Samningstextanum skilað og ráðherrarnir taka við

Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna í París er hálfnuð og samn­inga­nefndir búnar að skila af sér samn­ings­text­anum. Í næstu vku er svo ráð­herra­vika þar sem umhverf­is­ráð­herrar heims­ins binda enda­hnút­inn.

Sendinefndir ríkja heims hafa unnið að samningstexta lagalega bindandi samkomulags um loftslagsmál alla vikuna í París.
Sendi­nefndir ríkja heims hafa unnið að samn­ings­texta laga­lega bind­andi sam­komu­lags um lofts­lags­mál alla vik­una í París. Mynd: EPA

Samn­inga­nefndir skil­uðu yfir­förnum samn­ings­texta laga­lega bind­andi lofts­lags­sam­komu­lags í París í dag. Textinn er enn ekki til­bú­inn því enn á eftir að taka afstöðu til fjöl­margra álita­mála. Það verður gert í svo­kall­aðri ráð­herra­viku sem hefst á mánu­dag, þar sem umhverfis- og utan­rík­is­ráð­herrar aðild­ar­ríkj­anna setj­ast að samn­inga­borð­inu.

Ráð­stefnan hófst síð­ast­lið­inn mánu­dag með for­dæma­lausum leið­toga­fundi 150 ríkja heims­ins. Þar voru saman komnir stjórn­mála­leið­togar lang flestra aðild­ar­ríkja Sam­ein­uðu þjóð­anna. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, ávarp­aði leið­toga­fund­inn og sagð­ist vona að hægt væri að ná sam­komu­lagi á ráð­stefn­unni. „Áhrif lofts­lags­breyt­inga eru þegar sjá­an­leg á Íslandi. Jökl­arnir okkar bráðna. […] Ísland verður lif­andi kennslu­stofa um áhrif lofts­lags­breyt­inga. Ef ekk­ert verður að gert mun ísinn á Íslandi hverfa að miklu leyti á næstu 100 árum,“ sagði Sig­mundur í erindi sínu.

Sig­mundur Davíð nefndi einnig vilja Íslend­inga til að miðla þekk­ingu á virkjun jarð­varma víðar í heim­inum. For­sæt­is­ráð­herra var svo í síma­við­tali í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 á fimmtu­dag þar sem hann sagði það hafa staðið uppúr hversu áhuga­samir leið­togar heims­ins væru um virkjun jarð­varma.

[adspot]

Frakkar, sem veita ráð­stefn­unni for­sæti, ósk­uðu eftir því áður en sendi­nefndir ríkja heims­ins komu saman á mánu­dag­inn að búið væri að útkljá helstu álita­mál í samn­ings­text­anum áður en vikan væri úti. Samn­inga­nefndir voru enn að störfum í gær­kvöldi en samn­ings­drögin sem búið var að rita áður en ráð­stefnan hófst eru smekk­full af horn­klofum þar sem listuð eru ágrein­ings­mál eða mis­mun­andi kostir fyrir hvert vanda­mál fyrir sig.

Flest þróuð ríki heims komu til Parísar með nokkur vel mótuð áherslu­at­riði. Eitt þeirra er að lög­gilda mark­mið allra aðild­ar­ríkj­anna. Annað er að sann­færa þró­un­ar­ríki að fjár­magns­flæðið muni duga til þess að van­þróuð lönd geti öðl­ast nýj­ustu tækni í end­ur­nýj­an­legri orku­fram­leiðslu hratt. Mestur af þessum pen­ingum mun að öllum lík­indum koma úr einka­geir­anum. Þriðja mark­miðið er að fylgst verði vel með því hvort mark­mið­unum sé fylgt eftir.

Ríku löndin hafa þó verið gagn­rýnd fyrir að hafa lagt fyrir ráð­stefn­una of hóf­leg mark­mið svo útlit er fyrir að mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna um að hlýnun jarðar hald­ist innan við tvær gráður náist ekki. Á móti er bent á að með átaki aðila á lægra stjórn­sýslu­stigi; borga, sveit­ar­fé­laga og fyr­ir­tækja er mögu­legt að ná mark­mið­inu. Stefnu­mótun ríkj­anna verði þá að stuðla að slíku átaki.

Jafnrétti ríkja

Í samn­inga­nefnd­unum hefur einnig verið tek­ist á um eft­ir­lits­kröfur og eft­ir­fylgni með mark­mið­unum. Vestræn ríki vilja að á fimm ára fresti verði gerð ítar­leg úttekt á því hvernig ríkjum heims tekst til við skuld­bind­ing­arnar. Þau ríki sem lengst af hafa verið kölluð þró­un­ar­ríki en eru nú á fleygi­ferð framá­við eru mót­fallin svo ítar­legri eft­ir­fylgni. Hér er helst talað um Kína, Indland, Mið-Aust­ur­lönd og ríki Suður-Ameríku. Þau vilja heldur að tekin verði umræða um stöðu mark­mið­anna að ein­hverjum tíma liðnum, án þess að kvaðir liggi við þeim ríkjum sem standa sig illa.

Veltur þessi umræða helst á jafn­rétt­is­rökum og mis­mun­andi sjón­ar­miðum hvað þau varðar. The Guardian hefur eftir einum full­trúa sem situr samn­ings­fund­ina að þetta fjalli um að allir spili sam­kvæmt sömu reglum á sama leik­velli. „Það er mik­il­væg meg­in­regla,“ lætur hann hafa eftir sér. Annar full­trúi seg­ist ekki vilja kef­i­s­væða of hóf­legan metnað. Því sé mik­il­vægt að gerð verði úttekt á fimm ára fresti.

[adspot]

Þessi til­laga gæti vel orðið það mál sem við­ræð­urnar í París stranda á. Þegar sams­konar við­ræður fóru fram í Kaup­manna­höfn fyrir sex árum strönd­uðu við­ræður á svip­uðu jafn­rétt­is­máli milli ríkj­anna. Frétta­skýrendur eru þó sam­mála að búið sé að leysa stærstu vanda­mál ráð­stefn­unnar í Kaup­manna­höfn með því að óska eftir mark­miðum hvers ríkis fyrir sig og snúa þannig vald­inu á hvolf.

Eitt þeirra atriða sem sam­þykkt voru í Kaup­manna­höfn var að rík­ari lönd heims­ins myndu veita þró­un­ar­ríkjum aðstoð í formi 100 millj­arða doll­ara til árs­ins 2020. Efnahags- og fram­fara­stofn­unin hefur, ásamt öðrum alþjóða­stofn­unum, sýnt fram á að pen­inga­flæðið sé þegar orðið nægi­legt til að hægt sé að upp­fylla lof­orðið árið 2020.

Megnið af þessum pen­ingum munu koma úr einka­geir­anum auk þess að þró­un­ar­sjóðir alþjóða­stofn­anna muni leggja til fé. Ísland ætlar að leggja fram eina milljón Banda­ríkja­dala í Græna lofts­lags­sjóð­inn. Á gengi dags­ins í dag eru það rúm­lega 135 millj­ónir íslenskra króna.

Gagn­rýnendur hafa haldið því fram að hluti þess­ara pen­inga sem ríki heims­ins veita í lofts­lags­sjóði sé tek­inn úr öðrum þró­un­ar­að­stoð­ar­verk­efnum. Útlit er fyrir að pen­inga­málin muni verða annar steinn í götu laga­lega bind­andi sam­komu­lags á ráð­stefn­unni í París.

Ítarlega var fjallað um samn­ings­horfur og hvað þarf að ger­ast svo samn­ingur náist í þætt­inum Þukl í Hlað­varpi Kjarnans í síð­asta mán­uði. Þátt­ur­inn er helg­aður lofts­lags­málum í tengslum við ráð­stefn­una. Þar sagði Auður Ing­ólfs­dóttir, alþjóða­stjórn­mála­fræð­ingur, að brjóta þyrfti múr­inn milli norð­urs og suð­urs. Mik­il­vægt sé að öll ríki heims vinni saman að mark­mið­inu án þess að gert sé upp á milli ríkra og fátækra landa.

Ráðherravika í næstu viku

Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, mun hitta kollega sína frá aðild­ar­löndum ramma­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál í París í næstu viku. Þá verður svokölluð ráð­herra­vika ráð­stefn­unnar og reynt að setja hnúta á lausa enda sam­komu­lags­ins. Það er ein ástæða þess að tími samn­inga­nefnda var tak­mark­aður við dag­inn í dag, því ráð­stefnan er nú hálfnuð og mik­il­vægt að ráð­herr­arnir fái tíma til umræðu áður en ráð­stefn­unni lýkur.

Það er hins vegar hætta á því, vegna þess hversu skammur tími er til stefnu, að sam­komu­lag strandi á atriðum eins og samn­ings­text­anum sjálfum. Eins og rakið hefur verið þá eru samn­ings­drögin smekk­full af horn­klofum þar sem listuð eru álita­mál við setn­ingar og orða­lag. Samn­inga­nefnd­unum tókst ekki að að hreinsa alla horn­klof­ana í síð­ustu viku. Í Kaup­manna­höfn varð þetta eitt af þeim vanda­málum sem urðu til þess að laga­lega bind­andi sam­komu­lag náð­ist ekki.

Hugi Ólafsson, samn­inga­maður Íslands á ráð­stefn­unni, lýsti því þannig á kynn­ing­ar­fundi um ráð­stefn­una í París í síð­asta mán­uði að varla væri hægt að leggja nokkurn skiln­ing í samn­ings­drögin vegna allra þess­ara horn­klofa og fyr­ir­vara. Málið væri gríð­ar­lega flókið og snerti svo mörg mál­efni að þetta væri í raun óhjá­kvæmi­legt.

Ekki er ólík­legt að ráð­stefnan drag­ist eitt­hvað á lang­inn. Samkvæmt útgef­inni dag­skrá á henni að ljúka á föstu­dag­inn eftir tæpa viku. Það eru hins vegar for­dæmi fyrir því að ráð­stefnu­lok frest­ist um hátt í tvo sól­ar­hringa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár