Svandís hvetur flokksmenn til að yfirgefa ekki Vinstri græn

Mikill titr­ingur er í bak­landi Vinstri grænna vegna stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, hvetur flokks­menn Vinstri grænna til að yfir­gefa ekki flokk­inn þrátt fyrir að nú séu í ganga form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður milli Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Þetta kemur fram í skrifum Svan­dísar inn á Facebook síðu flokks­manna. Það sem hvatti hana til skrifa var úrsögn Drífu Snædal úr Vinstri grænum, en hún hefur lengi verið félagi í flokknum, vara­þing­maður og gegnir auk þess stöðu fram­kvæmda­stjóra hjá Starfs­greina­sam­bandi Íslands.

Drífa sagði í pistli að stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum væri „eins og að éta skít“. Það væri ekki hægt að sætta sig við það.

Svandís biður fólk um að fara ekki. „Þið hljótið að sjá að við Katrín erum ekki að sinna þessum verk­efnum sól­ar­hringum saman okkur til skemmt­unar, en nið­ur­staðan gæti orðið til þess að gleðja það fólk sem við eigum sam­leið með. - Sjáum hvað setur,“ segir Svandís.

Eins og greint hefur verið frá á vef Kjarnans, þá hafa stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja gengið nokkuð hratt fyrir sigu síð­ustu daga, og hefa flokk­arnir einkum rætt um mál sem hægt væri að ná mál­efna­legri sam­stöðu um, en lagt önnur mál til hliðar þar sem ágrein­ing­ur­inn er mestur.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra­efni í stjórn­inni, hefur talað fyrir því að flokk­arnir ein­blíni á að ná sátt um aukna sókn í styrk­ingu inn­viða sam­fé­lags­ins, einkum á sviði mennta- og heil­brigð­is­mála, en einnig á fleiri sviðum sem telja má til inn­viða sam­fé­lags­ins, svo sem á sviði sam­göngu- og umhverf­is­mála.

Svandís segir flokks­mönnum að gefa for­ystu Vinstri grænna tíma til að vinna úr mál­unum. „Gefið okkur, kæru vinur og félagar, nokkra daga. Við erum að fara yfir málin sem við berum öll fyrir brjósti. Ég er að tala um þessi mál en líka þau mál sem leiddu til þess að síð­ustu tvær rík­is­stjórnir sögðu af sér og gáfust upp. Kven­frels­is­mál, umhverf­is­mál, öll málin okkar. Ekki fara,“ segir Svandís meðal ann­ars í pistli sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár