Mynd: Úr safni.

Árið 2019: Lífskjarasamningar undirritaðir

Eftir harka­legar kjara­deilur, þar sem gíf­ur­yrði um vit­firru og ásak­anir um lélegt and­legt heil­brigði fengu að fljúga, var samið um frið á stærstum hluta íslensks vinnu­mark­aðar í byrjun apríl.

Þann 3. apríl lauk harð­vít­ugri kjara­deilu stærstu verka­lýðs­fé­laga lands­ins við Samtök atvinnu­lífs­ins með því að for­víg­is­menn deilu­að­ila skrif­uðu undir nýja kjara­samn­inga sem gilda fyrir um 110 þús­und manns á íslenskum vinnu­mark­aði, og slógu þar með tón­inn fyrir hina sem ekki voru aðilar að samn­ingnum.

Deilan í aðdrag­and­anum hafði verið harka­leg. Vinnu­stöðv­anir í ferða­þjón­ustu­geir­anum voru umdeildar á sama tíma og hluti hans var í vand­ræðum vegna yfir­vof­andi sam­dráttar og ný en her­ská for­ysta verka­lýðs­hreyf­ingar var víða innan borg­ar­legra afla úthúðað fyrir rót­tækni sína. „Ég hef verið kölluð van­stillt, gal­in, vit­firrt. Geð­heilsa mín og and­legt heil­brigði hefur verið dregið mjög í efa,“ sagði Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, í við­tali við Hring­braut í des­em­ber 2018.

Hún bætti við að það hefði komið henni á óvart hversu for­hert fólk leyfði sér að vera þegar það tal­aði um kröfur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar. „Að þær væru kokk­aðar upp af bil­uðu fólk. Leið­ara­höf­undar lýstu því yfir eins og ekk­ert væri að hér væri efna­hags­leg nið­ur­sveifla haf­in. Það var ekki talað um vægan sam­drátt. Alls konar hlutir sem voru sagðir á mjög óábyrgan og ótrú­legan máta. Fyrir mig sem mann­eskju sem hef ekki haft aðgang að risa­stóru plat­formi þá fannst mér ótrú­legt hvað fólk sem hefur aðgang að stóru plat­formi leyfi sér að segja svona, eins og ekk­ert væri, en þurfti svo ekki að draga í land, biðj­ast afsök­unar eða nokkurn skap­aðan hlut.“

Á end­anum urðu nokkrar vær­ingar sem urðu í hag­kerf­inu á skömmum tíma í lok mars til þess að það liðk­að­ist fyrir samn­ings­gerð. Þar skiptu meg­in­máli til­kynn­ing um algjöran loðnu­brest og svo gjald­þrot WOW air fimmtu­dag­inn 28. mars. Innan við viku síðar var búið að skrifa undir nýja kjara­samn­inga.

Krónutöluhækkanir

Þeir gilda frá 1. apríl 2019 til 1. nóv­em­ber 2022. Launa­hækk­anir sem í þeim fel­ast eru taldar í krón­um. Almenn laun hækk­uðu um 17 þús­und krónur frá 1. apríl síð­ast­liðn­um. Þau hækka síðan aftur um 18 þús­und krónur 1. apríl 2020, um 15.750 krónur 1. jan­úar 2021 og 17.250 krónur 1. jan­úar 2022. Þá var samið um ein­greiðslu til allra almennra launa­manna upp á 26 þús­und krónur sem er til útgreiðslu um næstu mán­aða­mót.

Með því að hafa launa­hækk­anir í krónu­tölum en ekki hlut­falls­tölum er tryggt að þeir sem hafi hæstu launin hækki ekki um fleiri krónur en þeir sem eru með þau lægstu.

Sér­stak­lega var samið um auknar hækk­anir fyrir þá sem vinna á taxta­laun­um. Alls munu laun þeirra sem eru með kaup­taxta hækka um 90 þús­und krónur á samn­ings­tím­an­um. Lág­marks­tekjur fyrir fullt starf verða 368 þús­und krónur 1. jan­úar 2022. Auk þess hækkar des­em­ber­upp­bót úr 89 þús­und krónum í 98 þús­und krónur á samn­ings­tím­anum og orlofs­upp­bót úr 48 þús­und krónum í 53 þús­und krón­ur.

Á árunum 2020 til 2023 getur komið til fram­kvæmda launa­auki ef hag­vöxtur verður hér­lend­is. Þetta er gert til að tryggja launa­fólki hlut­deild í verð­mæta­sköpun sam­fé­lags­ins.

Ákvæðið á að nýt­ast tekju­lægri hópum best, en hækk­unin sem kemur til vegna hag­vaxtar legst að fullu á laun þeirra en 75 pró­sent á önnur laun. Að mati Alþýðu­sam­bands Íslands getur þessi hag­vaxt­ar­auki hækkað taxta­laun um 3-13 þús­und krónur á ári.

Í kjara­samn­ing­unum var einnig samið um styttri vinnu­viku með því að taka upp það sem er kallað „virkan vinnu­tíma“ sem verður að jafn­aði 36 stundir á viku. Hana á að inn­leiða með því að gera vinnu­tíma fólks sveigj­an­legri með því að bjóða því að kjósa sjálft um hvaða fyr­ir­komu­lag henti best á hverjum vinnu­stað.

Óvenjulegar forsendur

Þrjár meg­in­for­sendur voru fyrir gerð kjara­samn­ing­anna. Í fyrsta lagi þarf kaup­máttur launa að aukast á samn­ings­tíma­bil­inu. Sá vöxtur verður metin út frá launa­vísi­tölu Hag­stofu Íslands. Hingað til hefur sú for­senda haldið. Launa­vísi­talan hefur hækkað um tæp tvö pró­sent frá apríl og út nóv­em­ber 2019.

Í öðru lagi var sú óvenju­lega for­senda sett til grund­vallar gerð kjara­samn­inga að vextir lækki „veru­lega“ og hald­ist lágir út samn­ings­tím­ann. Það þýddi að Seðla­banki Íslands þyrfti að lækka stýri­vexti til að for­sendur kjara­samn­inga haldi, en hann er sam­kvæmt lögum sjálf­stæð stofnun og hefur það meg­in­hlut­verk að við­halda verð­stöð­ug­leika.

Ekki var til­greint sér­stak­lega um það opin­ber­lega hversu mikið vext­irnir þyrftu að lækka til að for­sendur héldu en Kjarn­inn greindi frá því 4. apríl síð­ast­lið­inn að gert hafi verið hlið­­ar­­sam­komu­lag, svo­­kallað „skúffu­­sam­komu­lag“ sem er ekki hluti af opin­berum kjara­­samn­ingi, sem fól í sér að vextir yrðu að lækka um 0,75 pró­­sent­u­­stig fyrir sept­­em­ber 2020, þegar fyrsta end­­ur­­skoðun sér­­stakrar for­sendu­nefndar mun eiga sér stað, til að kjara­­samn­ingar hald­i.

Vext­irnir voru búnir að lækka niður um það í júní 2019, 15 mán­uðum áður en fyrsta end­ur­skoð­unin mun eiga sér stað, og hafa haldið áfram að lækka síð­an. Þeir eru í dag þrjú pró­sent og hafa lækkað úr 4,5 pró­sent í apríl. Ári fyrir end­ur­skoðun for­sendu­nefndar höfðu vext­irnir því lækkað tvisvar sinnum meira en skil­yrt var að þeir myndu lækka.

Í þriðja lagi fólst í samn­ing­unum að stjórn­völd yrðu að standa við að fram­kvæma þann pakka sem þau komu með að borð­inu til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga undir yfir­skrift­inni „Lífs­kjara­samn­ingar“.

42 aðgerðir stjórnvalda

Stjórn­völd lof­uðu því að ráð­ast í alls 42 aðgerðir til að liðka fyrir kjara­samn­ing­um. Ríkið mat heild­ar­um­fang aðgerð­anna á 80 millj­arða króna.

Sumar aðgerð­irnar voru þá þegar fram komn­ar, en ekki frá­gengnar, eins og leng­ing fæð­ing­ar­or­lofs í 12 mán­uði. Aðrar hafa verið lagðar fram áður, eins og upp­bygg­ing í Keldna­landi, heim­ildir til að ráð­stafa 3,5 pró­sent líf­eyr­is­ið­gjalds skatt­frjálst til hús­næð­is­kaupa og áfram­hald­andi nýt­ing sér­eign­ar­sparn­aðar til að greiða skatt­frjálst niður íbúða­lán, en það úrræði verður fram­lengt fram á mitt ár 2021.

Það var þó einnig margt nýtt í pakka stjórn­valda. Það átti að gera breyt­ingar á tekju­skatts­kerf­inu með því að bæta við þriðja skatt­þrep­inu sem tryggja m.a. lægstu launa­hóp­unum nokkur þús­und króna skatta­lækkun á mán­uði. Sú breyt­ing gengur í gildi um kom­andi ára­mót. Þá verða barna­bætur hækk­aðar og skerð­ing­ar­mörk þeirra hækkuð. Ráð­ast átti í fjöl­margar aðgerðir í hús­næð­is­mál­um, halda aftur af öllum gjald­skrár­hækk­unum og ráð­ast í mark­vissar aðgerðir til að draga úr félags­legum und­ir­boð­um.

Blessuð verðtryggingin

Á meðal þess sem stjórn­völd skuld­bundu sig líka til að gera var að banna 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán frá byrjun kom­andi árs. Þá átti að grund­valla verð­trygg­ingu við vísi­tölu neyslu­verðs án hús­næð­isliðar frá og með árinu 2020. Hvorugt er orðið að veru­leika. Á árinu 2019 jókst líka taka óver­tryggðra lána til hús­næð­is­kaupa veru­lega og í októ­ber­mán­uði gerð­ist það til að mynda í fyrsta sinn í þol­an­legu verð­bólgu­um­hverfi að fleiri tóku óver­tryggð lán en verð­tryggð hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins. Þá hefur verð­bólga verið skap­leg þorra árs­ins og farið lækk­andi – hún er nú tvö pró­sent og vel undir verð­bólgu­mark­miði – sem hefur gert það að verkum, ásamt hratt lækk­andi hús­næð­is­vöxtum, að staða margra verð­tryggðra lán­tak­enda á Íslandi hefur aldrei verið betri.

Í pakk­anum voru einnig vil­yrði um að klára skoðun á því hvort að banna eigi alfarið verð­tryggð hús­næð­is­lán fyrir lok árs 2020.

Ljóst er að þá þyrfti að finna annan val­kost fyrir tekju­lægstu og við­kvæm­ustu hópa sam­fé­lags­ins á lána­mark­aði ef 40 ára jafn­greiðslu­lánin verða bönn­uð. Í pakka stjórn­valda stóð að unnið yrði með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins að því að f­inna skyn­sam­legar leiðir og útfærslur á þeim til að auð­velda ungu fólki og tekju­lágum fyrstu fast­eigna­kaup. Ein mögu­legra leiða er að veitt verði sér­stök lán, til dæmis frá Íbúða­lána­sjóði, með þeim skil­málum að höf­uð­stóll­inn ­geti svarað til til­tek­ins hlut­falls af mark­aðsvirði eign­ar­inn­ar. „Slík „hlut­deild­ar­lán“ bæru lægri vexti og afborg­an­ir ­fyrstu árin og gerðu tekju­lágum kleift að kom­ast yfir útborg­un­ar­þrösk­uld­inn þar sem krafa um eigið fé væri lægri. Hlut­deild­ar­eig­andi fengi end­ur­greitt þegar eig­and­i ­seldi við­kom­andi íbúð eða greiddi lánið upp á matsvirði.“ Unnið er að inn­leið­ingu slíkra lána.

Enn er þó víða ósamið. Mesta athygli á síð­ustu mán­uðum hefur vakið kjara­deilda Blaða­manna­fé­lags Íslands, sem sam­þykkti að fara í vinnu­stöðv­anir síðla árs og hafn­aði samn­ings­til­boði Samtaka atvinnu­lífs­ins í atkvæða­greiðslu í nóv­em­ber. Sú staða er enn óleyst og sam­kvæmt for­manni Blaða­manna­fé­lags­ins eru aðgerð­irnar farnar í jóla­frí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2019

Mest lesið undanfarið ár