Topp tíu íslensk framlög til tvíæringsins

Snæbjörn Brynjars­son skoðar fram­lög Íslands til Fen­eyj­artví­ær­ings­ins í gegnum tíð­ina.

Árið 2005
Árið 2005 Gabríela Frið­riks­dóttir fékk fjóra íslenska tón­list­ar­menn með sér í lið. Hér má sjá Daníel Ágúst Har­alds­son. Mynd: Lode Saidane

Annað hvert ár umbreyt­ast Feneyjar í risa­stórt lista­safn og hafa gert síðan 1895. Fen­eyj­artví­ær­ing­ur­inn er vafa­laust einn mik­il­væg­asti við­burður sem lista­maður getur tekið þátt í og getur ýmist verið hápunktur fer­ils eða upp­haf alþjóð­legrar sig­ur­göngu. 

Ísland er til­tölu­lega ungur þátt­tak­andi á Fen­eyj­artví­ær­ingnum, fyrsti Íslend­ing­ur­inn fór 1960 og landið fékk ekki eigin skála fyrr en 1984. Þátttaka Íslands hefur stundum verið umdeild og stundum vakið mikla athygli en hér eru talin upp tíu eft­ir­minni­legar sýn­ingar.

1Árið 2009 fór Ragnar Kjart­ans­son fyrir hönd Íslands til Feneyja og sýndi þá mynd­bands­verk og mál­verk. Reyndar væri senni­lega nærri lagi að segja að málar­inn og mód­elið hefðu verið til sýnis frekar en mál­verkin. Ragnar og Páll Haukur Björns­son stóðu dag­lega í skál­anum, Páll á sund­skýl­unni og Ragnar með pensil­inn og hægt var að sjá bæði afrakstur vinnu­fer­ils­ins hang­andi á veggj­unum og lista­mann­inn sjálfan að störfum, en um sex mán­aða skeið var málað eitt verk á dag. Bjór­dós­irnar sem þeir drukku og sígar­ett­urnar sem þeir reyktu voru eflaust ekki síður hluti af verk­inu, sem lék skemmti­lega með róm­an­tískar hug­myndir um bóhemlíf. Eflaust hefur verkið ekki haft góð áhrif á heilsu þeirra tveggja, en Ragnar sló svo sann­ar­lega í gegn með þessu hálfs árs fyll­erí og er í dag einn þekkt­asti lista­maður Íslands. Verk hans The Visitors sem hann sýndi í Kling og Bang gall­erí í fyrra var selt í sex ein­tökum á söfn og til safn­ara, hvert ein­tak á 120 þús­und banda­ríkja­dala.

2Fyrsta skiptið sem Íslend­ingar sýndu í Feneyjum var árið 1960 og þá deildu tveir lista­menn heiðr­inum, þeir Jóhannes Kjarval og Ásmundur Sveins­son. Þetta voru einu tveir þátt­tak­end­urnir frá Íslandi sem fæddir voru á nítj­ándu öld­inni. Ef þeir hafa tekið sín bestu verk með út þá hlýtur þetta fram­lag að hafa verið það besta frá upp­hafi.

3Íslensk nátt­úra er gott tromp fyrir mynd­list­ar­fólk að eiga á hendi. Þótt menn séu orðnir býsna þreyttir á íslenskri nátt­úru­róm­an­tík í dag smellpass­aði inn­setn­ing Rúríar, Archive- End­an­gered Waterfalls (fall­vötn í útrým­ing­ar­hættu) í tíð­ar­and­ann árið 2003. Deil­urnar um Kára­hnjúka­virkjun voru bara nýbyrj­aðar og allt leit út fyrir að álver yrði í hverjum firði og hver ein­asta spræna virkjuð ef fram­sókn fengi vilja sínum fram­gengt. Úr stórum málm­kassa var hægt að draga út ljós­myndir af foss­unum sem komið var skot­leyfi á og hlusta á hljóðið í þeim. Verkið var áhrifa­mikið og umdeilt.

4Fram til árs­ins 1997 hafði engin kona farið út til Feneyja fyrir hönd Íslands sem verður að segja eins og er: vand­ræða­lega seint. En sem betur fer var hægt að bæta úr því áður en tutt­ug­ustu öld­inni var alveg lokið með því að kalla til Steinu Vasulku. Steina er sögu­lega áhrifa­mesti íslenski mynd­lista­mað­ur­inn að öllum lík­indum. Hún er sú eina sem virki­lega er 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár