Stuðningur samfélagsins lykillinn að vellíðan flóttafólks

Málefni umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hafa verið í brennid­epli und­an­farið og hefur Útlend­inga­stofnun leitað á náðir sveit­ar­fé­lag­anna og biðlað til þeirra að gerður verði þjón­ustu­samn­ingur við þessa ein­stak­linga.

Útlend­inga­stofnun sendi bréf um miðjan mars síð­ast­lið­inn til allra sveit­ar­fé­laga á land­inu til að kanna áhuga þeirra á að gera samn­ing við stofn­un­ina um þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, sam­bæri­lega við þá sem stofn­unin hefur nú þegar gert við Reykja­vík­ur­borg, Reykja­nesbæ og Hafn­ar­fjarð­arbæ.

Í svari Útlend­inga­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að ekk­ert þeirra sveit­ar­fé­laga sem svarað hefur erind­inu taldi sig að svo stöddu í stakk búið til að bæt­ast í hóp sveit­ar­fé­laga sem veita umsækj­endum um vernd þjón­ustu en mörg þeirra hafi þó lýst yfir jákvæðri afstöðu til verk­efn­is­ins.

Auk Reykja­nes­bæjar hefur Reykja­vík­ur­borg boð­ist til að kynna reynslu sína af verk­efn­inu fyrir öðrum sveit­ar­fé­lögum. Útlend­inga­stofnun hyggst ræða það við dóms­mála­ráðu­neytið hvernig best megi standa að slíkri kynn­ingu fyrir önnur sveit­ar­fé­lög en ekki er komin tíma­setn­ing á hana. 

Á meðan þjón­ustu­samn­ingar Útlend­inga­stofn­unar við sveit­ar­fé­lög ná ekki utan um þann fjölda umsækj­enda um vernd sem staddur er hér á landi og á til­kall til þjón­ustu mun stofn­unin sjálf veita þeim þjón­ustu sem umfram eru. Um þessar mundir þiggja um 590 umsækj­endur um vernd þjón­ustu hér á landi, þar af eru sam­an­lagt um 330 hjá sveit­ar­fé­lög­unum þremur og um 260 hjá Útlend­inga­stofnun.

Útlend­inga­stofnun er nú með tvö búsetu­úr­ræði fyrir umsækj­endur um vernd í Bæj­ar­hrauni í Hafn­ar­firði, eitt á Grens­ás­vegi í Reykja­vík og tvö á Ásbrú í Reykja­nesbæ.

Samningarnir ná ekki utan um alla sem þurfa á þjónustu að halda

Engin opin­ber stefna er til hjá Útlend­inga­stofnun um dreif­ingu umsækj­enda milli sveit­ar­fé­laga eða um landið. Markmið stofn­un­ar­innar er að búsetu­úr­ræði séu að jafn­aði rekin á vegum sveit­ar­fé­laga en stofn­unin sinni fyrstu mót­töku í einni komu­gátt.

Þrátt fyrir að þjón­ustu­samn­ingum við sveit­ar­fé­lög hafi fjölgað á und­an­förnum árum og þeir verið stækk­aðir – þannig að þeir nái til fleiri ein­stak­linga – þá hefur fjöldi umsækj­enda um vernd verið slíkur á sama tíma að þjón­ustu­samn­ing­arnir hafa ekki náð utan um alla sem hafa þurft á þjón­ustu að halda. Útlend­inga­stofnun hefur því þurft að veita tölu­verðum fjölda umsækj­enda þjón­ustu á und­an­förnum árum og bætt við og lokað búsetu­úr­ræðum eftir þörfum.

Fjölskyldur með börn í forgangi

Í Bæj­ar­hrauni eru mót­töku­úr­ræði stofn­un­ar­innar, eitt fyrir karla og annað fyrir konur og fjöl­skyldur en þar dvelja allir fyrst eftir kom­una til lands­ins. Samkvæmt Útlend­inga­stofnun er það for­gangs­at­riði að fjöl­skyldur með börn fari sem fyrst í þjón­ustu hjá sveit­ar­fé­lög­unum.

Þar á eftir sé það við­miðið að þeir umsækj­endur fari í þjón­ustu hjá sveit­ar­fé­lög­unum sem fá efn­is­lega með­ferð umsóknar sinnar hér á landi því það séu þeir umsækj­endur sem lengst þurfa að bíða eftir svari við umsókn sinni og þeir sem lík­leg­astir eru til þess að fá jákvæða nið­ur­stöðu.

Umsækj­endur frá öruggum upp­runa­ríkjum sem fá mál sín afgreidd í for­gangs­með­ferð og umsækj­endur sem eru með mál sem afgreidd eru á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar dvelji alla jafna í búsetu­úr­ræðum Útlend­inga­stofn­unar.

Skýr stefna að uppfylla þjónustusamninginn

Í fund­ar­gerð vel­ferð­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar frá 12. júní síð­ast­liðnum kemur fram að bréfið frá Útlend­inga­stofnun hafi verið lagt fram þar sem óskað hafi verið eftir því við sveit­ar­fé­lög að auka við þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd en engin jákvæð svör hafi borist. Einnig hafi verið leitað að hent­ugu hús­næði á suð­vest­ur­horn­inu. Stofn­unin sé í við­ræðum um hús­næði á Ásbrú sem væri þá við­bót við það sem fyrir er á svæð­inu. Það þýði að 170 manns gætu verið í þjón­ustu Útlend­inga­stofn­unar á Ásbrú með mögu­leika á fjölgun í allt að 250 manns.

Þá segir í fund­ar­gerð vel­ferð­ar­ráðs­ins að það hafi ekki legið á skoð­unum sínum varð­andi mál­efni ein­stak­linga sem koma til lands­ins í leit að alþjóð­legri vernd. Skýr stefna sveit­ar­fé­lags­ins sé sú að upp­fylla þjón­ustu­samn­ing sem gerður hefur verið við Útlend­inga­stofnun um að sinna þjón­ustu við fjöl­skyldur eða ein­stak­linga í við­kvæmri stöðu, allt að 70 manns, og gera það vel.

Útlendingastofnun skortir húsnæði

„Í þeirri þjón­ustu hefur tek­ist nokkuð vel að aðlaga ein­stak­linga að sam­fé­lag­inu og veita stuðn­ing í nærum­hverfi á meðan ein­stak­ling­arnir bíða eftir úrlausn sinna mála. Á sama tíma hefur Útlend­inga­stofnun skort hús­næði til að taka á móti fleiri ein­stak­lingum og því þurft að leigja hús­næði meðal ann­ars í Reykja­nesbæ þar sem Útlend­inga­stofnun sér um dag­legan rekstur þar sem dvalið geta allt að 100 manns í einu. Þeir ein­stak­lingar tengj­ast þjón­ustu sveit­ar­fé­lags­ins ekki á nokkurn hátt,“ segir í fund­ar­gerð­inni.

Vel­ferð­ar­ráði hugn­ast ekki sú hug­mynd Útlend­inga­stofn­unar að stækka þjón­ustu­hóp þeirra í sveit­ar­fé­lag­inu enn frekar og hefur áður leitað til stofn­un­ar­innar og mælt með aðkomu fleiri sveit­ar­fé­laga. Mik­il­vægt sé að kynna vel fyrir öðrum sveit­ar­fé­lögum hver sam­fé­lags­legi ávinn­ing­ur­inn er af því að sinna þess­ari þjón­ustu. Full­trúar Reykja­nes­bæjar séu til­búnir að taka þátt í þeirri vinnu.

„Þessir einstaklingar hafa gefið okkur mikið“

Halldóra Fríða Þor­valds­dóttir, for­maður vel­ferð­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar, segir í sam­tali við Kjarnann að þau hafi átt von á þess­ari til­kynn­ingu eftir að hafa verið í miklum sam­skiptum við Útlend­inga­stofnun. Hún segir að mik­il­vægt sé að fleiri sveit­ar­fé­lög komi að borð­inu og geri þjón­ustu­samn­inga við stofn­un­ina. „Það er fyrst og fremst til að tryggja að hægt sé að mæta ein­stak­ling­unum í nærum­hverfi þeirra og það gerum við með því að hafa dreif­ing­una betri. Þetta eru ólíkir ein­stak­lingar með ólíkar þarfir.“

Hún telur að sveit­ar­fé­lögin verði að sjá ávinn­ing þess að gera slíka samn­inga en að hennar sögn er hann mik­ill bæði fyrir umsækj­end­urna sjálfa og sam­fé­lagið. „Þessir ein­stak­lingar hafa nefni­lega gefið okkur mikið.“

Halldóra veltir því fyrir sér hvort heppi­legt sé að tugir, jafn­vel hund­ruð, manna séu í einu eða tveimur húsum, eins og raunin er í Reykja­nesbæ á vegum Útlend­inga­stofn­unar. „Með því að þjón­usta minni hópa þá eru meiri líkur á að þörfum ein­stak­ling­anna sé mætt.“ Hún bendir á að umsækj­endur um alþjóð­lega vernd sem búa í þessum tveimur húsum séu ekki hluti af þjón­ustu­sam­ingi við Reykja­nesbæ og því geti þeir ekki leitað þjón­ustu til sveit­ar­fé­lags­ins.

Það er fyrst og fremst til að tryggja að hægt sé að mæta ein­stak­ling­unum í nærum­hverfi þeirra og það gerum við með því að hafa dreif­ing­una betri. Þetta eru ólíkir ein­stak­lingar með ólíkar þarfir.

Mikill samfélagslegur ávinningur

„Við fengum full­trúa dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins til fundar við okkur og buðum fram krafta okkar til að móta skýr­ari stefnu. Okkur hefur gengið vel hér; við erum með margar fjöl­skyldur þar sem börnin ganga í skóla og leik­skóla og við reynum að sinna þess­ari þjón­ustu eins vel og við getum,“ segir Halldóra og bætir því við að þau sjái mik­inn sam­fé­lags­legan ávinn­ing að hafa hæl­is­leit­endur í bænum. „Við lærum líka af þeim og það mynd­ast vin­átta og sam­kennd. Við græðum öll á þessu,“ segir hún.

Samkvæmt Halldóru hefur dóms­mála­ráðu­neytið tekið vel í til­lögur þeirra og von­ast hún til að það muni leita til þeirra í náinni fram­tíð. „Við þurfum öll að huga betur að sál­gæslu og þátt­töku ein­stak­linga í sam­fé­lag­inu. Það er alls ekki kvöð að sinna þessum mála­flokki eða upp­fylla þjón­ustu­samn­ing­inn,“ segir hún.

Vel hefur tekist hjá Hafnarfjarðarbæ

Hafn­ar­fjarð­ar­bær er, eins og áður segir, eitt þriggja sveit­ar­fé­laga á land­inu sem er með þjón­ustu­samn­ing við Útlend­inga­stofnun. Í svari Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að sveit­ar­fé­lagið hafi brugð­ist vel við erindum Útlend­inga­stofn­unar. „Sveit­ar­fé­lagið hefur unnið vel að þessum málum og sinnt þeim af ábyrgð og metn­aði,“ segir í svar­inu.

Þá hafi Hafn­ar­fjarð­ar­bær enn fremur lagt áherslu á að fá fleiri sveit­ar­fé­lög til að koma að þess­ari þjón­ustu og láta reyna á það áður en fleiri hæl­is­leit­endur yrðu settir í úrræði í Hafn­ar­fjarð­arbæ. Bærinn er með samn­ing sem hljóðar upp á þjón­ustu við allt að 60 hæl­is­leit­endur og sam­kvæmt sam­skipta­stjóra sveit­ar­fé­lags­ins hefur gengið vel að upp­fylla þann samn­ing.

Reykjavík fjölgar þeim sem borgin þjónustar

Borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur­borgar, Dagur B. Egg­erts­son, svar­aði bréfi Útlend­inga­stofn­unar og var svarið lagt fram í borg­ar­ráði 9. maí síð­ast­lið­inn. Samn­ingur vel­ferð­ar­sviðs við Útlend­inga­stofnun var sam­þykktur í borg­ar­ráði þann 2. maí og er um að ræða fjölgun upp á 20 ein­stak­linga sem Reykja­vík þjón­ustar á milli ára – úr 200 í 220.

Í bréfi borg­ar­stjóra til Útlend­inga­stofn­unar segir að sam­kvæmt fréttum hafi borið á því að sveit­ar­fé­lög skorist undan að veita umsækj­endum um alþjóð­lega vernd þjón­ustu. Það séu von­brigði og býðst Reykja­vík­ur­borg til að kynna reynslu sína af verk­efn­inu fyrir hik­andi eða nei­kvæðum sveit­ar­fé­lögum, ef Útlend­inga­stofnun óskar eftir. Sem fyrr sé Reykja­vík­ur­borg einnig til­búin til frek­ari við­ræðna við Útlend­inga­stofnun um aukna þjón­ustu fáist ekki nægi­lega mörg sveit­ar­fé­lög til að veita slíka þjón­ustu.

Reykjavíkurborg er tilbúin til frekari viðræðna við Útlendingastofnun um aukna þjónustu fáist ekki nægilega mörg sveitarfélög til að veita slíka þjónustu. Mynd: Mannlíf/Ivan Burkni
Reykja­vík­ur­borg er til­búin til frek­ari við­ræðna við Útlend­inga­stofnun um aukna þjón­ustu fáist ekki nægi­lega mörg sveit­ar­fé­lög til að veita slíka þjón­ustu. Mynd: Mannlíf/Ivan Burkni

Útiloka ekki að skoða málið síðar

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn til hinna sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og bár­ust svör frá Garðabæ, Kópavogi, Mos­fellsbæ og Sel­tjarn­ar­nesbæ.

Bæjarráð Garða­bæjar fjall­aði um bréf Útlend­inga­stofn­unar á fundi sínum þann 19. mars síð­ast­lið­inn og fól bæj­ar­ráð bæj­ar­stjóra að ræða við for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Garðabæ ræddi bæj­ar­stjór­inn, Gunnar Ein­ars­son, nýverið við Kristínu Völ­und­ar­dóttur, for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar, um erindið. Í sam­tali þeirra kom fram að Garðabær er sem stendur á fullu að und­ir­búa komu flótta­fólks til Garða­bæjar í haust en bæj­ar­stjórnin sam­þykkti sam­hljóða á fundi sínum 6. júní síð­ast­lið­inn samn­ing félags­mála­ráðu­neyt­is­ins og Garða­bæjar um mót­töku, aðstoð og þjón­ustu við hóp flótta­fólks 2019 til 2021.

Í svar­inu kemur enn fremur fram að við­brögð bæj­ar­yf­ir­valda hafi verið á þá veg að Garðabær vilji fyrst ein­beita sér og gera vel í því verk­efni sem framundan er að taka á móti þessum tíu flótta­mönnum. „Á meðan á því stendur verður því ekki farið af stað með gerð þjón­ustu­samn­ings við Útlend­inga­stofnun vegna umsækj­enda um alþjóð­lega vernd en ekki úti­lokað að hægt verði að skoða það síðar.“

Segja húsnæðisvanda hafa áhrif

Í svari Mos­fells­bæjar kemur fram að bæj­ar­ráðið hafi orðið við beiðni félags­mála­ráðu­neyt­is­ins að taka í ár á móti tíu ein­stak­lingum sem hafa stöðu flótta­fólks sam­kvæmt skil­grein­ingu Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Þá segir í svar­inu að fjölgun íbúa í Mos­fellsbæ und­an­farið ár sé umtals­verð og sam­fara henni sé eðli­lega aukin eft­ir­spurn eftir þjón­ustu sem fjöl­skyldu­svið hafi ekki farið var­hluta af. Mos­fells­bær hafi tekið á móti hópi flótta­fólks fyrir ári og einu erf­ið­leik­arnir við fram­kvæmd þess hafi falist í vanda við að útvega hús­næði fyrir fólkið. Hús­næð­is­mark­að­ur­inn sé enn með þeim hætti að ætla megi að vand­kvæðum væri bundið að finna við­eig­andi hús­næði fyrir svo stóran hóp fólks.

Bæjarráð Mos­fells­bæjar sam­þykkti í því ljósi að gera að svo stöddu ekki þjón­ustu­samn­ing við Útlend­inga­stofnun um að tryggja þjón­ustu við 40 til 50 umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. Afgreiðsla bæj­ar­ráðs var stað­fest á fundi bæj­ar­stjórnar í apríl og Útlend­inga­stofnun hefur verið upp­lýst um þá afgreiðslu.

Hafa ekki tök á að aðstoða Útlendingastofnun í þessu verkefni

Ásgerður Hall­dórs­dóttir, bæj­ar­stjóri Sel­tjarn­ar­nes­bæjar, svar­aði bréfi Útlend­inga­stofn­unar í lok mars síð­ast­lið­ins þar sem hún greindi frá því að erindið hefði verið tekið fyrir á bæj­ar­ráðs­fundi sama dag. „Á þeim sama fundi sam­þykkti bæj­ar­ráð að taka á móti flótta­fólki, sem hafa stöðu flótta­fólks sam­kvæmt Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna á næstu mán­uðum,“ sagði í svari bæj­ar­stjór­ans. „Við höfum því miður ekki tök á að aðstoða Útlend­inga­stofnun í þessu verk­efni sam­hliða því.“

Samkvæmt almanna­tengli Kópa­vogs­bæjar var bréf Útlend­inga­stofn­unar lagt fram í bæj­ar­ráði og vísað þaðan til úrvinnslu hjá sviðs­stjóra vel­ferð­ar­sviðs. Ekki hafi enn verið sent svar frá Kópa­vogsbæ til Útlend­inga­stofn­unar.

Æskilegast að sveitarfélögin annist umsækjendur

Samkvæmt svörum frá Rauða kross­inum hefur stofn­unin lengi bent á það að æski­leg­ast sé að umönnun umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sé í höndum sveit­ar­fé­laga enda sé félags­leg þjón­usta byggð upp á nær­þjón­ustu í land­inu öllu og því eðli­legt að aðstoð við þennan hóp sé með sama hætti og við aðra hópa í þjóð­fé­lag­inu.

Þær félags­þjón­ustur sem hafa sinnt þjón­ust­unni hingað til hafi gert það með mik­illi prýði og ekki sé nein ástæða til að ætla annað en að ef fleiri sveit­ar­fé­lög bæt­ist í hóp­inn verði sami metn­aður þar að leið­ar­ljósi. Rauði kross­inn telur því mjög jákvætt að fleiri umsækj­endur um alþjóð­lega vernd dvelj­ist í umsjón sveit­ar­fé­laga á meðan á máls­með­ferð stendur.

Það er nefni­lega lyk­ill­inn að vellíðan að fólk fái upp­lýs­ingar, finni fyrir öryggi og fái nauð­syn­lega þjón­ustu eins og félags­legan stuðn­ing og heil­brigð­is­þjón­ustu.

Ísabella Ósk Más­dóttir, sér­fræð­ingur á kynn­ing­ar­sviði Rauða kross­ins, segir að mik­il­væg­ast sé að þjón­ustan sé sam­bæri­leg óháð því hver veitir hana og því skipti í raun ekki máli í hvaða sveit­ar­fé­lagi fólk býr. Mismunur í þjón­ustu­stigi sé alltaf áskorun líkt og er núna þar sem þjón­usta sveit­ar­fé­lag­anna er á mun breið­ari grunni en þjón­ustan sem Útlend­inga­stofnun veitir.

Ef aðgengi er skert getur fólki liðið verr

„Það hafa verið gerðar kann­anir hjá Rauða kross­inum sem gefa vís­bend­ingar um að stað­setn­ing geti haft áhrif á líðan fólks á meðan á máls­með­ferð stendur. Það sem er lyk­il­at­riði þar, er aðgengið að þjón­ustu, þ.e. ef aðgengið er skert þá upp­lifir fólk stað­setn­ingu mögu­lega sem ein­angrun og það hefur nei­kvæð áhrif á líðan og örygg­is­til­finn­ingu,“ segir Ísabella. En ef þjón­ustan er góð þá líði fólki eins vel og hægt er miðað við aðstæður. Þau hjá Rauða kross­inum sjái til að mynda að fólk sem býr hjá félags- og fjöl­skyldu­þjón­ustu Reykja­nes­bæjar kvarti ekki undan stað­setn­ingu þar sem öll sú þjón­usta sem þau þurfa sé í nærum­hverf­inu.

„Það er nefni­lega lyk­ill­inn að vellíðan að fólk fái upp­lýs­ingar, finni fyrir öryggi og fái nauð­syn­lega þjón­ustu eins og félags­legan stuðn­ing og heil­brigð­is­þjón­ustu,“ segir hún en bætir því við að ekki sé þó hlaupið að því að færa umsækj­endur um alþjóð­lega vernd of langt frá þeim stöðum þar sem máls­með­ferðin fer fram á meðan á máls­með­ferð stjórn­valda stendur því það skapi þessa raun­veru­legu fjar­lægð sem sé ekki af hinu góða. Öðru máli gegni þegar fólk er komið með vernd og er að taka sín fyrstu skref út í sam­fé­lagið. Þá skipti stað­setn­ingin ekki lengur höf­uð­máli heldur nær­sam­fé­lagið og mögu­leikar sem fólk hefur til að taka þátt.

Frétta­skýr­ingin birt­ist einnig í síð­asta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið undanfarið ár