Þorsteinn Sigurðsson skipaður nýr forstjóri Hafró

Kristján Þór Júl­í­us­son hefur skipað Þorstein Sig­urðs­son í emb­ætti for­stjóra Haf­rann­sókna­stofn­unar. Sigurður Guð­jóns­son, sem stýrt hefur stofn­un­inni frá 2016, var á meðal umsækj­enda um stöð­una en hlaut ekki skipan að nýju.

Þorsteinn Sigurðsson hefur verið skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar.
Þor­steinn Sig­urðs­son hefur verið skip­aður for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­unar. Mynd: Af vef stjórnarráðsins

Þor­steinn Sig­urðs­son hefur verið skip­aður í emb­ætti for­stjóra Haf­rann­sókna­stofn­unar til næstu fimm ára, en frá þessu segir í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra skip­aði í stöð­una eftir að hafa tekið þá þrjá ein­stak­linga sem hæfn­is­nefnd mat vel hæfa til að gegna emb­ætt­inu í við­tal. Mat Krist­jáns var að Þor­steinn væri hæf­astur umsækj­enda til að stýra Haf­rann­sókna­stofnun.

Alls bár­ust sex umsóknir um emb­ættið, en umsókn­ar­frestur rann út þann 19. jan­úar. Á meðal umsækj­enda um stöð­una var Sigurður Guð­jóns­son, sem hefur verið for­stjóri stofn­un­ar­innar und­an­farin fimm ár.

Þor­steinn, sem nú hefur verið skip­aður í emb­ættið frá og með morg­un­deg­inum, var á meðal umsækj­enda þegar Sigurður var skip­aður árið 2016.

Hjá Hafró frá 1994-2019

Þor­steinn er með BS-gráðu í líf­fræði frá Háskóla Íslands og Cand. Scient gráðu frá Háskól­anum í Bergen. Hann hóf störf sem sér­fræð­ingur hjá Haf­rann­sókna­stofnun árið 1994 og var for­stöðu­maður hjá stofn­un­inni allt frá árinu 2005 til 2019.

Árin 2005 til 2016 starf­aði hann sem for­stöðu­maður nytja­stofna­sviðs og frá árinu 2016 til 2019 var hann for­stöðu­maður sviðs upp­sjáv­ar­líf­ríkis.

Í fyrra hóf Þor­steinn hins vegar störf sem sér­fræð­ingur á skrif­stofu sjáv­ar­út­vegs og fisk­eldis í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, sem nú er orðin skrif­stofa sjáv­ar­út­vegs­mála.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hafrannsóknastofnun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár