Stjórnarandstaðan segir enga sátt um tillögur ríkisstjórnarinnar

Minni­hlut­inn á Alþingi kynnti í dag til­lögur sínar að breyt­ingum á almanna­trygg­inga­frum­varp­inu.

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir á Alþingi lýsa allir veru­legum von­brigðum með þá leið sem valin hefur verið til að hækka greiðslur almanna­trygg­inga, og segja að sú leið tryggi ekki að greiðslur almanna­trygg­inga fylgi þróun lág­marks­launa og verði 300 þús­und krónur.

Sam­fylk­ingin, Vinstri-græn, Björt fram­tíð og Píratar héldu sam­eig­in­legan blaða­manna­fund í dag þar sem kynntar voru til­lögur flokk­anna í mála­flokknum.

Flokk­arnir segja að aðeins hluti aldr­aðra og öryrkja muni fá þær hækk­anir sem boð­aðar hafa verið með til­lögum rík­is­stjórn­ar­innar að breyt­ingum á almanna­trygg­inga­frum­varp­inu sem nú er í vinnslu á Alþingi. Eldri borg­arar og öryrkjar í sam­búð séu skildir eftir og tekju­skerð­ingar auk­ist hjá ákveðnum hópum. „Rík­is­stjórnin ætlar sér að ná fram sparn­aði með því að hækka þá sem búa með öðrum hlut­falls­lega minna og ná síðan 280.000 kr. mark­inu fyrir þá sem búa einir með því að auka skerð­ingar. Þannig er í raun verið að inn­leiða sam­búð­ar­skatt á líf­eyr­is­þega og auka skerð­ing­ar­hlut­föllin hjá þeim sem búa einir. Þessi munur mun síðan aukast enn meira árið 2018. Þetta er ósann­gjörn leið sem grefur undan trausti og sam­stöðu um gott almanna­trygg­inga­kerfi.“

„Tillögur rík­is­stjórn­ar­innar eru að hækka elli­líf­eyri um 7,1% fyrir eldri borg­ara í sam­búð. Sú hækkun er lægri en hækk­anir á vinnu­mark­aði. Heim­il­is­upp­bót er hækkuð en hún fer til eldri borg­ara sem búa einir og þannig ná kjör þeirra 280.000 kr. sem eru lág­marks­laun árið 2017. Þessar breyt­ingar þýða að eldri borg­ari í sam­búð fær 227.883 krónur á mán­uði eftir hækk­un­ina en sá sem býr einn fær til við­bótar 52.117 kr. í heim­il­is­upp­bót. Í til­lögum rík­is­stjórn­ar­innar er skerð­ingin á heim­il­is­upp­bót hækkuð í 56,9%,“ segir í til­lögum minni­hlut­ans, sem seg­ist leggja til rétt­lát­ari leið og hækka elli­líf­eyri um 13,4%. „Þá fær eldri borg­ari sem býr með öðrum 241.300 kr. á mán­uði eða um 13.400 kr. meira á mán­uði miðað við til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar. Eldri borg­ari sem býr einn fær 280.000 kr. eins og í til­lögum rík­is­stjórn­ar­innar en hlutur heim­il­is­upp­bót­ar­innar í þeirri greiðslu er minni og skerð­ingu á henni er haldið óbreyttri eða 52,5%.“

Tillögur rík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart öryrkjum eru eins, hækkun upp á 7,1% fyrir öryrkja sem eru í sam­búð en hækkun fram­færslu­upp­bótar hjá þeim sem búa einir. Það þýði að öryrki sem býr með öðrum fær 227.883 krónur á mán­uði en sá sem býr einn fær 280 þús­und krónur. „Skerð­ingar hans vegna ann­arra tekna aukast því sér­staka fram­færslu­upp­bótin fær hlut­falls­lega meira vægi í heild­ar­greiðslum,“ segir minni­hlut­inn. Fram­færslu­upp­bótin skerð­ist líka króna á móti krónu og vægi slíkra skerð­inga því aukið.

Minni­hlut­inn vill hækka líf­eyr­is­greiðslur öryrkja um 13,4% eins og hjá öldruðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár