Sómi Íslands

Björgunar­sveitarfólk úr björgunar­sveitinni Þorbirni í Grindavík hefur sumt hvert staðið sleitu­lítið vaktina frá því að eldgosið hófst í Fagradals­fjalli. Þau hafa jafnframt notið liðsinnis hundruða kollega sinna sem hafa tryggt öryggi fólks og komið hröktum og slösuðum ferða­löngum til bjargar. Allt í sjálfboða­vinnu, án þess að skeyta um eigin hag heldur einbeitt í að hjálpa samborgurum sínum. Það verður seint ofmetið.

Þriðja vikan á vaktinni
Þriðja vikan á vakt­inni Karín og Jakob hafa staðið vakt­ina á gos­s­töðv­unum með félögum sínum í björg­un­ar­sveit­inni Þorbirni í Grinda­vík í þrjár vikur. Þau létu það ekki aftra sér í að ferja blaða­menn í skoð­un­ar­ferð að eld­stöðv­unum. Mynd: Davíð Þór

Tugir þúsunda Íslendinga hafa haldið gangandi upp að gosstöðvunum á Reykjanesi allt frá því að eldgos hófst í Fagradals­fjalli í Geldinga­dölum 19. mars. Veður hafa verið misjöfn, fólk hefur lent í villum og háska. Björgunar­sveitarfólk hefur haft í nægu að snúast, og ríflega það, við björgun, við aðstoð við göngufólk, vettvangs­stjórnun og eftirlit á svæðinu. Sögurnar af afrekum þeirra eru orðnar æði margar.

Blaða­maður Stundarinnar hringdi í Boga Adolfsson, formann björgunar­sveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík, að morgni miðvikudagsins 7. apríl og spurði tíðinda um aðgerðir björgunar­sveitarinnar. Nóttin hafði ekki verið tíðinda­laus. Ný gossprunga hafði opnast og nú streymdi hraun á þremur stöðum á Fagradals­fjalli og í Geldinga­dölum. Til hafði staðið að draga verulega úr viðbragði björgunar­sveitanna nú eftir páska en miðað við nýjustu vendingar þurfti að slá því eitthvað á frest.

Spurður hvort þeir væru á leið inn að gosstöðvunum og hvort mögulegt væri að sníkja far með björgunar­sveitinni aftók Bogi það ekki með öllu. Það myndi þó ekki gerast strax þar eð byrja þyrfti á að fara með jarð­vísindamenn inn á svæðið að meta aðstæður. Hann myndi hafa samband ef hægt yrði að koma slíkri ferð við.

Kraftar nátt­úr­unnarÁ með­fylgj­andi dróna­mynd­bandi sem Davíð Þór Guð­laugs­son ljós­mynd­ari Stund­ar­innar tók má sjá hversu gríð­ar­legir kraftar eru að verki á Fagra­dals­fjalli.Davíð Þór

„Komið þið bara“

Í Reykjavík var hálfgert leiðinda­veður fram eftir degi, skyggni lítið og úrkoma. Blaða­maður var því sumpart alls ekki að búast við neinu þegar síminn hringdi um tvöleytið. „Sæll, þetta er Jakob Máni í björgunar­sveitinni í Grindavík. Þú varst eitthvað að hugsa um að fá að fara með okkur inn að gosinu. Komið þið bara, ég fer með ykkur.“ Það var ekki flóknara en það.

Við upp­haf ferðarKarín og Jakob taka stöð­una áður en lagt er af stað.

Þegar blaða­maður og ljós­myndari Stundarinnar komu til Grinda­víkur mættu þau Jakob Máni Jónsson og Karín Óla Eiríks­dóttir þeim í björgunar­sveitar­húsinu. Bæði eru þau ungir Grind­víkingar sem hafa staðið vaktina upp á því sem næst hvern einasta dag síðustu tæpar þrjár vikurnar, eftir að eldgos hófst í Geldinga­dölum 19. mars. Við klifruðum með þeim upp í stóran jeppa björgunar­sveitarinnar Þorbjarnar og án vafninga var haldið af stað.

„Þetta er eig­in­lega þannig að ég skrepp rétt aðeins í vinn­una á milli þess sem ég sinni „alvöru“ verk­efn­inu“
Karín Óla Eiríks­dóttir

Björgunar­sveitarfólk sinnir störfum sínum í sjálfboða­vinnu og þarf að treysta á velvild vinnu­veitenda sinna þegar útköll koma. Sem betur fer er sú velvild almennt mikil og skilningur á mikilvægi björgunar­sveitanna almennur. Spurð hvað þau geri dags­daglega svarar Karín: „Ég er að vinna í sund­lauginni hérna og í forföllum í báðum grunn­skólunum. Svo er ég að selja Tupperware þess á milli. Ég var á sjó áður en þetta byrjaði þannig að ég er bara í ýmsu. Það er mikill plús að vinna hjá bæjar­félaginu í þessum aðstæðum. Ég fékk alveg heila viku í frí í upphafi til að sinna björgunar­sveitar­störfum. Það er líka takmörkuð opnun í sund­lauginni sem hentar mér vel, ég er að vinna tvo daga í þessari viku og bara hálfan daginn. Þannig að þetta er eiginlega þannig að ég skrepp rétt aðeins í vinnuna á milli þess sem ég sinni „alvöru“ verk­efninu. Maður er voða heppinn.“

Jakob er hins vegar nemi, að læra vélstjórn í Tækni­skólanum. „Það er kennt bæði í staðnámi og yfir netið. Ég mætti ekkert fyrstu vikuna eftir að byrjaði að gjósa, var bara í fríi frá skólanum. Ég er bara í tveimur áföngum og skólinn er þannig að ég þarf að keyra í bæinn til að mæta í einn tíma. Ég vildi ekki fara úr þessu fyrir einn tíma svo ég var bara hér og svo kom páskafrí svo ég þurfti ekki að hugsa um námið á meðan.“

Á Suð­ur­strand­ar­vegiJarð­skjálfta­hrinan sem stóð yfir áður en fór að gjósa fór veru­lega illa með Suð­ur­strand­ar­veg, svo mjög að á köflum er hann hættu­legur og lokað hefur verið fyrir umferð á honum að hluta.

Kæmi ekki á óvart ef ásókn yrði í björgunarsveitarstarf

Þau hafa, þrátt fyrir ungan aldur, bæði verið í björgunar­sveitinni Þorbirni nokkuð lengi. „Það eru að verða þrjú ár sem ég er búin að vera í björgunar­sveitinni sjálfri en ég byrjaði í unglinga­deildinni bara fjórtán ára,“ segir Karín sem er 23 ára.  Jakob er aðeins yngri, 19 ára og verður tvítugur í desember.  „Ég er að verða búinn að vera í eitt og hálft ár í björgunar­sveitinni en hafði líka verið í unglinga­starfinu áður.“

Bæði sinna þau umsjón með ungliða­starfinu í dag, en að vísu er allt stopp í því þessa dagana, vegna kóróna­veiru­faraldursins. Spurð hvort þeim þyki ekki líklegt að krakkar í Grindavík muni flykkjast í ungliða­starfið þegar það kemst í gang aftur, eftir að hafa fylgst með eldgosi svo að segja í bakgarðinum hjá sér, jánka þau því. „Það eru held ég alveg líkur á því að það verði meiri áhugi, það verður gaman að sjá. Það væri alveg frábært ef við fengjum fleiri inn út á þetta. Núna megum við ekki halda því úti, vegna Covid, og höfum kannski ekki heldur tök á því í þessum aðstæðum, vegna gossins,“ segir Karín.

Björgunar­sveitin Þorbjörn er öflug björgunar­sveit, vel tækjum búin og nokkuð fjölmenn. Ekki hefur veitt af síðustu vikur enda í ansi mörg horn að líta eftir að eldgosið hófst. „Þetta er líka þéttur og góður hópur sem er virkastur í sveitinni. Við erum hvað þekktust fyrir sjóbjörgun en við erum samt það lítil að það geta eiginlega allir verið í öllu, það þarf og er nauðsynlegt. Þú ert ekki bara í bílaflokk eða bara í bátaflokk,“ segir Karín.

„Það ganga flestir í flest störf, þannig séð. Rétt áður en að byrjaði að gjósa var maður úti á skipi að sækja bát sem var vélarvana en næstu viku vorum bara öll upp á fjalli þannig að þetta er ansi fjöl­breytt,“ bætir Jakob við.

Aðstoð kollega ómetanleg

Það hefði hins vegar verið Þorbjarnar­fólki næsta ómögulegt að sinna öllu því sem sinna hefur þurft síðan að gosið hófst, ef ekki hefði komið til aðstoð frá öðrum björgunar­sveitum, víðs vegar af landinu. Allt í allt hafa á bilinu 1.300 til 1.400 björgunar­sveitarmenn gengið vaktir vegna gossins. Það gefur augaleið að talsvert utan­umhald þarf til að koma öllu heim og saman með slíkan fjölda. „Það er Lands­björg sem sér um það, samhæfinguna. Það var sett upp skráningar­form þar sem fólk og sveitir gátu skráð sig inn á vaktir og það hefur verið ótrúlega mikið af fólki sem vildi koma, sem hefur skráð sig og komið og staðið vaktir með okkur. Þetta er auðvitað spennandi verkefni og þetta er alveg frábært. Þetta er stærsta verkefni sem við höfum fengist við hér á svæðinu,“ segir Karín.

Jakob segir að mikilvægt sé að hafa öfluga sveit heima­manna til staðar við skipulagningu sem þessa. „Við sem heimamenn höfum auðvitað mikla yfirsýn, þekkingu á svæðinu, sem er auðvitað grunnurinn að stjórnuninni. Vettvangs­stjórnun fer fram í vettvangs­stjórnunarbíl, Birninum, sem er stað­settur við björgunar­sveitar­húsið hjá okkur.“

„Yfirsýnin er þar, hópum er skipað til og mannaðir póstar þaðan. Ég held að það megi segja að þetta gangi mjög vel og hafi gengið,“ segir Karín.

Í þessum orðum töluðum er keyrt framhjá göngu­leiðinni sem stikuð hefur verið frá Suður­strandar­vegi og upp að gosstöðvunum. Á hægri hönd er mikið flæmi utan vegar sem útbúið hefur verið sem bílastæði fyrir fólk sem fer gangandi á staðinn. Sjá má nokkra tugi bíla á svæðinu, þó ekki gríðar­legan flota. Á vinstri hönd er upphaf göngu­leiðarinnar og þar er nokkur fjöldi tækja ýmissa björgunar­sveita, sexhjól, stórir jeppar og aðstöðu­bíll. Björgunar­sveitarfólk er á svæðinu til að leiðbeina göngu­fólki og hafa eftirlit. Tveir kollegar þeirra Jakobs og Karínar veifa brosandi þegar við keyrum framhjá og við veifum til baka. Sjá má hóp göngu­fólks sem er að hefja gönguna upp að gosstöðvunum. Í sjón­hendingu virðast allir vel búnir til útivistar, enda mikilvægt. Þó veður sé gott í svipinn þá er kalt og allra veðra von á fjöllum.

Ganga hefstEkki voru margir göngu­menn á ferð­inni þennan dag upp að gos­s­töðv­unum en þó ein­hver slæð­ingur. Fólk virt­ist vel búið og til í göng­una.

Spurð hvort að björgunar­sveitarmenn hendi reiður á fjölda þess fólks sem leggur af stað að eldstöðvunum segir Karín að það hafi verið reynt að gera það. „Ferðamála­stofa setti upp teljara til að hafa yfirsýn yfir það hversu margir fara inn á svæðið. Við sjáum það kannski best á bílunum samt,“ segir Jakob.

„Það er dreift miðum til fólks sem það er beðið um að setja í rúðurnar í bílunum, þar sem það skrifar hvað það á von á að vera lengi og hvað það séu margir í hverjum bíl,“ bætir Karín við.

Fjöldi fólks hætt kominn

Aðfarar­nótt 22. mars gerði vonsku­veður við gosstöðvarnar og ræsa þurfti út um 140 björgunar­sveitarmenn til leitar og björgunar á svæðinu. Hjálpa varð tugum fólks sem var kalt og hrakið og má segja að talsverður fjöldi hafi verið hætt komin hreinlega, sumir komnir með alvarlega ofkælingu. Björgunar­sveitarmenn skráðu fólk sem þeir komu til hjálpar og hófu að bera þær upplýsingar saman við bílnúmer bíla sem enn voru á svæðinu. Það var ekki fyrr en liðið var á morgun að tókst að hafa upp á öllum umráða­mönnum bílanna og staðreyna að þeir væru öruggir. Eftir þessa nótt voru græjaðir miðar frá Savetravel til að setja í bíla, segir Jakob. Á þá miða skrifar fólk fullt nafn þeirra sem komu með bílnum og símanúmer. Hefur þessi háttur auðveldað starf björgunar­sveitar­manna verulega.

Bregðast þurfti við aðstæðunum með því að hefja allsherjar­leit. „Útkallið kom hjá okkur um klukkan eitt um nóttina en við í Þorbirni voru í raun bara send heim, við vorum búin að standa vaktina frá því klukkan átta um morguninn,“ segir Karín. „Það voru kallaðar út sveitir af höfuð­borgar­svæðinu og annars staðar af Reykjanesinu sem bjuggu yfir óþreyttum mannskap í verkefnið,“ bætir Jakob við.

Þetta eru óþægilegar aðstæður að lenda í, um það eru þau Karín og Jakob sammála. Að fjöldi fólks sé í raun týndur á ótryggu svæði í aftaka­veðri og því sem næst ómögulegt að segja til um hversu margt fólkið sé. „En það hefur ekki verið mikið um slíkt nema þarna fyrst, ekki eftir að tókst að koma skipulagi á þetta. Svoleiðis tekur auðvitað tíma, eðlilega,“ segir Karín.

Jakob segir að fyrstu dagana hafi fólk farið ansi geyst. „Fólk var kannski aðeins of bratt að fara af stað þarna fyrst. Þá þurfti að labba yfir tvö fjöll en þetta er orðið töluvert þægilegri gönguleið sem búið er að stika út í dag.“

„Þú skott­ast þetta ekk­ert bara eins og ekk­ert sé“
Karín Óla Eiríks­dóttir

Karín segir að þrátt fyrir þetta séu enn ekki allir að átta sig á út í hvað það sé að fara. „Þú skottast þetta ekkert bara eins og ekkert sé, fyrir óvant fólk þá er þetta alveg meira en að segja það.“

En hvað er fólk, sem er í því sem mætti kalla venjulegu formi, lengi að ganga upp að gosstöðvunum. Jakob útskýrir að nýja leiðin sem stikuð var út á þriðjudaginn var sé aðeins lengri en sú sem var áður. „Það voru konur úr björgunar­sveitinni sem löbbuðu hana í fyrradag, svona býsna rösklega, og þær voru einn og hálfan tíma á leiðinni. Þannig að það er ekki óvarlegt að ætla að lágmarki tvo tíma í gang.“

Stór tækiAlvöru öku­tæki þarf til að fara um slóð­ina upp í Meradali, að gos­s­töðv­unum.

Tíminn rennur saman í eitt

Nú er beygt út af Suður­strandar­vegi inn á vegslóða sem að Jakob fræðir okkur um að liggi inn í Meradali, þangað sem hraun er nú farið að flæða úr gosstöðinni sem hóf að gjósa á annan í páskum. Slóðinn er grýttur og á eftir að fara versnandi, þarna er ekki á færi annarra en stórra bíla að fara enda ekki ætlast til að verið sé að keyra á öðrum bílum þangað upp eftir. Fyrir framan okkur má sjá stóran trukk að silast áfram, bíll sem blaða­maður giskar á að sé af gerðinni Volvo Laplander, án allrar ábyrgðar. Hann er á vegum einhverrar frétta­stofunnar segir Jakob.

„Ég er orð­inn alveg daga­villtur, ég er ekki lengur að spá í dögum“
Jakob Máni Jónsson

Við komum að léttri girðingu sem hefur verið sett upp yfir slóðann og Karín hoppar út til að opna fyrir okkur. Það ætti því að vera fólki ljóst að ekki er ætlast til þess að það keyri þessa leið án heimildar. Engu að síður hefur fullt af fólki virt það að vettugi og reynt að troðast slóðann án þess að hafa heimild til þess, á ýmsum tegundum af ökutækjum. „Við höfum haft mannaða lokun hér, þetta er nú eiginlega bara fyrsta skiptið sem ég keyri hingað upp eftir þar sem er ekki bíll frá okkur hér,“ segir Jakob.

Aðgangur bann­aðurAkstur á slóð­inni er háður því að heim­ild sé fengin, enda er um einka­land að ræða og auk þess er mik­il­vægt að björg­un­ar­sveitir hafi greiðan aðgang.

Þetta er sem sagt ekki í fyrsta skipti sem Jakob keyrir upp að gosstöðvunum, fjarri því. Spurður hversu margar ferðirnar séu hlær hann. „Veistu, ég bara veit það ekki. Tíminn er bara farinn í eitt. Ég er orðinn alveg daga­villtur, ég er ekki lengur að spá í dögum. Fólk spyr, manstu þarna á þriðjudaginn og ég segi bara ha? En þeir eru allir búnir að vera skemmtilegir, þannig lagað alla vega.“ Og Karín tekur undir það.“

Til stóð að draga verulega úr vöktun og viðveru björgunar­sveita á svæðinu eftir páska. Hins vegar voru þær áætlanir endur­skoðaðar eftir að byrjaði að gjósa í nýju sprungunum. „Það er nú búið að draga eitthvað úr samt,“ segir Jakob. Bætt skipulag og reynsla hjálpar þar mikið til segir Karín. „Það er komið töluvert betra skipulag á til dæmis bíla­stæðin og annað, svo það er ekki jafn mikið sem þarf að huga að í þeim efnum. Það hjálpar klárlega.“

 „Ég held líka að það skipti máli að það er búið að leggja áherslu á það í fjöl­miðlum að þetta er ekki bara einhver auðveld ganga, fólk er að átta sig á því. Það skiptir líka máli að svæðinu er lokað snemma, klukkan sex í eftir­miðdaginn er lokað á að fólk leggi af stað og svo er svæðið bara rýmt að kvöldinu,“ segir Jakob.

Karín segir að það gefi björgunar­sveitinni færi á að hafa minna viðbragð. „Það er líka það sem gefur okkur færi á að hafa minna viðbragð. Það var nótt um daginn þar sem ég stóð vakt frá því klukkan níu um morguninn og til fjögur um nóttina því það var nóg að gera við að koma fólki til baka sem var bara örmagnað eða slasað.“

Fjöldi slysa og óhappa á svæðinu

Og það hefur verið töluvert mikið að gera fyrir björgunar­sveitarfólk í slíkum verkefnum, mun meira en komið hefur fram í fjöl­miðlum til þessa segja þau Jakob og Karín. „Sem betur fer hefur ekki verið mikið um alvarleg slys, fólk er ekki endilega að fara heim í sjúkrabíl en það eru margir sem hafa meitt sig þannig að þeir labba ekki til baka. Ég var eina nóttina til klukkan að verða fimm um morguninn í flutningum á fólki sem hafði slasað sig, bara fram og til baka,“ segir Jakob og Karín tekur undir, sömu nótt hafi hún verið í eins aðgerðum.

„Ég var eina nótt­ina til klukkan að verða fimm um morg­un­inn í flutn­ingum á fólki sem hafði slasað sig“
Jakob Máni Jónsson

Við komum að mönnuðum eftirlits­pósti þar sem er bíll frá Flug­björgunar­sveitinni í Reykjavík. Í bílnum sitja tveir björgunar­sveitarmenn, maður og kona. Jakob rúllar niður rúðunni og heilsar kumpán­lega. „Það er blessuð blíðan,“ segir hann og fær til baka: „Já, það er frábært veður.“ Veðrið er reyndar alveg skaplegt þessa stundina. Það er auðheyrt á samtalinu að þessi eftirlits­póstur er kannski ekki uppáhalds­staður neinna, það langt frá gosinu að ekkert er að sjá. Jakob upplýsir að þau Karín séu á leiðinni upp eftir með okkur blaða­mennina og fær ósk um góða skemmtun og svarar hinu sama til baka.

Jakob útskýrir að á þessum eftirlits­pósti sé haft eftirlit með því hverjir fari um svæðið og upp að gosstöðvunum, hvort viðkomandi hafi leyfi til þess og þeim sem ekki hafi heimild sé þá snúið til baka. Það er ekki fyrir hvaða bíla sem er að fara slóðann sem fyrr segir, bæði vegna þess hversu grófur og grýttur hann er en líka vegna þess að hann er blautur. Búið er að herða kröfur til þess hvernig bílar eru útbúnir sem fara um svæðið segir Karín, nú þurfa bílar að vera að lágmarki á 38 tommu dekkjum til að fara slóðina.

Mikið um að veraÞyrla Land­helg­is­gæsl­unnar var á sveimi á svæð­inu, til eft­ir­lits.

„Það var búið að heimila að fjöl­miðlar gætu komið hingað uppeftir á venju­legum jeppum, þeir þyrftu ekki að vera breyttir. En þá voru menn að koma bara á Suzuki Jimny og einhverju slyddu­jeppum. Þeir komast kannski en það tætir bara slóðann upp og gerir hann erfiðara og verri yfir­ferðar að vera að keyra hann á bílum sem komast þetta kannski bara rétt svo,“ segir Jakob.

Í þessu keyrum við framhjá einhverju torkennilegu tæki sem augsjáanlega er knúið af sólar­sellum. Jakob segir okkur að þetta sé jarð­skjálfta­mælir, sem settur hafi verið þarna upp löngu fyrir gos. Jarð­skjálfta­mælar eru víst ansi víða á svæðinu, settir upp eftir að jarð­skjálfta­hrinan hófst sem plagaði Grind­víkinga og Reyknesinga verulega fyrir gosið, sem frægt er orðið.

Mikilvægt að þekkja svæðið

Við keyrum áfram sem leið liggur, um svæði sem heitir Stóri-Leirdalur. Slóðin ýmist liggur beint eða hlykkjast áfram, allt eftir lands­laginu. Ekki margir vissu af þessum slóða fyrir gos segja þau Jakob og Karín okkur, enda slóðin um einkaland og ekki ætlast til að fólk sé að þvælast hann án leyfis. Björgunar­sveitarfólk þekkti hann hins vegar, enda mikilvægt að þekkja leiðir sem færar eru sem víðast á þeirra heima­svæði, ef eitthvað kemur upp á. Það er líka ríkur þáttur í þjálfun sveitanna að fara um svæðin til að kynnast þeim, aðstæðum og átta sig á hvernig hægt er að komast um.

„Fólk getur verið í bráða­hættu og það þarf bara að vera fært og ekki van­búnir bílar sem eru að þvæl­ast fyrir“
Jakob Máni Jónsson

Það er mikilvægt að höfð sé stjórn á því hverjir fara um svæðið. Jakob segir frá því að hann hafi verið við sjúkra­flutninga af gossvæðinu, með slasaða konu aftur í,  þó ekki þá leið sem við ökum nú heldur aðra sem hann lýsir sem „tæpum fjórhjóla­slóða“. „Maður var að drífa sig eins hægt var, það beið sjúkra­bíll niður frá, og alltaf mætti maður bílum, fullt af bílum. Það var alveg glatað. Fólk getur verið í bráða­hættu og það þarf bara að vera fært og ekki vanbúnir bílar sem eru að þvælast fyrir.“

Álagið á tækjum og bílum er gríðar­lega mikið með svo mikilli umferð um svæðið, og á ekki betri slóðum um um ræðir. Smá bilanir hafa verið að koma upp í bílunum og hefur þurft að sinna meira viðhaldi en vanalegt er.

Þeir sem keyra á svæðinu eru í raun að brjóta lög, slóðinn er ekki merktur og því er í praxís um utan­vegaakstur að ræða, sem er óheimill. Jakob lýsir fyrir okkur slíkum atvikum. „Það hafa líka verið að fara menn á fjór­hjólum og krossurum um svæðið utan slóða. Það var einn daginn sem við komum að gosstöðvunum þar sem við keyrðum fram á hóp af krossara­hjólum sem höfðu verið keyrð eins og dró upp í mjög bratta hlíð rétt við gosstöðvarnar, allt þar til þau drógu ekki meir. Þá lögðu menn bara hjólunum og gengu rest. Fimm eða sex hjól voru þar rétt utan við slóðina í hlíðinni, búnir að spóla upp um allt. Annan daginn þegar við vorum að koma niður af gosstöðvunum hafði einhver tekið sig til niðri í Meraradalnum og leikið sér að því að spóla í hringi í þar niðri, í algjöru tilgangs­leysi.“

Þó það hafi ekki margir heimild til að keyra um svæðið er samt töluverð umferð. Við mætum bíl þar sem eru innanborðs kollegar okkar frá Stöð 2, einn helsti náttúru­hamfara­fréttamaður þjóðarinnar í fram­sætinu. Töluvert er um umferð blaða­manna á svæðinu segja þau Jakob og Karín, fyrir ýmsar frétta­stofur. Síðast í fyrradag var tökulið á vegum National Geographic á svæðinu, Jakob telur þó að það hafi aðallega verið Íslendingar sem voru að vinna að því.

Þegar þau Jakob og Karín eru spurð hvort þau hafi komið á svæðið áður en fór að gjósa svara þau því bæði játandi en þá hafi verið verulegur snjór yfir á svæðinu. Jakob segir að hann hafi raunar farið oftar en einu sinni, á æfingu með sveitinni og til að glöggva sig á slóðum og leiðum á svæðinu.

Rætt við kollegaJakob ræðir hér við kollega sína úr björg­un­ar­sveit­inni Björg á Eyr­ar­bakka, sem leggja Þor­bjarn­ar­fólki lið við vöktun á svæð­inu.

Gosið kemur í ljós

Nú komum við upp brekku og í fyrsta skipti blasir eldgosið við okkur, úr fjarlægð. En jafnvel úr fjarlægð er yfir­þyrmandi að sjá krafta nátt­úrunnar, hvernig eldurinn brýst úr iðrum jarðar. Af brekku­brúninni sést niður í Merardali, næsta dal við Geldingadal þar sem eldgosið braust út. Þar má sjá hraun­straum sem rennur niður í dalinn og hraun sem hefur breitt úr sér í dalbotninum. Sá hraun­straumur kemur eingöngu úr sprungunni sem opnaðist á annan í páskum. Fyrir leikmann er ótrúlegt að sjá hversu mikið flæmi er komið undir hraun á ekki fleiri dögum, á tveimur sólar­hringum.

Uppi á brekku­brúninni er annar eftirlits­póstur björgunar­sveita. Þar er mikill tækjabíll fyrir, sexhjól og jeppi frá björgunar­sveitinni Björg á Eyrar­bakka. Inni í jeppanum sitja tveir björgunar­sveitarmenn, glaðbeittir og heilsa kumpán­lega. Annar þeirra segir þetta vera tíunda daginn sem hann er við vakt á svæðinu en hinn er á sinni fyrstu vakt. Allt í allt hafa á milli tíu og fimmtán björgunar­sveitarmenn frá Björg tekið vaktir á svæðinu frá því að gos hófst. Þeirra hlutverk í dag er að vera til taks ef bregðast þarf við, komi eitthvað upp á á svæðinu. Klukkan er að ganga fimm í eftir­miðdaginn og þeir hafa setið í bílnum frá því um hádegi, án þess að til tíðinda hafi dregið, sem betur fer. „Þannig viljum við hafa það,“ segja þeir og Jakob kinkar kolli sammála.

Sjón­ar­spilÚtsýnið yfir Mer­ar­dali og að gos­s­töðv­unum á Fagra­dals­fjalli er ótrú­legt.

Til hliðar við bíl björgunar­sveitarinnar er Volvoinn sem hefur dólað á undan okkur kyrr­stæður. Út úr honum koma frétta­maður og mynda­tökumaður Stöðvar 2, að virða fyrir sér útsýnið. Þetta er ekki fyrsta ferðin þeirra á svæðið en upplifunin er eftir sem áður þannig að menn setur hljóða, lýsa þeir.

Við stígum upp í bílana að nýju og höldum niður í Merardali. Það er talsvert kaldara þarna upp frá en var niðri í byggð, örlítil úrkoma á köflum. Upp undir gosstöðvunum má sjá fólk bera við himinn, á hreyfingu. Við nálgumst hraun­breiðuna niðri í dalnum, sem nú er runnin yfir slóðann sem björgunar­sveitarfólk hefur keyrt fram til þessa. Niðri í dalbotninum eru þrír eða fjórir bílar. Þegar við komum niður eykst slyddan og við rennum upp í háls, setjum upp vettlinga og húfur og förum út úr bílnum. Ljós­myndarar Frétta­blaðsins eru nýkomnir niður og að tygja sig heim á leið. Þeir lýsa því að fátt sé af fólki við gosstöðvarnar. Létt er yfir fólki, það er upplifun og gaman að koma á staðinn.

Yfirþyrmandi kraftar

Jakob og Karín bjóðast til að fylgja okkur á fæti að gosstöðvunum og við þiggjum það boð með þökkum. Þau eru með gasmæla, vel búin, með hjálma og í björgunar­sveitar­göllum. Við erum í þeim fötum sem líkjast mest útivistar­fötum og við gátum dregið upp úr skúffunum heima hjá okkur. Leiðin fram undan er stutt, en brekkan er brött, raunar mjög brött. Við höldum af stað og stikum upp á við. Við og við blásum við mæðinni en kemst þó hægt fari. Og þegar upp er komið er upplifunin stórkostleg.

Við okkur blasir sullandi gígur, dyngja sem er að hlaðast upp fyrir augunum á okkur ef svo má segja. Hraun flæðir í ýmsar áttir, niður í Meradali úr gígnum sem við sjáum næst okkur. Fólk er á vappi um svæðið, en ekki mikill fjöldi. Fæstir segja margt, kraftarnir í náttúru­öflunum eru yfir­þyrmandi og enginn vill missa af neinu.

Við göngum um svæðið, að gossprungunni sem hafði byrjað að gjósa úr nóttina áður. Þar hefur hraun líka hlaðist upp og það er undrunar­vert að sjá hversu hratt það hefur byggst upp. Lengst frá okkur er fyrsta eldstöðin, þar sem gos hófst að kvöldi 19. mars. Hraun­breiðan sem runnið hefur þaðan er stórt og mikið og fyllir að manni finnst hálfan Geldinga­dalinn. Við sjáum ekki sjálfan gíginn þaðan sem við stöndum en hraun­slettur koma af og til upp fyrir brúnina.

Jakob bendir okkur á hvar tjald björgunar­sveitanna stóð áður en hóf að gjósa úr eldstöð númer tvö. Fjar­lægðin er ekki mikil, talin í nokkur hundruð metrum. Enn nær er gossprungan sem hóf að gjósa úr aðfara­nótt 7. apríl. Þau Karín lýsa því hvernig björgunar­sveitarfólk skipti sér í hópi, til að rýma svæðið, til að taka saman tjaldið og tól sín og tæki. Á meðan fór hann ásamt öðrum til að koma olíu á ljósavél sem knýr gsm-sendi sem björgunar­sveitirnar komu upp á svæðinu. „Það var metið sem svo að það væri algjört forgangs­atriði að tryggja að samband héldist við þessar aðstæður.“ Karín tekur undir og segir það gríðar­lega mikilvægt að hægt sé að ná síma­sambandi á svæðinu.

Fátt er um björgunar­sveitarfólk við gosstöðvarnar að þessu sinni og fólk sem er þarna statt gefur sig á tal við þau Jakob og Karín, spyr spurninga, leitar ráða, um hvort sé óhætt að fara svo og svo nálægt hrauninu eða hvort hægt sé að komast annað til sjá það frá öðru sjónar­horni. Þau leysa greiðlega úr beiðnum fólksins og svara spurningum þess. Frétta­maður Sjónvarps spyr hvort óhætt sé að standa á ákveðnum stað með eldgosið í baksýn í beinni útsendingu í kvöld­fréttum. Þau Karín og Jakob sjá ekki meinbugi á því, vindátt er með þeim hætti að ekki ætti að þurfa að hafa áhyggjur af gasmengun. En þau brýna fyrir öllum að fara með gát og hafa varan á.

Einu viðbragðs­aðilarnir aðrir sem sjáanlegir eru við gosstöðvarnar eru tveir meðlimir úr sérsveit ríkis­lögreglu­stjóra sem rölta um og hafa gát á öllu. Þeir segja að staðan sé ágæt, fátt fólk hafi verið á svæðinu í dag en það hafi verið heldur kalt fyrr um daginn. Veðrið er ekki meira en skaplegt þessa stundina og ljós­myndarar bölva í hljóði vegna skorts á skyggni. Veðrið eykur þó að sumu leyti á dulúðina, í bland við eld og eimyrju.

Við förum að huga okkur til hreyfings heim á leið, viljum ekki troða um of á gestrisni þeirra Jakobs og Karínar. Slyddan er líka að aukast, það stefnir í leiðinda bleytu hríð. Við röltum niður brekkuna aftur að bílnum, þurfum að fara að öllu með gát til að renna ekki í krapanum. Þegar niður er komið höldum við af stað heim að nýju. Leiðin til baka virkar styttri, færra er sagt, við blaðamenn enn að melta það sem við höfum orðið vitni að.

Þegar komið er niður í byggð þökkum við kærlega fyrir okkur. Þau Jakob og Karín gefa lítið fyrir það, þetta hafi verið sjálfsagt. Þau halda svo inn í björgunar­miðstöð, til að hafa fata­skipti, til að fara í kvöldmat. Til að safna kröftum því þau eru tilbúin til að bregðast við. Á morgun verða standa þau líka vaktina. Ásamt félögum sínum í björgunar­sveitinni Þorbirni og ásamt félögum sínum í öðrum björgunar­sveitum, bæði á gosstöðvunum á Reykjanesi og um land allt. Sómi Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár