Karl Gauti og Ólafur reknir úr Flokki fólksins

Þeir munu sitja áfram sem Alþing­is­menn. Harmað er að þeir hafi kastað rýrð á flokk­inn með fram­göngu sinni.

„Í ljósi alvar­legs trún­að­ar­brests sem upp er kom­inn í þing­flokki Flokks fólks­ins ákvað stjórn flokks­ins á nýaf­stöðnum fundi sínum í dag, að vísa þing­mönnum flokks­ins þeim Karli Gauta Hjalta­syni og Ólafi Ísleifs­syni úr Flokki fólks­ins.“

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Flokki fólks­ins, en vitnað er til sam­þykkta flokks­ins, en í þeim segir: „Sé félags­maður stað­inn að því, að vinna gegn meg­in­mark­miðum og hags­munum Flokks fólks­ins, skal hann sviptur félags­að­ild og skal það gert á stjórn­ar­fundi með auknum meiri­hluta atkvæða og félags­manni til­kynnt það form­lega“.

Jafn­framt segir að stjórn flokks­ins harmi þá rýrð sem fram­ganga þeirra sem tóku þátt í fundi þing­manna á Klaustri bar hinn 20. nóv­em­ber.

Karl Gauti og Ólafur, sátu á fund­inum með þing­mönnum Mið­flokks­ins, þeim Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, Bergþóri Ólasyni, Gunnari Braga Sveins­syni og Önnu Kolbrúnu Árna­dóttur. Á fund­inum töl­uðu þeir með niðr­andi hætti um konur sér­stak­lega, og lét Karl Gauti hafa eftir sér að Inga Sæland gæti ekki stjórnað Flokki fólks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár