Stjórnarandstaðan mun reyna að mynda meirihluta

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir á Alþingi, Píratar, Björt fram­tíð, Sam­fylk­ingin og Vinstri-græn, ætla að reyna að mynda meiri­hluta­stjórn eftir kosn­ingar ef þeir fá til þess umboð. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingum frá leið­togum flokk­anna á Facebook, en þau fund­uðu öðru sinni í morgun.

Flokk­arnir fjórir hafa á tveimur fundum skoðað kosn­inga­á­herslur flokk­anna og segj­ast finna mik­inn sam­hljóm. „Við teljum sam­starf þess­ara flokka vera skýran val­kost við núver­andi stjórn­ar­flokka sem getur skapað ný tæki­færi fyrir íslenskt sam­fé­lag. Á grund­velli þessa teljum við fulla ástæðu til að kanna mögu­leika á myndun meiri­hluta­stjórnar ef þessir flokkar fá til þess umboð í kom­andi kosn­ingum.“

Birgitta Jóns­dóttir, Óttarr Proppé, Oddný Harð­ar­dóttir og Katrín Jak­obs­dóttir settu öll inn sömu yfir­lýs­ing­una á Facebook síður sínar, og segja flokk­ana hafa unnið vel saman í stjórn­ar­and­stöðu á þessu kjör­tíma­bili, „sem er óvenju stutt vegna afhjúpana Panama-skjal­anna sem sýndu tengsl rík­is­stjórn­ar­flokk­anna við aflands­fé­lög í skatta­skjólum.

Nú er rétti tím­inn til að ráð­ast í þau verk sem þjóðin kallar eftir, upp­bygg­ingu inn­viða og skapa traustan og stöðugan grunn fyrir aukin lífs­gæði. Það þarf nýja for­gangs­röðun og sýn á sam­fé­lagið. Til að var­an­legur stöð­ug­leiki kom­ist á, verður að ástunda ábyrga efna­hags­stjórn en jafn­framt vinna að félags­legum stöð­ug­leika. Að öðrum kosti næst ekki sátt í sam­fé­lag­inu að loknum kosn­ingum. Þörf er á betri vinnu­brögðum sem byggj­ast á fag­mennsku, sam­vinnu og gagn­sæi. Vanda þarf til verka og inn­leiða kerf­is­breyt­ingar skref fyrir skref,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár