Leiðtogarnir togast á um áherslur fyrir spennuþrungnar kosningar

Í síð­asta þætt­inum á RÚV þar sem leið­togar fram­boð­anna til Alþingis takast á fyrir kosn­ingar, hefur spenna ráðið ríkjum.

Síðustu leið­togaum­ræð­urnar á RÚV fyrir kosn­ing­arnar á morgun, ein­kennd­ust ekki síst af mik­illi spennu, þar sem leið­togar mát­uðu hug­myndir sínar til hægri og vinstri.

Í sjón­varps­sal voru Björt Ólafs­dóttir, frá Bjartri fram­tíð, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, fyrir Pírata, og Logi Már Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Í umræð­unum var farið um víðan völl, þar sem Einar Þor­steins­son og Þóra Arn­órs­dóttir, frétta­menn RÚV, spurðu leið­tog­ana spjör­unum úr.

Mál­efna­á­herslur flokk­anna voru í brennid­epli.

Enginn leið­tog­ana úti­lok­aði sam­starf eftir kosn­ingar, og töl­uðu leið­tog­arnir allir fyrir mik­il­vægi þess að sýna sam­stöðu og sam­starfsvilja.

Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tölu­vert for­skot í könn­unum, en útlit er fyrir spenn­andi kosn­ingar, þar sem erfitt er að ráða í hvernig landið liggur eftir að nið­ur­staðan er ljós. Fylgið við Sjálf­stæð­is­flokk­inn er tæp­lega 25 pró­sent, sam­kvæmt spánni, en Vinstri græn koma næst með 19 pró­sent.

Samkvæmt þing­sæta­spánni er ljóst að miklar breyt­ingar eru í kort­unum, þar sem í það minnsta þrír ráð­herrar eiga á hættu að detta út af þingi, og það sama má segja um for­seta Alþingis, Unni Brá Kon­ráðs­dóttur, sem er í fjórða sæti lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár