Aukinn áhugi á atvinnuhúsnæði aftur

Þing­lýstum kaup­samn­ingum um íbúð­ar­hús­næði hefur fækkað umtals­vert á síð­ustu mán­uðum, sam­hliða minnk­andi fram­boði á íbúðum til sölu. Á sama tíma hefur kaup­samn­ingum um atvinnu­hús­næði fjölgað.

Aukinn kraftur er kominn í viðskipti með atvinnuhúsnæði eftir nokkra lægð á tímum faraldursins.
Aukinn kraftur er kom­inn í við­skipti með atvinnu­hús­næði eftir nokkra lægð á tímum far­ald­urs­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Við­skipti með atvinnu­hús­næði hefur verið í hæstu hæðum á síð­ustu mán­uðum, en ekki hafa fleiri kaup­samn­ingar á slíkar íbúðir verið þing­lýstar í að minnsta kosti tíu ár. Á sama tíma hefur kaup­samn­ingum um íbúð­ar­hús­næði fækkað tölu­vert, þótt þeir séu enn margir í sögu­legu til­liti. Þetta kemur fram í kaup­skrá fast­eigna, sem er nú aðgengi­legur á vef Þjóð­skrár.

Samkvæmt skránni hafa alls 720 kaup­samn­ingar um atvinnu­hús­næði verið þing­lýstir frá sept­em­ber í fyrra fram að síð­ustu mán­að­ar­mótum, en það er 75 pró­sentum fleiri samn­ingar en á sama tíma­bili fyrir ári síðan. Þróunin er hins vegar öfug hjá kaup­samn­ingum um fjöl­býli og sér­býli, líkt og sjá má á mynd hér að neðan.

Þing­lýstir kaup­samn­ingar með fjöl­býli voru alls 4.036 tals­ins frá sept­em­ber og út jan­úar, en þeir voru alls 5.411 tals­ins á sama tíma­bili síð­asta vetur. Sömu­leiðis hafði þing­lýstum kaup­samn­ingum með sér­býli fækkað, úr 1.760 niður í 1.454, á sama tíma.

Aldrei stærri hlutdeild

Á síð­ustu tíu árum hafa að með­al­tali sjö pró­sent allra þing­lýstra kaup­samn­inga í hverjum mán­uði verið um atvinnu­hús­næði. Eftir að far­ald­ur­inn skall á fjölg­aði þó kaup­samn­ingum með íbúð­ar­hús­næði tölu­vert á sama tíma og áhug­inn fyrir kaupum á atvinnu­hús­næði minnk­aði. Fyrir vikið minnk­aði hlut­deild atvinnu­hús­næðis tölu­vert, en á fyrstu átta mán­uðum síð­asta árs nam hún ein­ungis þremur pró­sentum.[adspot]

Kjarninn fjall­aði um sam­drátt­inn á kaupum atvinnu­hús­næðis árið 2020, en þá sögðu fast­eigna­fé­lögin að hann væri ein­skorð­aður við ferða­þjón­ustu og aðila í veit­inga­geira.

Frá því í októ­ber hefur þessi þróun þó snú­ist við, líkt og myndin að ofan sýnir. Þannig hefur hlut­deild atvinnu­hús­næðis í kaup­samnignum auk­ist tölu­vert og hefur nú ekki mælst meiri í tíu ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár