Kókaínsögurnar halda áfram

Sería númer tvö af hinum vin­sælu Narcos þáttum var aðgengi­leg 2. sept­em­ber, en þegar hefur verið ákveðið að fram­leiða ser­íur númer 3 og 4.

Þátta­ser­í­urnar Narcos, sem byggðir eru á sönnum atburðum í kringum kóka­ín­stór­veldi Pablo Escobar í Kólumbíu, hafa notið mik­illa vin­sælda, en sería númer tvö var aðgengi­leg hjá Netflix 2. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og nýtur nú mik­illa vin­sælda um allan heim.

Stríð eiturlyfjabaróns

Í fyrstu ser­í­unni var fjallað um upp­gang kóka­ín­veldis Escobars, póli­tískan feril hans og grimmd­ar­leg ofbeld­is­verk hans þegar hann barð­ist gegn aðgerðum yfir­valda gegn víð­tækri starf­semi hans.

Í 2. seríu er síð­ari hlut­inn rak­inn, eftir að hann strauk úr fang­els­is­vist. Vett­vang­ur­inn er Medellín borg í Kólumbíu, ríf­lega tveggja millj­óna borg í dag, en ser­ían ger­ist á árunum 1991 til 1993, en Escobar var drep­inn í áhlaupi lög­reglu á fylgsni hans í borg­inni, 2. des­em­ber 1993. Hann var þá orð­inn ein­gr­aður og valda­hlut­föllin í kóka­ín­heim­inum, þar sem land­bún­að­ar­héruð í Kólumbíu eru meg­in­fram­leiðslu­svæðin, höfðu færst til Cali eit­ur­lyfja­hrings­ins.

Kókaínhringurinn

Hann lifir góðu lífi enn í dag, og hefur sterk ítök í gegnum Mexíkó. Meg­in­in­flutn­ings­svæði kóka­íns frá Kólumbíu er sem fyrr Banda­ríkin.

Frétta­vef­ur­inn The Verge greindi frá því í dag, að ser­íur númer 3 og 4 væru leið­inni og mun Netflix sem fyrr, fram­leiða þætt­ina.

Gagn­rýnendur hafa lofað þá fyrir góðan leik, og mikið afþrey­ing­ar­gildi.

Mikilvæg saga

„Það er ennþá mikið eftir í þess­ari sögu, sem hefur alltaf snú­ist um kókaín,“ segir Eric Newman í við­tali við Enerta­in­ment Weekly. Hann segir sam­fé­lagið í Kólumbíu þurfa að gera þennan tíma upp, þar sem eit­ur­lyfja­hringir náðu tökum á stjórn­kerf­inu á stórum svæðum, og halda þeim ennþá víða. Að því leyti séu þætt­irnir mik­il­væg sögu­leg heim­ild um hvernig þetta gerð­ist, og þar er Escobar tím­inn sér­stak­lega áhrifa­mik­ill.

Svipaða þróun hefur mátt greina í Mexíkó nú, einkum á svæðum þar sem eit­ur­lyfja­smygl hefur veru skipu­lagt frá eit­ur­lyfja­hringj­unum í Suður-Ameríku.

Samkvæmt skýrslu sem starfs­hópur Hvíta húss­ins birti í maí í fyrra, þá hefur fram­leiðsla kóka­íns í Kólumbíu auk­ist jafnt og þétt und­an­farin ár, og Kóka­laufa­krar stækkað til muna. Á árunum 2007 til 2012 dróst fram­leiðsla hins vegar umtals­vert saman í Kólumbíu, eða um 53 pró­sent. Mikil aukn­ing hefur svo aftur verið á árunum 2013, 2014 og í það minnsta fram eftir ári 2015, sam­kvæmt skýrslu hóps­ins. Sé mið tekið af tölum sem starfs­hóp­ur­inn birti þá er Kólumbía ennþá stærsta fram­leiðslu­svæði kóka­íns í heim­inum, en Perú og Bólivía eru einnig umfangs­mikil.

Eit­ur­lyfja­hringirnir í Suður-Ameríku teygja anga sína um allan heim og beita mis­kunn­ar­lausu ofbeldi og hót­unum, til að halda stöðu sinni í þessu risa­vaxna svarta hag­kerfi heims­ins.

Þrátt fyrir ára­tuga stríð yfir­valda gegn fíkni­efnum, og dauða Pablo Escobar, þá hefur það engin áhrif haft á kóka­ín­ver­öld­ina þar sem eft­ir­spurnin, ekki síst frá vel­stæðu fólki í Banda­ríkj­unum, eykst stöðugt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár