Nefnd um dómarastörf hefur rætt ráðgjöf Davíðs Þórs Í Landsréttarmálinu

Davíð Þór Björg­vins­son lands­rétt­ar­dóm­ari hefur upp­lýst nefnd um dóm­ara­mál um ráð­gjafa­störf sín í Lands­rétt­ar­mál­inu. Það gerði hann sama dag og bréf var sent til rík­is­lög­manns þar sem spurst var fyrir um auka­störf hans.

Davíð Þór Björg­vins­son, dóm­ari í Lands­rétti, upp­lýsti nefnd um dóm­ara­störf um ráð­gjaf­ar­störf sín fyrir íslenska ríkið í tengslum við Lands­rétt­ar­málið svo­kall­aða með bréfi 9. októ­ber síð­ast­lið­inn. Málið var enn fremur rætt á fundi nefnd­ar­innar sem fór fram 23. októ­ber síð­ast­lið­inn en vinnslu þess er ekki lokið. Þegar henni verður lokið munu upp­lýs­ingar um auka­störf Davíðs Þórs verða færðar í opin­bera skrá á vef nefnd­ar­innar. Þetta kemur fram í svari Hjör­dísar Bjarkar Hákon­ar­dóttur, for­manns nefndar um dóm­ara­störf, við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Davíð Þór var dóm­ari við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu í níu ár. Hann var á meðal þeirra 15 sem skip­aðir voru í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt í júní 2017. Þegar Lands­réttur tók til starfa í byrjun árs 2018 var Davíð Þór veitt leyfi frá dóm­ara­störfum þar sem hann gegndi emb­ætti setts sak­sókn­ara í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu. Davíð Þór tók síðan til starfa við rétt­inn 1. októ­ber 2018.

Veitti ráðgjöf við ritun greinargerðar

Áður en að hann tók til starfa hafði Davíð Þór sinnt ráð­gjöf vegna rit­unar grein­ar­gerðar af hálfu rík­is­lög­manns til Mann­réttind­ar­dóm­stóls Evrópu í svoköll­uðu Lands­rétt­ar­máli. Í því máli vill íslenskur maður meina að Arn­fríður Ein­ars­dóttir sé van­hæf til að dæma í Lands­rétti. Það mál er nú í flýti­með­ferð fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum og íslenska ríkið skil­aði nýverið grein­ar­gerð sinni í mál­inu. Kjarninn greindi frá inni­haldi hennar á mánu­dag en grein­ar­gerð­inni var skilað 27. sept­em­ber 2018, nokkrum dögum áður en að Davíð Þór hóf störf í Lands­rétti.

Arn­­fríður var einn fjög­­urra umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara vil Lands­rétt sem Sigríður Á. Andersen dóms­­mála­ráð­herra lagði til að yrði skipuð í stað þeirra fjög­­urra sem sér­­­stök dóm­nefnd mat hæf­asta. Hæsti­réttur Íslands komst svo að þeirri nið­ur­stöðu í des­em­ber 2017 að dóms­mála­ráð­herra hefði brotið stjórn­sýslu­lög með því að sinna ekki rann­sókn­ar­skyldu sinni með nægj­an­legum hætti þegar hún ákvað að skipta út þeim umsækj­endum sem metnir höfðu verið hæf­astir af dóm­nefnd­inni.

Telur Davíð Þór vanhæfan

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður manns­ins í mál­inu sem er fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum, hefur farið fram á að Davíð Þór taki ekki sæti í málum sem Vil­hjálmur ræki fyrir Lands­rétti í ljósi þess að hann hefði gert sig van­hæfan með því að veita rík­is­lög­manni ráð­gjöf.

Þann 9. októ­ber sendi Vil­hjálmur bréf til Einars Karls Hall­varðs­sonar rík­is­lög­manns. Þar sagði meðal ann­ars að Vil­hjálmur fengi ekki betur séð en að „í þessum auka­störfum Davíðs Þórs fyrir rík­is­lög­mann felist hags­muna­gæsla fyrir Arnfríði Ein­ars­dóttur lands­rétt­ar­dóm­ara og þá um leið hina þrjá lands­rétt­ar­dóm­ar­ana sem dóms­mála­ráð­herra tók fram fyrir röð við stofnun Lands­réttar. Að mínu mati er ljóst að Davíð Þór hefur gert sig van­hæfan til þess að taka sæti í dómi í Lands­rétti með ein­hverjum af þessum fjórum „umbjóð­endum“ sínum“.

Í bréf­inu segir Vil­hjálmur einnig að Davíð Þór hafi „látið hjá líða að upp­lýsa nefnd um dóm­ara­störf[...]um auka­störf sín og eftir atvikum van­rækt að fá leyfi nefnd­ar­innar til þess að sinna þessum auka­störfum.“ Þá fór hann fram á að vita hvort Davíð Þór hefði fengið greitt fyrir ráð­gjafa­störf sín.

Sama dag og Vil­hjálmur sendi bréfið á rík­is­lög­mann greindi Davíð Þór nefnd um dóm­ara­störf frá þeim störfum sem hann hafði unnið fyrir rík­is­lög­mann vegna grein­ar­gerðar sem skilað hafði verið inn til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins tólf dögum fyrr.

Sagði engar greiðslur hafa verið inntar af hendi

Þann 16. októ­ber birti RÚV frétt um það að Vil­hjálmur hefði kraf­ist þess að Davíð Þór viki sæti í Lands­rétti. Þar var rætt við Davíð Þór þar sem hann stað­festi að hafa veitt ráð­gjöf í mál­inu en að grein­ar­gerð rík­is­ins væri ekki und­ir­rituð af honum né bæri hann ábyrgð á henni á nokkurn hátt. Þá sagði hann að engar greiðslur hefðu verið inntar af hendi fyrir ráð­gjöf­ina.

Rík­is­lög­maður svar­aði bréfi Vil­hjálms 19. októ­ber og stað­festi þar að Davíð Þór hefði veitt ráð­gjöf „í tengslum við það mál sem um ræðir“. Þar sagði enn fremur að Davíð Þór hefði verið í leyfi frá störfum sem dóm­ari við Lands­rétt þegar ráð­gjöfin var veitt. Spurn­ingu Vil­hjálms um hvort Davíð Þór hefði fengið greitt var ekki svarað.

Áður en Davíð Þór veitti rík­inu ráð­gjöf í mál­inu hafði hann tjáð sig opin­ber­lega um hvað nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í því myndi þýða. Það gerði hann í pistli sem hann birti á vef­síðu sinni 1. júlí 2018. Í sam­tali við Morg­un­út­varp Rásar 2 dag­inn eftir sagði hann enn fremur að ef dóm­stól­inn myndi dæma íslenska rík­inu í óhag myndi það ekki þýða að dóm­arar við rétt­inn missi stöðu sína eða að dómar þeirra verði ógildir. „Þetta er ekki jafn­dramat­ískt og hefur verið teiknað upp,“ sagði Davíð.

Almennt greitt fyrir ráðgjöf en engin reikningur hefur borist

Dómurum er almennt óheim­ilt að veita lög­fræði­lega ráð­gjöf gegn end­ur­gjaldi. Í svari Katrínar Jak­obs­dóttur við við fyr­ir­spurn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, um veitta ráð­gjöf störf við tíma­bundin eða afmörkuð verk­efni, sem birt var á vef Alþingis 16. októ­ber, kemur fram að Davíð Þór hafi sinnt ráð­gjöf vegna rit­unar grein­ar­gerðar af hálfu rík­is­lög­manns til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Síðan sagði: „Greiðslur hafa enn sem komið er ekki verið inntar af hendi til verk­tak­ans.“

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á for­sæt­is­ráðu­neytið og bað um að þetta yrði skýrt frekar. Í svari þess sagði að ritun grein­ar­gerð­ar­innar af hálfu rík­is­lög­manns var unnin í sam­ráði við for­sæt­is­ráðu­neytið og dóms­mála­ráðu­neytið. „Óskaði for­sæt­is­ráðu­neytið eftir því að leitað yrði ráð­gjafar fær­ustu sér­fræð­inga á þessu sviði og var í sam­ráði við rík­is­lög­mann m.a. leitað til Davíðs Þórs Björg­vins­sonar, sem er fyrr­ver­andi dóm­ari við Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn, og reynd­ist hann reiðu­bú­inn til að veita ráð­gjöf. Ráðu­neytið tekur fram að á þeim tíma sem ráð­gjöfin var veitt var Davíð Þór í leyfi frá störfum sem dóm­ari við Lands­rétt og tók ekki til starfa við rétt­inn fyrr en í byrjun þessa mán­aðar.“

For­sæt­is­ráðu­neytið sagði að greiðslur fyrir ráð­gjöf­ina hafi enn sem komið er ekki verið inntar af hendi til Davíðs Þórs. „Ráðu­neytið greiðir almennt fyrir utan­að­kom­andi ráð­gjöf en reikn­ingur vegna þeirrar ráð­gjafar sem að ofan greinir hefur ekki borist ráðu­neyt­inu.“

Rætt á fundi nefndarinnar

Kjarninn sendi í kjöl­farið fyr­ir­spurn á nefnd um dóm­ara­störf og spurði hvort að nefndin hafi tekið ráð­gjafa­störf Davíðs Þórs til skoð­unar. Í svari Hjör­dísar Bjarkar Hákon­ar­dóttur, for­manns nefnd­ar­innar, sagði að Davíð Þór hefði upp­lýst nefnd­ina um auka­störf sín þegar hann var settur hæsta­rétt­ar­dóm­ari í tvo mán­uði árið 2017, í byrjun árs 2018 og með bréfi 9. októ­ber síð­ast­lið­inn. „Þar sem hann var í leyfi frá upp­hafi skip­unar sinnar í Lands­rétt voru upp­lýs­ingar um auka­störf hans ekki settar í þá skrá yfir auka­störf dóm­ara sem birt er opin­ber­lega. Hann er nú tek­inn til starfa og eru auka­störf hans í vinnslu hjá nefnd­inni sam­kvæmt erindi hans frá 9. þessa mán­aðar. Málið var rætt á fundi nefnd­ar­innar 23. októ­ber, en for­maður nefnd­ar­innar og annar nefnd­ar­maður voru erlendis frá 8. októ­ber til 18. októ­ber. Þegar vinnslu er lokið verða upp­lýs­ingar færðar í hina opin­beru skrá á vef nefnd­ar­innar.“

Þar sagði enn fremur að rétt væri að taka fram að „upp­lýs­ingar um auka­störf sem er lokið eru ekki geymdar í hinni opin­berru skrá. Samkvæmt 9. gr. reglna nr. 1165/2017 er að finna sér­staka heim­ild til handa aðila dóms­máls sem getur, vegna mál­sóknar, átt hags­muna að gæta að því er varðar upp­lýs­ingar um þann dóm­ara sem fer með málið. Mark­miðið er að aðil­inn geti full­vissað sig um óhlut­drægni dóm­ar­ans. Öðrum eru ekki veittar upp­lýs­ingar umfram það sem kemur fram í hinni opin­beru skrá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið undanfarið ár