Ýmislegt óvænt þegar landsliðshópur Íslands fyrir HM var kynntur

Fram­tíð­ar­menn voru teknir fram yfir reynslu­meiri þegar lands­liðs­þjálf­arar Íslands völdu 23 manna hóp fyrir HM í Rúss­landi. Lyk­il­leik­menn sem hafa verið að glíma við meiðsli voru valdir. Kolbeinn Sig­þórs­son var það hins vegar ekki.

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íslands.
Heimir Hall­gríms­son, lands­liðs­þjálf­ari Íslands. Mynd: EPA

23 manna hópur íslenska karla­lands­liðs­ins fyrir heims­meist­ara­móts­ins var kynntur rétt í þessu. Nokkuð var um óvænt tíð­indi. Þau helstu voru lík­ast til þau að hinn dansk-íslenski Frederik Schram verður einn þriggja mark­manna liðs­ins á mót­inu, en hann á þrjá lands­leiki að baki, og valið á valið á Samúel Kára Frið­jóns­syni, leik­manni Våler­enga í Noregi, en hann á einnig þrjá lands­leiki að baki. Þá voru Hólmar Örn Eyj­ólfs­son, Rúrik Gíslason, Arnór Ingvi Trausta­son og Albert Guð­munds­son allir valdir, en get­gátur höfðu verið um það hvort þeir myndu verða teknir fram yfir aðra leik­menn.

Bæði Gylfi Sig­urðs­son og fyr­ir­lið­inn Aron Einar Gunn­ars­son, sem eru burða­rásar liðs­ins en eru sem stendur báðir meiddir, eru í hópnum. Kolbeinn Sig­þórs­son er ekki val­inn í hóp­inn en hann er á meðal þeirra tólf leik­manna sem gætu mögu­lega bæst við hóp­inn ef ein­hver dettur út. Heimir Hall­gríms­son lands­liðs­þjálf­ari sagði að mótið kæmi ein­fald­lega of snemma fyrir Kolbein, sem hefur verið meira og minna meiddur síðan á EM fyrir tveimur árum.

Guð­mundur Hreið­ars­son, mark­manns­þjálf­ari lands­liðs­ins, sagði að það hefði verið erfitt að velja ekki Ingvar Jónsson og Ögmund Krist­ins­son, sem hafa verið í lands­liðs­hópnum á und­an­förnum árum, í hóp­inn. Það hafi hins vegar verið skýrt að eftir æfinga­ferð til Banda­ríkj­anna að Frederik og Rúnar Alex Rún­ars­son væru þeir mark­menn sem myndi fara með Hannesi Þór Hall­dórs­syni, aðal­mark­manni liðs­ins, til Rúss­lands.

Heimir útskýrði valið á Samúel Kára með því að hann hefði mikla hlaupa­getu og gæti spilað margar stöður. Hann hefði staðið sig vel með U-21 lands­lið­inu og væri fram­tíð­ar­leik­maður. Sögu sögu væri að segja um Albert Guð­munds­son. Hann hefði heillað þjálf­ar­anna og hefði aðra eig­in­leika en aðrir fram­herjar sem hafa verið að spila með lands­lið­inu.

Hópurinn sem valinn var:

Markmenn:

Hannes Þór Hall­dórs­son

Frederik Schram

Rúnar Alex Rún­ars­son

Varnarmenn:

Birkir Már Sæv­ars­son

Samúel Kári Frið­jóns­son

Ragnar Sig­urðs­son

Sverrir Ingi Ingason

Kári Árnason

Hólmar Örn Eyj­ólfs­son

Hörður Björgvin Magn­ús­son

Ari Freyr Skúlason

Miðjumenn:

Rúrík Gíslason

Birkir Bjarna­son

Emil Hall­freðs­son

Gylfi Sig­urðs­son

Ólafur Ingi Skúlason

Aron Einar Gunn­ars­son

Arnór Ingvi Trausta­son

Jóhann Berg Guð­munds­son

Sóknarmenn:

Björn Bergmann Sig­urð­ar­son

Albert Guð­munds­son

Alfreð Finn­boga­son

Jón Daði Böðv­ars­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár