Guðmundur Ingi vill að hvalveiðistefna Íslendinga verði endurmetin

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra telur rétt að staldrað verði við, hval­veiði­stefna Íslend­inga verði end­ur­metin og málið skoðað heild­stætt út frá umhverf­is­sjón­ar­miðum sem og út frá sam­fé­lags­legum og efna­hags­legum sjón­ar­miðum.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra er ekki sann­færður um að hval­veiðar hér við land séu sjálf­bærar. Þá hefur ráð­herra einnig efa­semdir um að hags­munir Íslend­inga af nýt­ingu hvala séu eins miklir og stundum er haldið fram.

Þetta kemur fram í svari umhverfis- og auð­linda­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Þorgerði K. Gunn­ars­dóttur um rann­sóknir á mengun í Hval­firði. Var hann spurður hvort hann styddi að hval­veiði­stefna Íslend­inga verði end­ur­metin.

„Ráðherra telur rétt að staldrað verði við, hval­veiði­stefna Íslend­inga verði end­ur­metin og málið skoðað heild­stætt út frá umhverf­is­sjón­ar­miðum sem og út frá sam­fé­lags­legum og efna­hags­legum sjón­ar­miðum,“ segir í svar­inu.

Í svar­inu kemur fram að í reglu­gerð um hval­veiðar, sem heim­ilar veiðar á hrefnu og lang­reyði, sé meðal ann­ars kveðið á um leyfi til veiða á hrefnu 2018 og 2019 og á lang­reyði árið 2018, þannig að núgild­andi reglu­gerð­ar­á­kvæði um leyfi til veiða á stór­hvölum rennur út í árs­lok 2018. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu sé ekki farið að huga að frek­ari breyt­ingum á reglu­gerð­inni.

„Stefna Íslands í hval­veiði­málum hefur byggst á því að við­halda rétti til að nýta hvala­stofna við landið með sjálf­bærum hætti líkt og aðrar lif­andi auð­lindir hafs­ins,“ segir í svar­inu.

Telur miður að áhrif frá hvalskurði séu ekki vöktuð sérstaklega

Ráðherra var einnig spurður hvort hann teldi ástæðu til frek­ari rann­sókna á mengun í Hval­firði sem meðal ann­ars kynni að stafa frá hval­skurði og vinnslu á lang­reyðum í Hval­stöð­inni.

Hann segir að marg­vís­leg vöktun hafi átt sér stað í Hval­firði og megi þar nefna að umhverf­is­vöktun f fram vegna iðju­ver­anna á Grund­ar­tanga sam­kvæmt áætlun sem Umhverf­is­stofnun hefur sam­þykkt. Skýrslu um nið­ur­stöður umhverf­is­vökt­unar iðn­að­ar­svæð­is­ins á Grund­ar­tanga vegna árs­ins 2017 og sam­an­burð við und­an­gengin ár sé einnig að finna á heima­síðu Umhverf­is­stofn­unar sem og annað ítar­efni er varðar umhverf­is­vöktun í Hval­firði.

Guð­mundur Ingi segir enn fremur að honum sé ekki kunn­ugt um rann­sóknir á mengun í Hval­firði sem tengj­ast beint hval­skurði og vinnslu á lang­reyðum í Hval­stöð­inni og telur miður að áhrifin frá þess­ari starf­semi hafi ekki verið vöktuð sér­stak­lega.

Í svar­inu kemur fram að Hvalur hf. hafi starfs­leyfi frá heil­brigð­is­nefnd Vest­ur­lands fyrir vinnslu hvala­af­urða á Litla-Sandi í Hval­fjarð­ar­sveit. Í starfs­leyf­inu sé kveðið á um varnir gegn mengun ytra umhverfis og eft­ir­lit með starf­sem­inni.

Verði áfram­hald á hval­veiðum og þar með þess­ari starf­semi telur ráð­herra ástæðu til frek­ari rann­sókna á mengun í Hval­firði sem meðal ann­ars kynni að stafa af hval­skurði og vinnslu á lang­reyðum í Hval­stöð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár