Launakostnaður Kaupþings jókst um milljarð en starfsfólki fækkaði

Alls fengu starfs­menn Kaup­þings um yfir 2,6 millj­arða króna í laun og launa­tengd gjöld í fyrra. Í árs­lok störf­uðu 19 manns hjá félag­inu.

Kaupþing féll í október 2008. En félag utan um eftirstandandi eignir bankans er enn starfandi.
Kaupþing féll í októ­ber 2008. En félag utan um eft­ir­stand­andi eignir bank­ans er enn starf­andi. Mynd: Úr safni.

Laun- og launa­tengdur kostn­aður Kaup­þings ehf., félags sem stofnað var um eft­ir­stand­andi eignir hins fallna banka, jókst um einn millj­arð króna í fyrra þrátt fyrir fyrir að starfs­fólki hefði fækkað úr 30 í 19 á árinu. Alls nam kostn­aður félags­ins 2,6 millj­örðum króna á árinu 2017. Þar af fóru 544 millj­ónir króna til stjórnar og helstu stjórn­enda. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Kaup­þings.

Í stjórn Kaup­þings í lok árs voru Allan Jeffrey Carr, Paul Copley, Óttar Páls­son, Bene­dikt Gísla­son og Piergi­orgio Lo Greco. Copley er einnig fram­kvæmda­stjóri Kaup­þing.

Til við­bótar fengu utan­að­kom­andi ráð­gjafar greidda tæp­lega 4,3 millj­arða króna í fyrra. Það er um 700 millj­ónum krónum minna en árið áður.

Vilja ekki upplýsa um bónusgreiðslur

Greint var frá því fyrir tveimur árum síðan að um 20 manna hóp­ur lyk­il­starfs­manna Kaup­þings gæti fengið allt að 1,5 millj­arða króna til að skipta á milli sín ef hámörkum á virði óseldra eigna Kaup­þings myndi nást. Næð­ust mark­miðin átti að greiða út bón­us­greiðsl­urnar eigi síðar en í apríl 2018.

Langstærsta óselda eign Kaup­þings á þeim tíma var 87 pró­sent hlutur félags­ins í Arion banka, sem nú hefur verið að stórum hluta seld og það sem eftir stendur gert selj­an­legt með skrán­ingu á mark­að. Umræddar bón­us­greiðslur ná ein­ungis til starfs­manna Kaup­þings, ekki stjórn­ar­manna og ráð­gjafa sem unnið hafa fyrir félag­ið. Greiðslur til þeirra koma til við­bótar því sem greið­ist til starfs­manna.

Kaupþing hefur ekki viljað upp­lýsa um hvort búið sé að greiða bónus­anna út né hver áætluð heild­ar­greiðsla sé.

Vogunarsjóðir allsráðandi

Sjóðir tengdir sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Taconic Capital eru langstærstu eig­endur Kaup­þings ehf. Sam­an­lagt eiga þeir 45,6 pró­sent hlut í félag­inu.

Stærsta eft­ir­stand­andi eign Kaup­þings er 32,67 pró­sent hlutur í Arion banka. Taconic Capital á líka beint tíu pró­sent hlut í Arion banka og skip­aði nýverið Benedikt Gíslason sem full­trúa sinn í stjórn bank­ans.

Næst stærsti eig­andi Kaup­þings er sjóð­ur­inn Sculptor Invest­ments s.a.r.l. sem er tengt Och-Ziff sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu. Och-Ziff á líka 6,58 pró­sent hlut beint í Arion banka. Þriðji stærsti eig­and­inn eru sjóðir tengdir CCP Credit Aquisition með sam­tals 9,3 pró­sent eign­ar­hlut og fjórði stærstir eru sjóðir í stýr­ingu Attestor Capital, sem er líka einn stærsti eig­andi Arion banka með 8,86 pró­sent beinan eign­ar­hlut.

Samtals eru eiga tíu stærstu eig­endur Kaup­þings 90,6 pró­sent hlut í félag­inu. Í þeim hópi eru vog­un­ar­sjóðir langstærstir en þar er líka að finna eign­ar­hluti sem haldið er á í gegnum sjóði eða útibú stór­banka á borð við JP Morgan og Deutsche Bank. Þá á slitabú Kaupt­hing Singer & Fried­lander 3,2 pró­sent hlut.

Wintris á meðal eigenda

Alls eru hlut­hafar 595 tals­ins. Af öðrum þekktum eig­endum Kaup­þings má nefna Wintris, félag í eigu Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, eig­in­konu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins. Eign­ar­hlutur Wintris er mjög lít­ill og byggir á kröfum sem félagið lýsti í þrotabú Kaup­þings.

Alls voru eignir Kaup­þings metnar á 233,1 millj­arð króna í lok árs 2016 og höfðu þá lækkað úr 409,7 millj­örðum króna árið áður, m.a. vegna þess að Kaupþing greiddi inn á skulda­bréf við íslenska rík­is­ins sem var hluti af stöð­ug­leika­skil­yrð­unum sem félagið þurfti að upp­fylla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár