Barn eigi ekki að þurfa að hrynja niður í dýpsta myrkur til þess að á það sé hlustað

Maní verður ekki vísað úr landi í dag en brott­vísun fjöl­skyldu hans hefur verið frestað vegna bágs heilsu­á­stands drengs­ins.

Maní og fjölskylda
Maní og fjöl­skylda Mynd: Skjáskot/RÚV

Maní Shahidi og fjöl­skyldu hans verður ekki vísað úr landi dag. Brott­vís­un­inni hefur verið frestað vegna ann­ar­legs ástands Maní, en hann var í gær lagður inn á barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­al­ans, í hvíld­ar­inn­lögn.

Lög­reglan hefur stað­fest þetta við Claudia Ashonie Wilson, lög­mann fjöl­skyld­unnar, en frá þessu er greint í stöðu­upp­færslu hjá No Borders Iceland.

Töluvert hefur verið fjallað um málið en blásið var til mót­mæla í gær fyrir framan dóms­mála­ráðu­neytið. Þær sem stóðu að við­burð­inum eru mæður trans barna. Þá var fólk jafn­framt hvatt til að skrifa undir áskorun þess efnis að styðja við Maní og fjöl­skyldu hans.

Búinn að vera hér á landi í tæpt ár

Maní er 17 ára gam­all trans strákur sem kom til Íslands með for­eldrum sínum þann 5. mars árið 2019. Fram kemur á við­burði mót­mæl­enda að Maní sé nem­andi við Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­nesja þar sem hann hafi fest rætur, eign­ast vini og tengst sam­fé­lag­inu. „Maní er í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu en rann­sóknir hafa sýnt fram á að trans ung­menni búa við verri and­lega heilsu og eiga í meiri hættu á félags­legri ein­angrun.“

Síð­ast­lið­inn mánu­dag til­kynnti lög­reglan fjöl­skyld­unni að henni yrði vísað á brott og að flytja ætti þau úr landi mánu­dags­morg­un­inn 17. febr­úar. Fjöl­skyldan yrði þá flutt til Portúgal þar sem þau dvöldu í nokkra daga áður en þau komu til Íslands. Þar hafa þau ekki hlotið vernd, heldur sjö daga vega­bréfs­á­ritun sem þau not­uðu til að kom­ast til Íslands.

„Hræðilegt“ að dómsmálaráðherra hafi ekki gripið inn í

Á síðu No Borders kemur fram að þó að það hafi verið mik­ill léttir að brott­vís­un­inni hafi verið frestað, þá sé „væg­ast sagt hrika­legt að dóms­mála­ráð­herra, Útlend­inga­stofnun, kæru­nefnd eða lög­reglan hafi ekki gripið inn í, en öll hafa þau vald til að fresta brott­vís­un­inni. Því það var vissu­lega ekki rétt­læt máls­með­ferð yfir­valda sem stöðv­aði brott­vís­un­ina í nótt, heldur var það hörmu­legt and­legt ástand 17 ára ung­lings.“

Enn fremur telja sam­tökin að barn eigi ekki að þurfa að hrynja niður í dýpsta myrkur og þurfa á neyð­ar­að­stoð lækna, til þess að lög­reglan, Útlend­inga­stofnun og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hlusti.

Telja málið ekki nægilega vel rannsakað

Samkvæmt No Borders hefur það verið ljóst frá fimmtu­degi að málið hafi ekki verið nægj­an­lega rann­sakað og að um hugs­an­leg brot á rétti Maní til að tjá sig við yfir­völd hefðu átt sé stað í máls­með­ferð­inni. „Útlend­inga­stofnun á að hafa verið á vakt um helg­ina að fara yfir mál Maní og fjöl­skyldu hans, en samt var engum tölvu­póstum lög­manns þeirra svarað, né þeirra eigin beiðni eftir gögnum. Ekki var heldur tekið til­lit til þess að storm­ur­inn á föstu­dag­inn hefði valdið því að lög­maður gat ekki fengið öll umbeðin.

Á meðan við biðum eftir Maní þar sem hann var í við­tali hjá barna­geð­lækni, hringdi lög­regla stoð­deildar í Shokoufa, móð­ur­ina, til að vita hvar þau væru. Svo virð­ist sem það hafi átt að fram­kvæma brott­vís­un­ina þrátt fyrir all sem á undan var gengið. Sem betur fer þvertóku læknar fyrir að brott­vís­unin færi fram í nótt.“

Þau reikna enn fremur með því að bar­áttan þurfi að halda áfram næstu daga. „Vonandi nær Maní að hvíla sig í ró sem ætti að vera svo sjálf­sögð fyrir barn, á meðan við hin klárum þetta mál!“ segir að lokum í stöðu­upp­færslu No Borders.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár