Barist um umboðið

Opin lína er nú milli flokk­anna á Alþingi, og hafa for­menn þeirra sér­stak­lega átt í miklum sam­skiptum und­an­farna daga.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Mynd: Birgir Þór

Þreif­ingar milli flokk­anna á Alþingi og for­ystu­fólks þeirra benda til þess að tölu­verð póli­tísk bar­átta sé nú um það hver fái umboðið til að mynda nýja rík­is­stjórn, eða í það minnsta leiða hana sem for­sæt­is­ráð­herra.

Sam­skipti hafa verið milli Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Allir for­menn­irnir vilja leiða rík­is­stjórn þess­ara flokka, en hún hefði 35 þing­menn af 63 og því rúman meiri­hluta.

Þá hafa einnig verið við­ræður milli flokk­anna sem áður slitu form­legum stjórn­ar­mynd­ar­við­ræðum, það er Vinstri grænna, Pírata, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar, og hafa sam­skipti við Við­reisnar, undir for­mennsku Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, verið þar innan sömu­leiðis.

Þá hafa Mið­flokk­ur­inn, undir for­ystu Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar, og Flokkur fólks­ins, undir for­ystu Ingu Sæland, einnig átt í sam­skiptum við hina ýmsu flokka.

Staðan er því flókin og margir mögu­leikar uppi.

Líklegt er að Vinstri græn, Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur muni ákveða í dag, eða á morgun, hvort það sé til­efni til að hefja form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður milli flokk­anna, en eins og áður segir, koma fleiri leiðir til greina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár