„Núna er heil þjóð og í raun allur heimurinn í einu og sama liðinu“

Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir hefur í leið­öngrum sínum sýnt fádæma þraut­seigju og úthald. Hún segir umburð­ar­lyndi lyk­il­inn að því að kom­ast á áfanga­stað, hvort sem hann er tindur hæsta fjalls heims eða dag­ur­inn sem kór­ónu­veiran kveður.

Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pól- og Ever­est­fari, hefur lent í áföllum sem breyttu henni fyrir lífs­tíð. Tvisvar var hún á hæsta fjalli heims þegar hörm­ungar dundu yfir og allt breytt­ist í einni svipan. Öll plön fuku út í veður og vind og erf­iðar til­finn­ingar virt­ust yfir­þyrm­andi.

En hún hélt áfram. Og árið 2017 reyndi hún við Everest-fjall í þriðja sinn og tókst að ná toppnum. Þó ekki án þess að fella nokkur tár.

Vilborg þekkir það líka vel að vera ein. Hún gekk ein um ísbreiður Suð­ur­skauts­lands­ins í sex­tíu daga og varð fyrsta íslenska konan til að kom­ast á suð­ur­pól­inn árið 2013.

En hún þekkir það líka að hafa ætlað að njóta félags­skapar ann­arra í leið­angri en verða óvænt að ljúka ferða­lag­inu ein síns liðs.

Til þess­ara afreka þarf þraut­seigju, úthald og seiglu. Rétt eins og við þurfum nú öll að til­einka okkur á tímum sam­komu­banns og ann­arra tak­mark­ana á sam­neyti við annað fólk. Aðstæð­urnar eru óvæntar, þær breyta lífi okkar allra tíma­bundið og sumra til lengri tíma.

„Þetta er mik­ill til­finn­inga­rús­sí­bani eins og hjá eflaust mörgum,“ segir Vilborg í sam­tali við Kjarnann spurð hvernig hún hafi það þessa dag­ana. Hún segir ástandið hafa mikil áhrif á sitt líf, m.a. vegna þess að hún reki fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu, Tinda Travel. Öllum fyr­ir­hug­uðum ferðum og nám­skeiðum hafi verið aflýst eða frestað. Til að halda þeim sem höfðu skráð sig á nám­skeið við efnið hafa Tindar Travel hins vegar efnt til hvatn­ing­ar­keppni í hreyf­ingu á meðan ástandið varir. „Við erum að aðlaga okkur að breyttum aðstæðum.“

Vilborg segir að fyr­ir­tækið hennar sé lík­lega í betri aðstæðum en mörg önnur í sama geira. Ekki hafi verið farið út í miklar fjár­fest­ingar og fyr­ir­tækið sé því ekki mjög skuld­sett. En vissu­lega blasi tekju­missir við þar sem starf­semin er nán­ast engin. Hún hefur einnig haft atvinnu af því að halda fyr­ir­lestra en eðli máls­ins sam­kvæmt er eng­inn slíkur fyr­ir­hug­aður á næst­unni. „Þannig að allar tekju­leiðir eru á ís í bili.“

En ástandið hefur einnig önnur áhrif á líf Vil­borgar. Hún var flutt með annan fót­inn til Slóveníu þar sem mað­ur­inn hennar, fjalla­garp­ur­inn Aleš Česenog, og synir hans búa. „Og núna er óvíst hvenær ég fæ að sjá þá aftur.“

Vilborg Arna og kærasti hennar, Aleš Česenog.
Vilborg Arna og kær­asti hennar, Aleš Česenog.

Vilborg hitti feðgana síð­ast í febr­úar og á ekki von á því að hitta þá næstu vik­urnar. „Við söknum öll hvers ann­ars mjög mikið,“ við­ur­kennir Vilborg. Hún og Aleš hafa allt sitt sam­band verið í fjar­búð og þekkja því að vera án hvors ann­ars um hríð. En á þessu ári stóð til að breyta því. „En það verður enn ein­hver bið á því,“ segir Vilborg og hlær létt.

Margir eru í þó erf­ið­ari stöðu, segir Vilborg. Hún nefnir sem dæmi afa sinn og ömmu. Afi hennar er á hjúkr­un­ar­heim­ili en amma hennar býr heima. Núna er heim­sókn­ar­bann á öldr­un­ar­heim­ilum og þau geta ekki hist. „Þannig að það eru margir á svip­uðum stað og ég og Aleš, jafn­vel fólk í sama póst­núm­eri.“

Vilborg hafði aðsetur hjá fjöl­skyld­unni sinni á Íslandi á meðan fjar­búð­inni stóð. En þar hefur orðið breyt­ing á. „Þar á bæ voru ein­stak­lingar sem voru í miklum áhættu­hópi þannig að ég end­aði á að flytja út frá þeim og inn í litla íbúð sem vin­kona mín á.“

Þetta seg­ist hún hafa gert til að minnka bæði áhyggjur og álag. „Þó að ég sé ekki í áhættu­hópi verð ég að sýna öðrum til­lit­semi og reyna að leggja mitt af mörkum eins og ég get.“

Vilborg í hópi fólks á fjöllum.
Vilborg í hópi fólks á fjöllum.

Vilborg seg­ist búa vel að því að lífs­stíll­inn hennar hafi síð­ustu ár verið „svo­lítil harm­on­ikka“ eins og hún orðar það. Hún hafi ferð­ast mjög mikið um heim­inn og aðlagað sig að þeim áskor­unum sem því fylgir.

„Ég lifi núna bara eins og ég sé á ferða­lagi,“ segir hún. „Á ferða­lagi þá reynir maður stöðugt að forð­ast það að fá sýk­ingar. Í stórum leið­öngrum reynir maður að forð­ast það að fá í mag­ann, verða kvef­aður og þar fram eftir göt­unum.“

Við erum öll í sömu sporum

Hún seg­ist því eins og svo margir aðrir hafa tekið upp þá lifn­að­ar­hætti að vera með spritt­brúsa við hönd á heim­il­inu og í bílnum. Svo reyni hún að fylgja öllum leið­bein­ingum. „Þetta er allt óneit­an­lega líkt því sem maður gerir á ferða­lögum.“

En það sem skipti hana per­sónu­lega mjög miklu máli sé að halda í bjart­sýn­ina. „Að reyna að ein­beita sér að því sem lætur mér líða vel, það sem ég get gert og reyna að leysa fljótt úr þeim vanda­málum sem koma upp. Við erum öll í sömu sporum. Það er mik­ill skiln­ingur alls staðar og því engin ástæða til að láta erf­iðu sím­tölin eða ákvarð­an­irnar bíða.“

Gott sé að halda í það sem veiti vellíðan. „Ég hef verið á gríð­ar­legri keyrslu síð­ustu ár og margt sem ég hef ekki fundið tíma til að gera. Núna reyni ég að nýta tím­ann til að gera það sem hefur setið á hak­anum.“

Og hvað er það sem veitir Vilborgu Örnu vellíðan, hún hefur ekki haft tíma til að gera en er nú byrjuð að gera aftur?

„Ég er farin að baka,“ segir hún með ánægju í rödd­inni. „Ég hef oft sagt að bakstur sé það sem afstressar mig mest. Hann krefst svo mik­illar ein­beit­ingar. Ég hafði ekki bakað í tvö og hálft ár! Og núna leita ég aftur í bakst­ur­inn sem ég vissi að myndi gefa mér mikið.“

Lagt af stað með markmið

Vilborg Arna hefur oft á tíðum sýnt fádæma þraut­seigju og seiglu. Spurð um dæmi þar sem sér­stak­lega hefur reynt á þessa þætti nefnir Vilborg stóra leið­angra sem hún hefur farið í. Og þá á hún ekki aðeins við leið­angra upp á hæstu fjöll heims eða yfir Suð­ur­skauts­landið. Heldur líka ann­ars konar leið­angra; svo sem að stofna eigið fyr­ir­tæki.

„Í alla leið­angra leggur maður af stað með ein­hver mark­mið,“ segir hún, „og ein­hvern ramma um hvernig maður ætlar að ná á áfanga­stað. En ég hef aldrei lent í því að geta hakað í öll boxin á þeim mark­miðum sem ég legg af stað með í upp­hafi. Það kemur alltaf eitt­hvað upp á. Það er veður, ein­hverjar aðstæður í fjöll­unum, veik­indi. Það þarf stöðugt að end­ur­skoða planið og aðlaga sig að breyttum aðstæðum.“

Fyrirtækið Tindar Travel, sem Vilborg Arna stofnaði og rekur, fer með fólk í fjalla- og jöklaferðir.
Fyr­ir­tækið Tindar Travel, sem Vilborg Arna stofn­aði og rekur, fer með fólk í fjalla- og jökla­ferðir.

Vilborg seg­ist reynsl­unni rík­ari að mörgu leyti. Hún hafi í byrjun alltaf lagt af stað með gríð­ar­lega miklar vænt­ingar. „Það sem ég lærði er að halda vænt­ingum í lág­marki. Auðvitað er maður með vænt­ingar til nýrra verk­efna en það er gott að reyna að stýra þeim vegna þess að það er alveg öruggt að það sem maður leggur af stað með í upp­hafi gengur aldrei nákvæm­lega upp eins og maður sá fyrir sér.“

Vænt­ingar og von­brigði hald­ast í hendur. Því sé mik­il­vægt að láta von­brigði ekki draga sig niður, „og ekki refsa sjálfum sér þegar eitt­hvað kemur upp á. Sumu stýrir maður og öðru ekki“.

Áhrifin vara í lengri tíma

Og hlut­irnir hafa sann­ar­lega ekki farið alltaf eins og til stóð í leið­öngrum Vil­borgar. Hún hefur tvisvar verið á Everest þegar ósköp hafa dunið yfir og stór­slys orðið. „Þau áföll breyttu mér fyrir lífs­tíð,“ segir hún. „Ég fór úr því að vilja aldrei klifra aftur yfir í það að finna neist­ann og ástríð­una á ný.“

Á meðan hún var í aðstæð­unum fann hún sjálfs­bjarg­ar­hvöt­ina brjót­ast út á auga­bragði. „Maður þarf að átta sig á því að lenda á svo­leiðis stað getur haft áhrif á mann til lengri tíma. Það er ekki búið nákvæm­lega dag­inn sem maður yfir­gefur aðstæð­urnar. Maður þarf tíma til að vinna sig út úr hlut­unum eftir á.“

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur sagt það verða mikla áskorun að aflétta sam­komu­banni án þess að far­ald­ur­inn komi upp að nýju. „Við þurfum að huga að því hvernig við högum okkur eftir að bann­inu verður aflétt,“ segir Vilborg. „Huga að því hvenær sé rétti tím­inn að taka í hönd­ina á fólki, ferð­ast og svo fram­vegis. Þetta verður aðlög­un­ar­tími sem við þurfum að fara rólega í gegnum þar til við náum þeim stað sem við vorum á fyrir.“

Þúsundir Íslend­inga eru í sótt­kví eða ein­angrun vegna veirunnar. Margir hafa fólkið sitt í kringum sig en í ein­hverjum til­fellum er fólk eitt.

Vilborg gekk ein á suð­ur­pól­inn og gangan tók sex­tíu daga. Er hægt að und­ir­búa sig fyrir ein­veru?

„Fyrir þann leið­angur þá æfði ég mig í því að vera ein,“ segir hún. „En það er munur á því að velja að vera einn og því að lenda í aðstæðum þar sem maður þarf að vera einn. Ég hef prófað bæði.“

Eitt að vera einn, annað að vera einmana

Vilborg hefur lagt af stað í leið­angur ásamt félaga en vegna veik­inda hans þurft að ljúka ferða­lag­inu ein. „Það fannst mér rosa­lega erfitt. Mér fannst það allt önnur til­finn­ing heldur en þegar ég hafði ákveðið að vera ein, var búin að skipu­leggja mig að vera ein og æfa mig í því.“

Hvernig er hægt að verj­ast því að ein­veran breyt­ist í ein­mana­leika?

„Fyrir mig hefur lyk­ill­inn að því alltaf verið sá að búa mér til til­gang. Tilgang yfir hvern dag og til­gang yfir ákveðið tíma­bil.“

Síðast þegar Vilborg var á Everest var hún búin að und­ir­búa sig vel. Í slíkum leið­öngrum er mikil bið. Bið og meiri bið eftir að komst upp á fjall­stopp­inn. „Á leið­inni upp í grunn­búðir tók ég við­töl við heima­menn og myndir. Á meðan ég þurfti svo að bíða not­aði ég tím­ann í að skrifa greinar, blogg og búa til alls konar efni.“

Það er auð­vitað mis­jafnt hvað hentar hverjum og einum þegar kemur að því að finna sér til­gang. Það getur að sögn Vil­borgar falist í því að bæta heils­una og rækta hug­ann. „Núna til dæmis væri gott fyrir mig að vera að læra sló­vensku,“ segir hún og hlær. Hún seg­ist bæta nokkrum orðum við orða­forð­ann reglu­lega enda eigi hún stjúp­börn sem haldi henni við efnið.

Allir ættu að geta fundið sér eitt­hvað til að dunda sér við, æfa sig í og læra. „Það sem mér hefur fund­ist svo fal­legt í þessum aðstæðum núna er hvað margir eru að bjóða upp á alls­konar, gefa af sér. Það er boðið upp á jóga á net­inu, lista­menn bjóða manni heim í stofu í gegnum netið. Þetta er fólk að gefa okkur, þetta eru fram­lög þess­ara ein­stak­linga til ann­arra. Það finnst mér rosa­lega fal­legt.“

En er hægt að rækta í sér þraut­seigju og úthald? Eða eru þetta með­fæddir eig­in­leikar?

Vilborg telur að í ein­hverjum til­fellum og að ein­hverju leyti séu þessir eig­in­leikar með­fæddir. „En svo er þetta reynsla, hún spilar rosa­lega stóran þátt. Ef ég horfi átta ár aftur í tím­ann þá sé ég mik­inn mun á sjálfri mér hvað þetta varðar. En það sem skiptir líka gríð­ar­legu máli er umburð­ar­lyndi. Ég við­ur­kenni það að áður hafði ég lítið umburð­ar­lyndi gagn­vart alls konar hlutum. En ég lærði hratt að það var nauð­syn­legt vegna þess að maður getur aldrei haft allt eftir sínu höfði.“

Vilborg segir að sýna þurfi umburð­ar­lyndi fyrir aðstæðum ann­ars vegar og öðru fólki hins vegar. „Núna er heil þjóð og í raun allur heim­ur­inn í einu og sama lið­inu. Við erum öll liðs­fé­lagar. Það skiptir svo miklu máli hvernig við gagn­rýnum hvert annað. Það skiptir máli að nota ekki skammar­yrði og beita öðrum nei­kvæðum aðferðum. Við skulum gera hlut­ina á jákvæðan hátt því þetta er rosa­lega hraður lær­dóms­fer­ill. Það er ekki hægt að kom­ast í gegnum hann nema að gera mis­tök. Og við gerum öll mis­tök.“

Í erf­iðum aðstæðum sé ofar öllu að hjálp­ast að frekar en að rífa hvert annað niður.

Núna þegar sam­komu­bann hefur verið í gildi í þrjár vikur og verið fram­lengt til 4. maí fyll­ast sumir óþreyju og þá skap­ast hætta á því að fólk slaki of mikið á sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum sem heil­brigð­is­yf­ir­völd telja nauð­syn­leg til að hægja á útbreiðslu far­ald­urs­ins.

„Já, þá kemur upp þessi óþol­in­mæði sem blundar í okkur svo mörgum,“ segir Vilborg. Allir þurfi að læra margt nýtt á skömmum tíma og eðli­legt sé að fólk geri mis­tök, til dæmis að gleyma því að halda tveggja metra fjar­lægð við næsta mann í búð eða hóa í spila­kvöld með félög­unum og gleyma sér þegar hæst ber leik.

Viðurkennum mistök

Hún seg­ist sjálf hafa mis­stigið sig í þessu ferli, hafa gleymt sér. „En þá skiptir máli að spýta í lóf­ana og gera betur næst. Við­ur­kenna mis­tökin, biðj­ast afsök­unar, en taka sig svo á og halda áfram.“

Fólk er svo vanaf­ast, við höfum hvert og eitt búið okkur til siði og venjur í sam­skiptum við annað fólk sem núna þarf skyndi­lega að láta af. Að breyta venjum er erfitt – hug­ur­inn leitar í það sem hann þekkir og kann. „Það er því eðli­legt að gera mis­tök, eng­inn vill gera þau en þau ger­ast.“

Þegar Vilborg leggur af stað í leið­angur er alltaf ákveðin óvissa fyrir hendi. Margt getur komið upp á sem tefur för og breytir áætl­unum. Við vitum að ástandið í heim­inum nú er tíma­bundið en ekki hvenær því lýkur.

Hvaða áhrif hefur þessi mikla óvissa á úthald og seiglu?

„Það er alltaf auð­veld­ara að halda út ef maður veit hvað tíma­bilið er langt,“ svarar Vilborg. „Þá er mik­il­vægt að muna að þetta mun ekki vara að eilífu. Við vitum að við erum að horfa á ein­hverjar vikur og jafn­vel mán­uði til við­bótar en að öllum lík­indum ekki lengra tíma­bil en það.“

Einnig er gott fyrir alla að íhuga hvernig maður vill koma út úr þessu tíma­bili, segir Vilborg. „Hver vill maður vera? Hef ég núna tæki­færi til að vinna í sjálfum mér, heils­unni minni? Þetta er brjál­æð­is­lega erfitt fyrir marga. Það er tekju­brestur víða, öll plön eru horfin út í veður og vind. Það er vissu­lega mikil óvissa og erf­iðar til­finn­ingar.“

Snjódrífurnar höfðu æft sig fyrir leiðangur yfir Vatnajökul sem átti að fara í fyrir nokkrum dögum. Hann mun frestast um hríð.
Snjó­dríf­urnar höfðu æft sig fyrir leið­angur yfir Vatna­jökul sem átti að fara í fyrir nokkrum dögum. Hann mun frest­ast um hríð.

Þegar Vilborg hefur lent í erf­iðum aðstæðum og upp­lifað erf­iðar til­finn­ingar reynir hún að skrifa niður það sem er að valda henni van­líðan og for­gangs­raða hvernig hún ætlar að takast á við það. Margir eiga trún­að­ar­vini sem þeir geta leitað til þegar erf­iðar til­finn­ingar og hugs­anir vakna. Að tala við ein­hvern sem maður treystir getur létt á líð­an­inni. „Þegar maður talar um hlut­ina við aðra er oft hægt að finna lausn eða leið í sam­ein­ingu. Núna erum við svo mörg að ganga í gegnum það sama og þá finnur maður vel fyrir sam­hug fólks. Við erum öll til­búin að hjálp­ast að.“

Bíða og sjá

Fram­tíð­arplön Vil­borgar Örnu hafa frest­ast og breyst eins og ann­arra. Í síð­ustu viku stóð til að hún færi með hópi kvenna, Snjó­dríf­unum, yfir Vatna­jökul. Þeirri ferð hefur nú verið frestað fram í júní að minnsta kosti. Annar leið­angur var einnig fyr­ir­hug­aður á Vatna­jökul í sumar. „En ég hlakka til að takast á við Snjó­drífu­verk­efnið með vin­konum mínum í júní. Mér finnst mjög mik­il­vægt að hafa eitt­hvað til að hlakka til.“

Svo er ákveðnu tíma­bili í lífi Vil­borgar Örnu að ljúka bráð­lega: Fer­tugs­aldr­inum. Hún verður nefni­lega fer­tug í sumar. „Og þá langar mig að gera eitt­hvað skemmti­legt. En ég verð að sjá hvað verður mögu­legt að gera þá. Bíða og sjá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið undanfarið ár