Solar Impulse lent á Hawaii eftir lengsta flug sögunnar

Andre Borschberg, flug­maður sól­ar­orkuknúnu flug­vél­ar­innar Solar Impulse II, setti í dag heims­met í ein­menn­ings­flugi þegar hann flaug stans­laust í fjóra daga, 21 klukku­stund og 52 mín­útur frá Japan til Hawaii.

Metið sló Borschberg raunar í gær því fyrra metið átti Steve Fossett. Það var sett árið 2006 þegar Fosset flaug umhverfis jörð­ina á 76 klukku­stundum og 45 mín­útum.

Borschberg og félagi hans Bertrand Piccard fljúga nú umhverfis jörð­ina í sól­ar­orkuflug­vél sinni án þess að nota dropa af elds­neyti. Vélin er búin 17.000 sól­ar­sellum sem hlaða raf­hlöður vél­ar­innar á dag­inn. Vænghaf vél­ar­innar er meira en á júm­bó­þotu og hún vegur aðeins 2,3 tonn.

Ferð þeirra hófst í Abu Dhabi í mars og hafa þeir skipts á að fljúga í allt að 20 tíma í einu. Ferðin yfir Kyrra­hafið til Hawaii var lengsti og hættu­leg­asti leggur ferð­ar­innar og þess vegna hafði Borschberg með sér fall­hlíf og björg­un­ar­bát ef hann hefði þurft að kasta sér frá borði.

Hann fékk lítið að hvíl­ast þessa tæpa fimm sól­ar­hinga sem hann var á flugi; aðeins 20 mín­útur í einu. Hann var því að vonum þreyttur við kom­una til Hawaii. Nú tekur við annað eins fyrir Piccard sem flýgur svip­aða vega­lengd frá Hawaii til Pheonix í Arizona.

„Þegar ég hóf þetta verk­efni fyrir 14 árum hafði ég hug­myndir um að geta flogið dag og nótt án þess að nota elds­neyti. Þetta er því eitt af mik­il­væg­ustu augna­blikum lífs míns,“ sagði Piccard við fjöl­miðla.

Ferðin hefur ekki gengið áfalla­laust fyrir sig enda þarf að nýta hvern sól­ar­geisla sem býðst. Vélinni er því í raun flogið þar sem sólin skín og brott­för frestað vegna óhag­stæðra skil­yrða. Flug­hraði vél­ar­innar er jafn­framt aðeins einn sjötti af flug­hraða Boeing-far­þega­þotu.

Hér má fylgj­ast með ferð Solar Impulse-vél­ar­innar, lesa af mælum hennar og kanna ástand flug­manns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár