Hörð gagnrýni á sölu á hlut í Arion banka í bókun minnihluta

Fjár­mála­eft­ir­litið, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra eru gagn­rýnd í bókun minni­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar vegna sölu á hlut í Arion banka til vog­un­ar­sjóða.

Arion banki verður að meirihluta í eigu þriggja vogunarsjóða og Goldman Sachs ef allir nýta sér kauprétt.
Arion banki verður að meiri­hluta í eigu þriggja vog­un­ar­sjóða og Goldman Sachs ef allir nýta sér kaup­rétt.

Minni­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar telur að Fjár­mála­eft­ir­litið þurfi að skýra betur rök­stuðn­ing sinn fyrir því að eng­inn nýrra hlut­hafa Arion banka, sem eru að mestu banda­rískir vog­un­ar­sjóðir, fari með virkan eign­ar­hlut í bank­anum. Það mat eft­ir­lits­ins kom fram í svar­bréfi þess til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sem sent var 31. mars síð­ast­lið­inn.

„Enn fremur telur minni hlut­inn að spurn­ingum í tengslum við tíma­línu sölu­ferl­is­ins sé enn ósvarað, varð­andi það að til­boð um kaupin hafi verið sam­þykkt 13. febr­úar sl. en ekki upp­lýst um þau fyrr en 19. mars sl.“. Þetta kemur fram í bókun sem minni­hlut­inn gerði á fundi nefnd­ar­innar 13. júní síð­ast­lið­inn.

Fjórir kaupa hluti í Arion banka af sjálfum sér

Í mars var til­kynnt að fjórir aðilar, vog­un­ar­sjóð­irnir Taconic Capital, Och-Ziff Capital Mana­gement, Attestor Capital og fjár­fest­inga­bank­inn Goldman Sachs hefðu keypt sam­tals 29,18 pró­sent hlut í Arion banka af Kaup­þingi á 48,8 millj­arða króna. Verðið sem greitt var fyrir er um 0,8 krónur á hverja krónu af bók­færðu eigin fé Arion banka.

Þegar samið var um stöðu­leika­fram­lög setti íslenska ríkið inn ákvæði þess efnis að það gæti gengið inn í við­skipti með hluti í Arion banka ef gengið yrði lægra en 0,8 af bók­færðu eigin fé bank­ans. Í því sam­komu­lagi var líka samið um að Kaup­­­þing þurfi að selja hlut sinn í Arion banka fyrir árs­­­lok 2018. Ef það myndi ekki tak­­ast myndi rík­­­is­­­sjóður leysa bank­ann til sín.

Í við­skipt­unum felst því að eig­endur ⅔ hluta Kaup­þings voru að kaupa stóran hluta í Arion banka á eins lágu verði og mögu­legt var fyrir þá án þess að virkja ákvæði sem gerði íslenska rík­inu kleift að ganga inn í kaup­in.

Til við­bótar á þessi hópur kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut í Arion banka til við­bót­ar. Nýti þeir hann, en lík­legt er að þeir geri það síðar á þessu ári, verða vog­un­ar­sjóð­irnir þrír og Goldman Sachs beinir eig­endur að meiri­hluta í Arion banka.

Til að telj­ast virkur eig­andi í fjár­mála­fyr­ir­tæki þarf að eiga yfir tíu pró­sent hlut. Tveir kaup­end­anna, Taconic og Attestor, halda sem stendur á 9,99 pró­sent hlut. Þeir hafa þó báðir óskað eftir því við Fjár­mála­eft­ir­litið að farið sé með þá sem virka aðila.

Þessir fjórir aðilar keyptu hlut­inn í Arion banka af Kaup­þingi ehf. eiga líka sam­tals 66,31 pró­sent hlut í Kaup­þingi. Langstærsti ein­staki eig­andi Kaup­þings eru sjóðir í stýr­ingu Taconic Capital með 38,64 pró­sent eign­ar­hlut. Næst stærsti eig­and­inn er lúx­em­borgískt félag tengd Och-Ziff Capital Mana­gement Group með 14,21 pró­sent eign­ar­hlut. Þriðji stærsti hóp­ur­inn eru sjóðir í stýr­ingu hjá Attestor Capital, sem eiga 8,63 pró­sent hlut. Fjár­fest­inga­bank­inn Goldman Sachs og sjóður í stýr­ingu hans eru síðan skráðir fyrir 4,83 pró­sent hlut. Því er ljóst að sjóð­irnir voru að selja sjálfum sér hluti í Arion banka. Og beinn og óbeinn hlutur þeirra í bank­anum er sam­an­lagt mun hærri en sá hlutur sem keyptur var.

Einn eigandi í ruslflokki

Einn hinna nýja eig­enda í Arion, Och-Ziff, glímir við mikil vand­ræði og fjár­festar hafa verið að flýja með mikið fjár­magn úr stýr­ingu hjá sjóðnum á und­an­förnu. Láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tæki hafa stað­fest brest­ina hjá því. Dag­inn eftir að til­kynnt var um kaup þess á hlut í Arion banka, þá var láns­hæf­is­ein­kunn fyr­ir­tæk­is­ins færð niður í rusl­flokk af Stand­ard & Poor´s.

Hinn 29. sept­em­ber í fyrra var fyr­ir­tækið sektað um 213 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 25 millj­arða króna, eftir að upp komst um stór­felld lög­brot fyr­ir­tæk­is­ins í Afr­íku. Fyr­ir­tækið mút­aði emb­ætt­is­mönnum til að hagn­ast sem mest á stöðu­tökum sín­um, meðal ann­ars í Líb­íu, Níger og Kongó. Það var dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna sem lagði sekt­ina á fyr­ir­tækið og sagði ákvörð­un­ina marka tíma­mót. Banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI er enn að rann­saka hluta þess­ara glæpa, og ýmsar hliðar þeirra, ef marka má það sem fram kemur í yfir­lýs­ing­unni frá því í sept­em­ber.

Minnihlutinn bókar

Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er einn þeirra þing­manna minni­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar sem setti fram bók­un­ina. Aðrir sem það gerðu voru Andrés Ingi Jónsson, Oddný G. Harð­ar­dóttir, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Smári McCarthy.

Lilja segir að rök­stuðn­ingur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins fyrir því að eng­inn hinna nýju hlut­hafa í Arion banka fari með virkan eign­ar­hlut sé ein­fald­lega ekki nógu sterkur. „Ef horft er í gegnum eign­ar­haldið þá eru þeir líka hlut­hafar í Kaup­þingi, sem er líka eig­andi í bank­anum.“

Hún segir að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi upp­lýst efna­hags- og við­skipta­nefnd um að bæði Taconic Capital og Attestor Capital hafi þegar óskað eftir því að farið sé með þá sem virka eig­endur. „Það sem ég er að gera athuga­semd við er að þeir voru til­búnir til að segja á sínum tíma, og gefa út mat, sem ég er tor­tryggin á. mér finnst þeir ekki hafa rök­stutt það nægi­lega vel.“

Gagnrýna ráðherra

Í bókun minni­hlut­ans er líka gagn­rýnt að Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hafi fagnað því opin­ber­lega að seldir hefðu verið hlutir í Arion banka til ofan­greindra aðila. Í bók­un­inni segir að það hafi þeir gert án þess að gera sér „grein fyrir því hverjir hinir nýju eig­endur væru eða hvort það kæmi betur út fyrir rík­is­sjóð að ganga inn í kaupin eða ekki. Það er afar gagn­rýni­vert að mati minni hluta nefnd­ar­innar, einkum nú þegar mjög brýnt er að gagn­sæi ríki í tengslum við sölu­ferlið á Arion banka hf. til að auka traust og til­trú á íslensku fjár­mála­kerfi og fjár­mála­mark­aði.

Minni hlut­inn gagn­rýnir enn fremur að hafa ekki fengið full­nægj­andi gögn varð­andi stað­fest mat fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á því hvort kaup­verðið á hlutum í Arion banka hf. væri undir eða yfir því marki sem þyrfti til að virkja for­kaups­rétt íslenska rík­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár