Verktakakostnaður ríkislögreglustjóra rúmir þrír milljarðar

Á síð­ustu átta árum hefur emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra keypt ráð­gjöf og þjón­ustu af verk­tökum fyrir 3,3 millj­arða króna.

Haraldur Johann­es­sen, rík­is­lög­reglu­stjóra.
Haraldur Johann­es­sen, rík­is­lög­reglu­stjóra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra keypti ráð­gjöf og þjón­ustu af verk­tökum fyrir 3.296.672.166 króna á árunum 2010 til 2018. Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Vil­hjálmi Árnasyni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Árlegur verk­taka­kostn­aður emb­ætt­is­ins hefur auk­ist til muna frá árinu 2010, það ár var kostn­að­ur­inn rúmar 250 millj­ónir en átta árum síðar var hann um 439 millj­ónir. Hvaða þjón­ustu var keypt og af hverjum kemur jafn­framt fram í svari ráð­herra og má sjá hér.

Vil­hjálmur spurði einnig hverjir voru skráðir stjórn­ar­menn lög­að­ila sem þjón­ustan var keypt af á hverjum tíma en í svari ráð­herra segir að slík úttekt yrði það umfangs­mikil að ekki væri hægt að svara þeim hluta fyr­ir­spurn­ar­innar í stuttu máli. 

Mál ríkislögreglustjóra til skoð­unar

[links]Mál Har­aldar Johann­es­sen, rík­is­lög­reglu­stjóra, er til skoð­unar í dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Í sept­em­ber lýstu átta af níu lög­­­reglu­­stjórum í land­inu yfir van­trausti gagn­vart Har­aldi og vilja þeir hann burt úr emb­ætt­i. Sam­kvæmt lög­regl­stjór­unum var kornið sem fyllti mæl­inn við­­tal sem Har­aldur veitti Morg­un­­blað­inu, þar sem hann sagði að meðal ann­ars megi rekja óánægju innan lög­­regl­unnar til þess að hann væri að taka á spill­ingu innan lög­­regl­unn­­ar.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, ráð­herra mála­flokks­ins, hefur gefið sér nokkrar vikur til að finna lausn á þessu máli. Ein lausn væri að ráð­ast í skipu­lags­breyt­ingar innan lög­regl­unnar og færa til dæmis starf­semi rík­is­lög­reglu­stjóra undir lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u. Enn sem komið er mun Har­aldur hins vegar sitja áfram í starfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögregla

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár