Beiðni um endurupptöku hafnað

Kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur hafnað beiðni um end­ur­upp­töku á máli systk­in­anna Ali, Kayan, Saja og Jadin og for­eldra þeirra frá Írak.

Ali, Kayan, Saja og Jadin
Ali, Kayan, Saja og Jadin Mynd: Facebook/Sema Erla

Kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur hafnað beiðni um end­ur­upp­töku á máli systk­in­anna Ali, Kayan, Saja og Jadin og for­eldra þeirra frá Írak. Frá þessu greindi Sema Erla Serdar, ­stofn­andi Sol­aris – hjálp­ar­sam­taka fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, á Face­book-­síðu sinni í gær­kvöldi.

Brott­vísun fjöl­skyld­unnar var frestað í síð­ustu viku en hún hefur vakið mikil við­brögð hjá Íslend­ingum. Tugir mættu í mót­mæla­göngu í gær á vegum No Borders, Solaris og Réttar barna á flótta en gangan var „í sam­stöðu með fólki á flótta, gegn fas­isma ríkis og ein­stak­linga.“

Sema Erla segir að fjöl­skyldan muni fara í beinu einka­flugi í boði íslenskra yfir­valda til Grikk­lands á mið­viku­dag eða fimmtu­dag. „Við erum að fara að senda fjögur flótta­börn, á aldr­inum eins til níu ára, í mjög við­kvæmri stöðu, á göt­una í Grikk­landi þar sem ríkir neyð­ar­á­stand og nýnas­istar munu taka á móti þeim með ofbeldi, sví­virð­ingum og nið­ur­lægj­andi og ómann­úð­legri með­ferð,“ skrifar hún.

Hræðilegt ástand við Miðjarðarhaf

Rauði kross­inn á Íslandi mót­mælti í síð­ustu viku fyr­ir­hug­uðum brott­vís­unum barna­fjöl­skyldna til Grikk­lands þar sem þær hafa alþjóð­lega vernd. Í til­kynn­ingu frá Rauða kross­inum kemur fram að íslensk stjórn­völd hafi hingað til ekki sent börn frá Íslandi til Grikk­lands en nú hafi að minnsta kosti fimm fjöl­skyldur fengið til­kynn­ingu um að íslensk stjórn­völd muni flytja þau til Grikk­lands á næstu dögum og vik­um.

„Á sama tíma ber­ast fregnir af hræði­legu ástandi við Mið­jarð­ar­haf, t.a.m. drukknun ungs drengs þegar hann og fjöl­skylda hans fóru yfir hafið frá Tyrk­landi á ótryggum bát. Þá er afar við­kvæmt ástand við landa­mæri Tyrk­lands og Grikk­lands þar sem fréttir herma að um 13.000 flótta­menn bíði inn­göngu. Þá ber­ast einnig fregnir af harð­ræði grísku lög­regl­unnar og öðrum yfir­völdum og að fólki sé meinað inn­göngu. Mikil ólga og andúð fólks í Grikk­landi á flótta­fólki er einnig áber­andi í fjöl­miðlum sem ætla má að fari aðeins vax­and­i,“ segir í til­kynn­ingu Rauða kross­ins.

Útlendingastofnun stendur við bak þessara ákvarðana með góðri samvisku

Þor­steinn Gunn­ars­son, settur for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar, sagði í sam­tali við RÚV í síð­ustu viku að ástandið í Grikk­landi, og sér­stak­lega við landa­mæri Tyrk­lands, væri grafal­var­legt. Útlend­inga­stofnun félli hins vegar ekki frá brott­vís­unum þar sem þær stæð­ust útlend­inga­lög og fjöl­skyld­urnar væru þegar með alþjóð­lega vernd í Grikk­landi.

„Eini hóp­ur­inn sem við skoðum að senda til baka til Grikk­lands eru ein­stak­lingar sem hafa fengið þar jákvæða nið­ur­stöðu, alþjóð­lega vernd,“ sagði Þor­steinn.

Aðspurður hvort ástandið í Grikk­landi, sér­stak­lega eins og það hefur verið síð­ustu viku, væri nægi­lega gott til að Íslend­ingar gætu með góðri sam­visku vísað barna­fjöl­skyldum þangað sagði hann svo vera.

„Samkvæmt lögum um útlend­inga þá er okkur ekki heim­ilt að senda neinn til baka sem gæti átt hættu á ómann­úð­legri eða van­virð­andi með­ferð. Meðan við förum eftir því, já, þá getum við staðið við bak þess­ara ákvarð­ana með góðri sam­visku,“ sagði Þor­steinn við RÚV.

Segir Íslendinga skrá sig á spjöld sögunnar

Sema Erla segir í færslu sinni að Íslend­ingar séu að fara að senda börn sem annað hvort hafa verið um ára­bil á flótta eða eru fædd á flótta – aftur á flótta um ókomna tíð. „Við erum að fara að skrá okkur á spjöld sög­unnar fyrir að vera ríkið sem sendir flótta­börn í eymd, von­leysi, ótta og óör­yggi í Grikk­landi á sama tíma og önnur ríki eru að opna faðm­inn og bjóða flótta­börnum frá Grikk­landi að koma í skjól og öryggi til sín.“

Þá séu Íslend­ingar að fara að senda börnin í skelfi­legar aðstæður sem „við myndum aldrei sætta okkur við fyrir okkur sjálf eða börnin okkar. Þessi for­kast­an­lega aðgerð verður fram­kvæmd í and­stöðu við skýran vilja þess sam­fé­lags sem yfir­völd eru í for­svari fyrir. Skömm ykkar er mikil. Við munum ekki fyr­ir­gefa. Við munum aldrei gleyma. Sagan mun dæma ykkur hart,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár