200 manna samkomutakmarkanir til 13. ágúst

Í mesta lagi 200 manns mega koma saman frá mið­nætti á morgun og þar til 13. ágúst og eins metra regla verður í gildi. Barir og veit­inga­hús þurfa að loka á mið­nætti.

Ríkisstjórnin fundaði á Egilsstöðum í dag. Mynd úr safni.
Rík­is­stjórnin fund­aði á Egils­stöðum í dag. Mynd úr safni. Mynd: Bára Huld Beck

Að hámarki 200 manns mega koma saman frá og með mið­nætti annað kvöld. Tekin verður upp eins metra nálægð­ar­regla og krár og veit­inga­hús þurfa að loka dyrum sínum á mið­nætti, og hætta að selja vín kl. 23. Fjölda­tak­mark­anir verða einnig teknar upp í sund­laugum og lík­ams­rækt­ar­stöðvum.

Þetta ákvað rík­is­stjórnin á fundi sínum á Egils­stöðum í dag, sam­kvæmt því sem fram kom í kvöld­fréttum RÚV og í útsend­ingu á Vísi.

Þar útskýrðu þær Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra stóru lín­urnar í því sem rík­is­stjórnin hefur ákveðið að grípa til í sam­ræmi við til­lögur sótt­varna­læknis.

Katrín sagði við RÚV að full sam­staða hefði verið innan rík­is­stjórn­ar­innar um að grípa til þess­ara aðgerða. Hún sagði að stjórnin hefði talið ástæðu til að „tempra stöð­una núna“, en fund­ur­inn á Egils­stöðum stóð yfir í tæpar þrjár klukku­stundir.

Mánuður er síðan allar sótt­varna­ráð­staf­anir inn­an­lands voru felldar úr gildi, en nú er á ný gripið til þess ráðs að hefta mann­lífið til þess að hægja á útbreiðslu COVID-19, en yfir þrjú hund­ruð manns hafa greinst með smit und­an­farna daga.

Þessi nið­ur­staða þýðir meðal ann­ars að fjöl­mennir tón­leika- og úti­há­tíðir sem til stóð að halda á næstu dögum og vikum geta vænt­an­lega ekki farið fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár