Netflix missir óvænt flugið

Mettun mark­aðar, verð­bólga, verð­hækk­anir, aukin sam­keppni og stríð eru þættir sem Netflix gat átt von á en ekki að þeir yrðu á dag­skrá allir á sama tíma.

Við opnun mark­aða á Wall Street í morgun lækk­aði virði streym­isveit­unnar Netflix um heil 26 pró­sent. For­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins höfðu þá nýlega til­kynnt að í stað þess að fá 2,5 milljón nýja áskrif­endur á fyrsta árs­fjórð­ungi líkt og áætl­anir gerðu ráð fyrir, var um 200 þús­und áskriftum sagt upp. Að auki töp­uð­ust um 700 þús­und áskrif­endur er Netflix ákvað að loka fyrir þjón­ustu sína í Rúss­landi eftir inn­rás­ina í Úkraínu.

Þetta er í fyrsta sinn í ára­tug sem áskrif­endum fækkar hjá streym­isveit­unni og er því nú spáð að þeim muni halda áfram að fækka, jafn­vel um 2 millj­ónir til við­bótar, á yfir­stand­andi árs­fjórð­ungi.

Og það jafn­vel þótt að þátt­araðir sem beðið hefur verið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu verði senn á dag­skrá, m.a. næstu ser­íur af Stranger Things og Ozark.

[adspot]

Viðbrögð Netflix eru m.a. þau að bjóða upp á nýja og ódýr­ari áskrift­ar­leið – þar sem aug­lýs­ingar verða birtar. Svipaðar leiðir eru farnar hjá helstu sam­keppn­is­að­il­unum, HBO Max og Disney+.

Reed Hastings, for­stjóri Netflix, seg­ist alla tíð hafa verið mót­fall­inn því að hafa aug­lýs­ingar í streym­isveit­unni. Hann hafi viljað hafa áskrift að Netflix ein­falda og þægi­lega. En nú hafa tím­arnir breyst og það hratt.

Áhrif stríðs­ins í Úkraínu á alþjóða hag­kerfið, m.a. með auk­inni verð­bólgu og verð­hækk­unum á nauð­synja­vörum, verða sífellt meiri og aug­ljós­ari og er staða Netflix ein birt­ing­ar­mynd þess. Hins vegar hefur fleira komið til s.s. aukin sam­keppni. Þá hafði kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn, sem Netflix græddi á á meðan heims­byggðin var stödd í honum miðjum með útgöngu­banni og ein­angr­un­ar­vist, efna­hags­legar afleið­ingar. Vöru­fram­leiðsla tafð­ist og flutn­ingar vara sömu­leiðis. Þetta hökkt í keðj­unni, eins og það hefur stundum verið kallað, átti hins vegar að jafna sig á nokkrum mán­uðum. Innrás Rússa í Úkraínu hefur hins vegar sett allt í upp­nám.

Auka árásir í austri

Stríðið í Úkraínu hefur staðið í 55 daga. Mannfall er mikið og Rússar herja nú á aust­ur­hluta lands­ins sem aldrei fyrr. Ástandið er einnig hrika­legt í borg­inni Maríupol sem Rússar eru með í her­kví. Þeir hafa gefið úkra­ínska hernum frest til morg­uns til að gef­ast upp í bar­átt­unni um borg­ina.

BBC greindi frá því í morgun að svo virð­ist sem Rússar hafi náð yfir­hönd­inni í borgum í austri sem næstar eru landa­mærum þeirra. Herir þeirra hafa hins vegar dregið sig frá höf­uð­borg­inni Kænu­garði og norð­ur­hluta Úkraínu. Miklum her­styrk er því nú beitt í austri og segj­ast Rússar hafa ráð­ist á yfir þús­und hern­að­ar­leg skot­mörk í nótt.

Millj­ónir hafa flúið Úkraínu og ljóst að margir eiga þangað ekki aft­ur­kvæmt í nán­ustu fram­tíð enda borgir og bæir rústir að hluta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár