Sveitarfélögin enn ekki reiðubúin að þjónusta umsækjendur um alþjóðlega vernd

Einungis þrjú sveit­ar­fé­lög þjón­usta umsækj­endur um alþjóð­lega vernd: Reykja­vík­ur­borg, Reykja­nes­bær og Hafn­ar­fjarð­ar­bær.

Umsækj­endum um alþjóð­lega vernd fjölg­aði í þjón­ustu í svoköll­uðu vernd­ar­kerfi framan af árinu 2019 og voru flestir um 630 í apríl og maí áður en þeim fækk­aði aftur. Í upp­hafi árs 2020 nutu um 600 ein­stak­lingar þjón­ustu hjá Útlend­inga­stofnun og sveit­ar­fé­lögum. Þetta kemur fram í sam­an­tekt Útlend­inga­stofn­unar fyrir síð­asta ár.

Þá segir á vef stofn­un­ar­innar að sú þróun hafi orðið á árinu að þeim ein­stak­lingum fjölg­aði sem nutu þjón­ustu sveit­ar­fé­lag­anna þriggja, Reykja­vík­ur­borgar, Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar og Reykja­nes­bæjar, sem Útlend­inga­stofnun hefur samið við um þjón­ustu við umsækj­endur og hafi meiri­hluti þeirra dvalið í hús­næði á þeirra vegum á árinu. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að ekki hafi fleiri sveit­ar­fé­lög bæst við á list­ann á árinu.

Um 350 ein­stak­lingar voru í þjón­ustu hjá félags­þjón­ustum sveit­ar­fé­lag­anna þriggja um ára­mót en mót­töku- og þjón­ustuteymi Útlend­inga­stofn­unar veittu um 250 umsækj­endum þjón­ustu, sam­kvæmt stofn­un­inni.

Biðlaði til sveitarfélaganna

[links]Kjarninn greindi frá því í lok júní síð­ast­lið­ins að Útlend­inga­stofnun hefði leitað á náðir sveit­ar­fé­lag­anna um miðjan mars á síð­asta ári og biðlað til þeirra að gerður yrði þjón­ustu­samn­ingur við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. Einungis þrjú sveit­ar­fé­lög á land­inu hafa gert slíka samn­inga, eins og áður segir.

Útlend­inga­stofnun sendi bréf um miðjan mars síð­ast­lið­inn til allra sveit­ar­fé­laga á land­inu til að kanna áhuga þeirra á að gera samn­ing við stofn­un­ina um þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, sam­bæri­lega við þá sem stofn­unin hefur nú þegar gert við sveit­ar­fé­lögin þrjú.

Í svari Útlend­inga­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans kom fram að ekk­ert þeirra sveit­ar­fé­laga sem svarað hafði erind­inu teldi sig þá í stakk búið til að bæt­ast í hóp sveit­ar­fé­laga sem veita umsækj­endum um vernd þjón­ustu en mörg þeirra hefðu þó lýst yfir jákvæðri afstöðu til verk­efn­is­ins. Þó hefur síðan þá engin breyt­ing orðið á stöð­unni en sam­kvæmt svari Útlend­inga­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans í kjöl­far sam­an­tektar árs­ins 2019 þá hefur enn ekk­ert sveit­ar­fé­lag bæst í þennan hóp.

Félagsleg þjónusta byggð upp á nærþjónustu

Samkvæmt svörum frá Rauða kross­inum til Kjarnans á sínum tíma hafði stofn­unin lengi bent á það að æski­leg­ast væri að umönnun umsækj­enda um alþjóð­lega vernd væri í höndum sveit­ar­fé­laga enda væri félags­leg þjón­usta byggð upp á nær­þjón­ustu í land­inu öllu og því eðli­legt að aðstoð við þennan hóp væri með sama hætti og við aðra hópa í þjóð­fé­lag­inu.

Þær félags­þjón­ustur sem hafa sinnt þjón­ust­unni hingað til hefðu gert það með mik­illi prýði og ekki væri nein ástæða til að ætla annað en að ef fleiri sveit­ar­fé­lög bætt­ust í hóp­inn yrði sami metn­aður þar að leið­ar­ljósi. Rauði kross­inn taldi því mjög jákvætt að fleiri umsækj­endur um alþjóð­lega vernd dveld­ust í umsjón sveit­ar­fé­laga á meðan á máls­með­ferð stendur.

Hægt er að lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu um málið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár