„Eignast Jeppa“ á veglegum vínyl

20 ára þriggja vinyl-plötu afmæl­is­út­gáfa hljóm­sveit­ar­innar Stafræns Hákonar er í píp­unum. Safnað er fyrir henni á Karolina fund.

Stafrænn Hákon (einnig þekktur sem Ólafur Jós­eps­son) vakn­aði eins og púpa til lífs­ins vorið 2001 þegar platan „Eignast jeppa” var gefin út af tón­list­ar­mann­inum sjálfum. Henni var dreift í helstu hljóm­plötu­versl­anir á þeim tíma eins og Hljóma­lind, 12 Tóna og Japis. Nokkuð snögg­lega vakti hún tölu­verða athygli meðal tón­list­ar­manna og áhuga­manna við útgáfu sína. Platan þótti hrá, sveim­andi og naum­hyggju­leg því mús­íkin féll vel inn í tón­list­ar­um­hverfið, en hið svo­kall­aða „síð/sveim­rok” hafði gert vart um sig á þessum tímum. Stafrænn Hákon hafði með plöt­unni sýnt fram á að hver sem er gæti unnið sitt efni alfarið á eigin spýtum. Upptökur voru fram­kvæmdar í kjall­ara for­eldra hans, vopn­aður 4-rása kasettu­tæki, hljóð­færum og þar til gerðum verk­færum sem nauð­syn­leg þóttu til slíks heima­brúks.

Platan var svo gefin út af tón­list­ar­mann­inum sjálfum sem keppt­ist við að „brenna” geisla­diska, líma saman plötu­hulstur til að ann­ast eft­ir­spurn sem hafði mynd­ast, þá sér­stak­lega í hinni sál­ugu Hljóma­lind. Lítill fugl hvísl­aði því að hátt í 300 diskar hafi rokið þaðan út, sem þótti prýðis árangur hjá slíkum nýgræð­ingi á svið­inu. Tón­listin sem Stafrænn Hákon hafði skapað á þess­ari plötu hefur seint talist lík­leg til vin­sældar á sam­tíma-vin­sælda­listum hljóð­vakans, en hún þótti athygl­is­verð og þar við sat. Síðan þá hefur Stafrænn Hákon gefið út með þó nokkru jöfnu milli­bili 11 stórar plötur ásamt því að leggj­ast þó nokkrum sinnum í stuttar spila­ferðir erlendis. Plötur hans hafa komið út á vegum erlendra útgáfu­fyr­ir­tækja í gegnum árin og mætti segja að platan „Eignast jeppa” hafi opnað fyrir tón­list­ar­mann­inum þá gátt. Banda­ríska útgáfan Secret Eye gaf svo „Eignast jeppa” plöt­una út árið 2003 í mjög tak­mörk­uðu upp­lagi.

[adspot]Stafrænn Hákon segir að verk­efnið hafi verið nokkuð óum­flýj­an­legt, af þeirri ástæðu að platan á afmæli á næsta ári. „Þessi plata er eins og hún er, barn síns tíma og ég kannski var aldrei 100% ánægður með hana þegar ég gaf hana út fyrst. Vænt­um­þykjan var samt til staðar og það eru lög þarna sem eiga fast sæti í hjarta mínu. Senni­lega er það vegna þess að platan er sú fyrsta sem ég geri alfarið einn míns liðs. Platan verður sem sagt 20 ára gömul á næsta ári, sem mér fannst bara mjög stór og mik­il­fengur áfangi í sjálfu sér. Opnaðist því sá gluggi uppá gátt til að end­ur­skoða þetta verk aðeins nánar og sjá hvort hægt væri eitt­hvað að gera til að vekja gamlan vin úr vægum svefni. En platan var hljóð­rituð alfarið á kasettu­tæki með 4 rásir. Spól­urnar hafa legið í dvala ofaní skúff­unni og lítið sem ekk­ert að þeim hlúið, enda kannski engin ástæða til. Um tíð­ina hef ég kom­ist yfir ögn betri raf­magns­tæki og tólum til tón­list­ar­sköp­unar í stúd­íó­inu sem ég hef komið mér upp útí bíl­skúr. Til­raunir hófust því og efnið var yfir­fært í tölv­una til frek­ari rann­sóknar. Til mik­illar lukku þá hljómar þetta bara betur ef eitt­hvað er núna eftir yfir­færsl­urnar.“

Þema verk­efn­is­ins er nokkuð skýrt að sögn Stafræns Hákonar; 20 ára afmæl­is­út­gáfa á fyrstu plöt­unni með til­heyr­andi efni og auka­efni. „Þegar ég opn­aði spólu­skúff­una fannst við grand­skoðun ýmis­legt efni sem ekki rataði á plöt­una í upp­hafi. Miklar vanga­veltur hófust varð­andi inni­hald skyldi prýða þessa veg­legu við­hafnar­út­gáfu. Stafrænn Hákon hefur verið síð­ustu árin starfað sem hljóm­sveit, en ekki ég ein­sam­all eins og það var fyrstu svona 10 árin eða svo. Ég ræddi því við núver­andi hljóm­sveit­ar­með­limi Stafræns Hákonar og bar undir þá hug­mynd að taka upp plöt­una í nýrri útgáfu bara eins og við værum að fara að gera splunku­nýja plötu, leyfa því svo að vera sem auka­efni á þess­ari end­ur­út­gáfu. Sú hug­mynd var snar­lega sópuð af borð­inu. Mér fannst hún afbragðs hug­mynd þó hinir voru ekk­ert sér­stak­lega sam­mála mér um það. Þeir voru heið­ar­legir og fannst þessi fyrsta plata Stafræns vera ein­getið hug­verk sem til­heyrði mér, sem það rétti­lega er. Ég tók því þessa pæl­ingu bara áfram eins míns liðs og end­ur­hljóð­rit­aði lögin öll aftur ásamt öðrum gömlum ókláruðum óheyrðum hug­myndum, end­ur­hljóð­blönd­uðum lögum frá nokkrum af mínum eft­ir­lætis íslensku raf­tón­list­ar­mönnum, og fá þau að njóta sín hér. Það var viss áskorun að fara í slíka aðgerð að hljóð­rita lög aftur, því ég hefði getað farið langt út fyrir rammann og farið í ein­hverja allt aðra átt með þetta. Það væri óheið­ar­leg nálgun á þetta verk, sökum ein­fald­leik­ans sem býr á bak­við plöt­unnar. Ég við­ur­kenni fús­lega að ég hefði alveg þegið nokkrar auka rásir á kasettu­tækið á sínum tíma. Þá var bara að koma sér eftir fremsta megni í sama ástand og árið 2001 og gera þessum lögum eins góð skil og ég gat eftir þeirri upp­skrift sem upp­haf­lega var gerð. Sveigj­an­leik­inn var meiri og nú skildi vanda sig örlítið meira við lögin og hver veit nema að nýju útgáf­urnar hafi sama sjarma og heið­ar­leika og gömlu útgáf­urnar. Það kemur í ljós.

Hér er hægt að taka þátt í fjár­mögn­un­inni og for­kaupa vinyl plöt­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár