Hver færi í flugvél ef það væru 34% líkur á að hún færi niður?

Lofts­lags­samn­ingur er nú útfærður í París. Mark­miðið er að samn­ing­ur­inn verði laga­lega bind­andi.

Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands.
Árni Finnsson, for­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Það verður að vera hægt að vinna með samn­ing­inn sem nú er verið að und­ir­búa, segir Árni Finnsson, for­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands í sam­tali við Kjarnann í París. Þessa dag­ana er unnið að loka­drögum laga­lega bind­andi samn­ings allra ríkja heims um lofts­lags­mál á lofts­lags­ráð­stefn­unni COP21 í París.

„Ég held að það sé góð von um samn­ing,“ segir Árni en bendir á að nú sé bara spurn­ing um hversu góðan samn­ing verður hægt að gera. „Spurn­ingin er bara hvað hann verður sterkur, skýr og hversu auð­velt verður að vinna með hann eftir París. Þá byrjar vinnan við að koma þessum samn­ingi í fram­vkæmd. Sú vinna skiptir alveg gríð­ar­legu máli.“

Kjarninn er í París að fylgj­ast með ráð­stefn­unni. Hægt er að lesa frétta­straum­inn hér.

Boðað hefur verið til fundar í aðal­nefnd­inni hér í París; Comité de Paris, þar sem gert er ráð fyrir að nýjum drögum að samn­ingi verið útdeilt til sendi­nefnda þjóð­anna 195 sem hér eru komin til að ræða lofts­lags­breyt­ing­arnar og aðgerðir við þeim. Árni er viss um að sama málið muni hægja á við­ræð­unum hér í París og stöðv­aði við­ræð­urnar í Kaup­manna­höfn fyrir sex árum.

„Stærsta málið hefur verið alla tíð hvernig iðn­ríkin ætla að aðstoða þró­un­ar­ríki til að taka sig á í lofts­lags­málum, svo að þró­un­ar­ríki geti byggt upp end­ur­nýj­an­legt orku­kerfi og ekki fara sömu­leið og iðn­ríkin fóru með kola­hag­kerfi. Það held ég að sé erf­ið­asta málið,“ segir Árni.

Meðal ráð­stefnu­gesta í París hefur and­rúms­loftið verið litað jákvæðni og sann­fær­ingu um að hægt verði að kom­ast að sam­komu­lagi í lok vik­unnar. Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverfis- og auð­lind­ar­ráð­herra, er hér í París sem full­rúi Íslands. Hún lét hafa eftir sér á vef ráðu­neyt­is­ins í gær­kvöldi að hún væri von­góð. „Til­finn­ingin er sú að nú þok­ist hratt í sam­komu­lags­átt en björn­inn er þó ekki unn­inn. Þó búið sé að landa mik­il­vægum atriðum er varða ein­staka þætti samn­ings­ins á eftir að tengja þá saman og búa til heild­ar­ramma utan um nýtt sam­komu­lag. Næstu sól­ar­hringar fara í að sníða þennan ramma og ég er von­góð um að það tak­ist,“ er haft eftir ráð­herra.

Árni Finnsson segir það hafa komið svo­lítið á óvart hversu mik­inn stuðn­ing var að finna hér í París um að stefna skyldi að hlýnun innan við 1,5 gráðu, í stað tveggja. „[…] ekki eins og í Kaup­manna­höfn þar sem talað var um að vera innan við tvær. Það virð­ist vera nið­ur­staðan hér að tvær gráður sé bara allt of mikil áhætta. Ég heyrði í vís­inda­manni sem sagði að það þýði í raun og veru 66 pró­sent lík­indi á að okkur tak­ist að halda okkur innan við 2 gráður. Þá eru eftir 34 pró­sent sem gætu farið hina leið­ina. Hver mundi stíga upp í flug­vél ef það væru 34 pró­sent líkur á að hún fari niður?“ spyr Árni.

Hugi Ólafsson, samn­inga­maður Íslands, sagð­ist í sam­tali við Kjarnann búast við því að fram­kvæmd við­ræðna verði með sama sniði og í gær­kvöldi. „Ég á von á því að það verði líkt ferli. Ég held að það komi nýr og eymað­ari texti, búið að fækka álita­mál­unum og svo gefi hann [Laurent Fabius, for­seti COP21] ríkjum og ríkja­hópum tæki­færi til að segja sína skoðun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár