Repúblikönum tekst bara ekki að losa sig við Obamacare

Kosn­inga­lof­orð repúblik­ana síð­ustu sjö ár hefur verið að kasta heil­brigð­is­lög­gjöf Obama. Það ætlar bara ekki að ganga upp.

Mitch McConnell, leiðtoga repúblikana í bandaríska þinginu, hefur ekki tekist að efna loforð um að fella Obamacare úr gildi.
Mitch McConnell, leið­toga repúblik­ana í banda­ríska þing­inu, hefur ekki tek­ist að efna lof­orð um að fella Obamacare úr gildi. Mynd: EPA

Þing­mönnum Repúblikana­flokks­ins á banda­ríska lög­gjaf­ar­þing­inu tókst ekki að fella heil­brigð­is­trygg­inga­kerfið úr gildi sem lög­fest var í tíð Baracks Obama í Washington í gær. Frá þessu er greint á vef Reuters.

Síðustu til­raunir repúblik­ana á þing­inu, undir for­ystu Mitch McConnell, sem kosið var um í gær snér­ust um heil­brigð­is­lög­gjöfin – Obamacare – yrði felld úr gildi og að þingið fengi tveggja ára frest til þess að koma með nýja heil­brigð­is­lög­gjöf sem myndi koma í stað Obamacare.

Í atkvæða­greiðsl­unni var þessi til­laga felld með 55 atkvæðum gegn 45, þrátt fyrir að repúblikanar stjórni nú báðum deildum þings­ins og Hvíta hús­inu. Sjö repúblikanar greiddu atkvæði gegn til­lög­unni.

Repúblikana­flokk­ur­inn og full­trúar hans hafa lofað því í sjö ár, eða síðan Obamacare var sam­þykkt og leitt í lög, að afnema lögin og fá ný stað­fest þegar flokk­ur­inn stjórn­aði öllum stofn­unum lög­gjafar- og fram­kvæmda­valds­ins.

Það gerð­ist svo í fyrsta sinn á þessum sjö árum í jan­úar að for­seti úr röðum repúblik­ana tók við völdum í Hvíta hús­inu. Hann hefur hins vegar sýnt að hann hafi ein­fald­lega ekki nógu yfir­grips­mikla þekk­ingu á gangi mála í þing­inu – hvað þá á heil­brigð­is­trygg­inga­kerf­inu – til þess að verða öfl­ugur frum­mæl­andi nýrra heil­brigð­islaga.

Þegar hefur verið reynt að smíða og leggja til nýtt heil­brigð­is­kerfi sem kæmi í stað­inn fyrir Obamacare; Trumpcare. Því kerfi hefur verið hafnað og öllum útfærslum á því enda þóttu þær til­lögur lélegar og inn­an­tómar. Þingmenn úr báðum flokkum fengu að heyra það í kjör­dæmum sínum. Þess vegna var ákveðið að láta á það reyna að efna helm­ing­inn af lof­orð­inu og afnema lög­gjöf Obama. Það tókst ekki í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár