­hönd. Þetta hlýtur að vera öllum ljóst, jafn­vel á Íslandi. Á Vest­ur­löndum víkur slíkur ráð­herra.“

Í októ­ber sama ár skrif­aði Páll aðra grein í sama blað. Þar kall­aði hann aftur eftir afsögn Illuga og sagði: „Nú er liðið eitt sumar síðan upp­lýst var að mennta­mála­ráð­herra bað um og fékk per­sónu­legan fjár­stuðn­ing frá aðila sem hann síðan veitti póli­tíska fyr­ir­greiðslu vegna við­skipta­hags­muna í Kína. Póli­tísk spill­ing verður ekki aug­ljós­ari en þetta.“

Þessi fram­ganga Páls er ekki gleymd innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins og margir stuðn­ings­menn Illuga hafa ekki fyr­ir­gefið hana.

Sagði sáttmálann „frauðkenndan“

Morg­un­blaðið tjáði sig loks um stjórn­ar­sátt­mál­ann í leið­ara í gær­morgun. Þar segir Davíð Oddsson að sátt­mál­inn sé frauð­kenndur, marg­orður og segi oft­ast fátt „rétt eins og Dagur B. Egg­erts­son hefði gert upp­kastið og lesið próförk.“

Fram komi í honum að rík­is­stjórnin ætli að halda áfram til­burðum „vinstri­st­jórn­ar­innar gegn íslensku stjórn­ar­skránni“. Sú ákvörðun að skylda öll fyr­ir­tæki með fleiri en 25 starfs­menn til að taka upp jafn­launa­vottun er harð­lega gagn­rýnd og til­vist kyn­bund­ins launa­munar raunar yfir höfuð dregin í efa. Hnýtt er fast í þau ákvæði sátt­mál­ans sem snúa að inn­flytj­enda­málum og segir for­sögn um skatta­mál ekki lofa góðu. Sam­an­dregið virð­ast stjórn­endur Morg­un­blaðs­ins alls ekki ánægðir með þá rík­is­stjórn sem mynduð hefur verið né þann stjórn­ar­sátt­mála sem und­ir­rit­aður var á þriðju­dag, þrátt fyrir að um sé að ræða rík­is­stjórn undir for­sæti for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Það eru nýmæli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár