Forsætisráðherra hringdi á lögreglu vegna blaðamanna Aftenposten

Blaða­maður og ljós­mynd­ari frá Aften­posten reyndu að ná tali af for­sæt­is­ráð­herra í morgun. Þeir voru í kjöl­farið stöðv­aðir af lög­reglu.

Blaða­maður og ljós­mynd­ari frá norska dag­blað­inu Aften­posten voru stöðv­aðir af lög­reglu fyrir utan heim­ili Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra í dag þegar þeir reyndu að ná tali af for­sæt­is­ráð­herra. Frá þessu er greint í umfjöllun Aften­posten um Sigmund Davíð og félagið Wintris.

Aften­posten greinir frá því að blaða­maður og ljós­mynd­ari hafi farið heim til Sig­mundar Davíðs í morgun. Sig­mundur Davíð og Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona hans, hafi komið keyr­andi að hús­inu. Anna Sig­ur­laug er þar sögð hafa komið að máli við blaða­mann­inn, verið kurt­eis en ekki viljað koma í við­tal. Á meðan hafi Sig­mundur Davíð verið inni í bíl þeirra, og talað í sím­ann.

Nokkrum mín­útum síðar hafi Anna Sig­ur­laug komið út aftur og blaða­maður og ljós­mynd­ari hafi verið að und­ir­búa brott­för þegar lög­reglu­bíll kom keyr­andi. Tveir lög­reglu­menn hafi kraf­ist þess að sjá vega­bréf og pressupassa þeirra. Eftir stutt sam­tal við starfs­menn Aften­posten fóru lög­reglu­menn­irnir og ræddu við Sigmund Davíð, sem fór við það inn til sín.

[adspot]

Í stórum fjölmiðlum um allan heim

Umfjöllun um aflands­fé­lög íslenskra stjórn­mála­manna, og þá sér­stak­lega Sigmund Davíð, er áber­andi í stórum fjöl­miðlum víða um heim. Líkt og Kjarninn greindi frá fyrr í dag er gríð­ar­mikil umfjöllun í þýska stór­blað­inu Sueddeutsche Zeitung.

Í danska rík­is­út­varp­inu er fjallað um Sigmund Davíð, Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta og Lionel Messi knatt­spyrnu­mann í sömu frétt­inni. Sænska rík­is­sjón­varpið fjallar ítar­lega um Wintris, Sigmund Davíð og það hvernig hann varð for­sæt­is­ráð­herra vegna afstöðu sinna til kröfu­hafa meðal ann­ars.

Margir fjöl­miðlar hafa einnig gert við­talið við Sigmund Davíð, sem sænska rík­is­sjón­varpið tók ásamt Reykja­vík Media, að umtals­efni. SVT greinir frá þessu, sem og Guardian, sem greinir frá því á for­síðu að hann hafi gengið á dyr og yfir­gefið við­talið. Einnig er fjallað um það í Guardian að Sig­mundur Davíð muni nú þurfa að takast á við kröf­una um að boðað verði til kosn­inga og hann segi af sér.

Breska rík­is­út­varpið BBC fjallar ítar­lega um Sigmund Davíð í sinni umfjöllun um Panama­skjölin og það gerir franska stór­blaðið Le Monde líka. Þá er líka fjallað um mál­efni hans í ind­verskum fjöl­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár