Umferðin eykst hlutfallslega mest á Austurlandi

Umferð eykst mest á Þjóðvegi 1 um Aust­ur­land séu júní­mán­uðir síð­ustu fjög­urra ára bornir saman. Alls staðar hefur umferðin auk­ist en minnst aukn­ing er á Þjóðvegi 1 um Suð­ur­land.

Ef rýnt er í umferð­ar­tölur Vega­gerð­ar­innar fyrir síð­asta mánuð og þær bornar saman við sama tíma­bil i fyrra sést að umferð­ar­þungi heldur áfram að aukast á land­inu öllu eða um 4,6 pró­sent. Það er þróun sem hófst eftir að umferð náði lág­marki árið 2012, en frá 2009 til 2012 minnk­aði umferð­ar­þungi um þjóð­vegi Íslands hratt.

Nú er svo komið að umferð um Þjóðveg 1 er orðin jafn mikil og árið 2007 þegar umferð­ar­met var sett, segir á vef Vega­gerð­ar­innar sem miðar umferð­ar­vísi­tölu sína við árið 2005. Árið 2015 stefnir nú í að verða mesta umferð­ar­árið um Þjóðveg 1. Áhuga­vert er að bera umferð­ar­þunga um Hring­veg­inn saman við þróun vergrar lands­fram­leiðslu.

Fólk fylgir veðrinu


Inntur eftir skýr­ingum á því hvers vegna aukn­ingin var svo mikil milli ára á Aust­ur­landi seg­ist Stefán Bogi Sveins­son, bæj­ar­full­trúi í Fljóts­dals­hér­aði, telja veðrið spila stóran þátt. Ferða­menn fylgi veðr­inu eins og Íslend­ingum hefur alltaf verið tamt í sum­ar­fr­íum.

Ekki er hægt að full­yrða að veðrið sé ein­hver hvati til auk­ins akst­urs milli lands­hluta en merkja má ein­hverja fylgni með góðu veðri og auk­inni umferð um Aust­ur­land. Þannig var með­al­hiti á Egils­stöðum í júní 2013 tveimur gráðum yfir með­al­lagi og með hærri með­al­gildum á land­inu. Aukning umferðar frá árinu áður var 18,2 pró­sent.

Sömu sögu er að segja um árið 2014 þegar með­al­hiti á Egils­stöðum var 2,5 gráðum yfir með­al­lagi í júní. Umferð um svæðið jókst þá um 16,7 pró­sent frá árinu áður.

Á vef Veð­ur­stof­unnar má lesa að veð­ur­far í júní var nokkuð leið­in­legt og hiti undir með­al­lagi síð­ustu tíu ára um land allt. Að til­tölu var þó hlýj­ast á Aust­fjörðum en mjög kalt suð­vest­an­lands og sér­stak­lega kalt á hálend­inu. Umferð jókst í takt við þetta hlut­falls­lega mest á Aust­ur­landi.

Mikil upp­bygg­ing ferða­þjón­ustu á Aust­ur­landi gæti spilað rullu, telur Stefán Bogi, enda hefur verið tölu­vert fjár­fest í þjón­ustu fyrir ferða­fólk í Fljóts­dals­hér­aði. Gisti­rýmum hefur fjölgað og út frá því spretta veit­inga­hús og annað slíkt. Mark­aðs­málin hafa jafn­framt verið tekin fast­ari tökum eystra, en Stefán Bogi segir það hins­vegar ekki endi­lega skýra neitt enda sé sam­keppnin mikil milli allra aðila ferða­þjón­ust­unnar.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Árið 2015 stefnir í að verða mesta umferð­arár í sög­unni. (Mynd: Birgir Þór)[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár