Þungarokk gegn þunglyndi og geðveiki

„Ætlunin er að vekja á því athygli hve hættu­legir og alvar­legir geð­sjúk­dómar geta verið, enda hafa allir með­limir sveit­ar­innar kynnst því af eigin raun á einn eða annan hátt,“ segir Ágúst Örn Pálsson, gít­ar­leik­ari og söngv­ari í þung­arokks­hljóm­sveit­inni Röskun. Aðrir með­limir eru Heiðar Brynjars­son trommu­leik­ari, Magnús Hilmar Felixson bassa­leik­ari og söngv­ari, og Þorlákur Lyngmo gít­ar­leik­ari og söngv­ari.

Þeir félagar hafa allir kynnst alvar­legum hliðum þung­lyndis og geð­sýki, með einum eða öðrum hætti, og vilja með tón­list­inni vekja athygli á því hvernig þung­lyndi og geð­sjúk­dómar geta grafið undan lífi fólks.

Frá hjartanu


„Fyrir nokkru tókum við, nokkrir góð­kunn­ingjar þung­arokks á Akureyri, okkur saman og stofn­uðum enn eitt hel­vítis bandið. Við höfum allir verið í böndum áður, góðum og vondum, alvar­legum og kjána­legum, alls­konar. Í þetta skiptið var ákveðið að tala frá hjart­anu, taka enga stefnu­mót­un­ar­fundi heldur láta tón­list­ina fæð­ast og fá að vera eins og hún er. Þar að auki ákváðum við að syngja á íslensku um eitt­hvað sem skiptir okkur máli,“ segir Ágúst Örn.

https://www.youtube.com/watch?v=M5tSrLiWzAs

Röskun vinnur nú hörðum höndum að sínum fyrstu tón­leikum og sinni fyrstu breið­skífu en fjög­urra laga kynn­ing­ar­plata hefur litið dags­ins ljós á Spotify, iTu­nes og öðrum helstu tón­list­ar­veitum.

Óttaðist verulega um líf sitt


„Af hverju geð­veiki? Þegar ég var ungur varð ég hættu­lega veikur og þurfti að liggja á spít­ala í nokkra daga. Í kjöl­farið af því þurfti ég svo að hvíla mig heima og smátt og smátt féll ég í kol­svart þung­lyndi. Sá slagur varð mér mikið erf­ið­ari, ég ótt­að­ist veru­lega um eigið líf og það tók mig um 2 ár að ná mér að mestu. Þó var alltaf eins og bölvuð lungna­bólgan sem löngu var yfir­stað­inn vægi mun þyngra í umræðu um mín veik­indi. Stundum heyrir maður; „Ég frétti að þú hafir verið nær dauða en lífi hérna um árið!”,„Fyr­ir­gefðu, var ég ekki að segja þér að ég væri búinn að vera frá vinnu mán­uðum saman vegna geð­hvarfa­sýki og þung­lyndis?” Þetta er meira kjaftæðið. Geð­sjúk­dómar eru stór­hættu­legir! Samt er enn eins og fólk eigi bara að rífa sig á lappir, hætta þessu væli og reyna að láta nágrann­ann ekki fatta að það sé snar­geð­veikt,“ segir Ágúst Örn. 

Harmsaga


Breið­skífan sem nú er í vinnslu er heil­steypt harm­saga um það hvernig ein­stak­lingur getur orðið þung­lyndi og rang­hug­myndum að bráð.

Fyrstu tón­leikar Röskunar verða haldnir á Græna Hattinum á Akureyri 23. jan­úar næst­kom­andi og þar mun önnur akur­eyrsk hljóm­sveit, Churchhouse Creepers koma kvöld­inu í gang áður en Röskun stígur á svið. Vænt­an­leg breið­skífa Röskunar verður svo leikin í heild sinni og megnið af lög­unum verða frum­flutt þetta kvöld.

Ald­urs­tak­mark á tón­leik­anna er 18 ár og miða­verð er 1.500,- krónur. Forsala verður á midi.is og í Eymunds­son á Akureyri en einnig verður hægt að kaupa miða við hurð eins og þeir end­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár